Morgunblaðið - 05.04.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.04.2018, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2018FRÉTTIR SVEIGJANLEGOGLIPUR INNHEIMTUÞJÓNUSTA Hafðu samband, við leysum málin með þér! Laugavegur 182, 105 Rvk. | Sími: 510 7700 | momentum@momentum.is Mesta lækkun Mesta hækkun VIKAN Á MÖRKUÐUM AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn) ORIGO -4,45% 23,6 HAGA +2,38% 43,05 S&P 500 NASDAQ -1,80% 6.936,272 -1,35% 2.605,35 -0,15% 7.034,01 FTSE 100 NIKKEI 225 5.10.‘17 5.10.‘1728.3.‘18 4.4.‘18 1.700 702.300 2.171,5 1.993,53 Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær. 57,0 67,64 -0,63% 21.319,55 BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu) 50 Innflutningur á tengiltvinnbílum á fyrstu þremur mánuðum ársins nálg- ast heildarinnflutning slíkra bíla allt árið 2016. Í janúar, febrúar og mars voru fluttir inn 718 tengiltvinnbílar, en árið 2016 voru 782 slíkir bílar flutt- ir inn. Á síðasta ári tók innflutningur tengiltvinnbíla kipp, en þá voru fluttir inn 2.136 bílar. Á fyrstu þremur mán- uðum síðasta árs voru fluttir inn 494 tengiltvinnbílar. Samdráttur varð í innflutningi hreinna rafbíla á fyrstu þremur mán- uðum ársins, en 101 bíll af slíkri gerð var fluttur inn. Á sama tíma í fyrra voru fluttir inn 190 hreinir rafbílar. Innflutningur á hreinum rafbílum tvöfaldaðist rúmlega á síðasta ári þegar fluttir voru inn 854 bílar. Rafbílar enn óhentugir til lengri ferðalaga Özur Lárusson, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins, segir að tengiltvinnbílar séu ákveðið millistig í rafbílaþróuninni og að net hleðslu- stöðva sé enn í uppbyggingu. „Tvinnbílarnir eru þannig að í besta falli er hægt að keyra fimmtíu kílómetra á rafmagninu einu og þá tekur mótorinn við. Fólk sem ætlar að keyra lengri leiðir getur ekki alveg nýtt sér hreina rafmagnsbíla óhindr- að þó hleðslustöðvar séu nú um allt landið. Þær munu ekki gagnast öllum eins og staðan er núna. Í millitíðinni, þar til þetta kerfi verður þéttara og betra, þá henta tvinnbílarnir mjög vel. Ég spái því að í framtíðinni snúist þetta við og þá verði meiri aukning í sölu rafbíla heldur en tvinnbíla,“ seg- ir hann. Özur telur að kerfi hleðslustöðva sem nú hefur verið komið á fót anni enn ekki miklum fjölda rafbíla. „Það eru komnar hleðslustöðvar í alla stærri þéttbýliskjarna landsins, en víða er þó bara einn staur. Það dugar ekki fyrir mikinn fjölda rafbíla. Þetta er samt bara byrjunin, ein- hvers staðar þarf að byrja,“ segir Öz- ur. Orka náttúrunnar (ON) tilkynnti í síðustu viku að nú væri hægt að aka hringinn um landið á rafmagnsbíl, en þá var opnuð hraðhleðslustöð við Mý- vatn. Stendur hún við Fosshótel í Reykjahlíð, en þar er einnig hefð- bundin hleðslustöð. Alls rekur ON nú þrjátíu hleðslu- stöðvar víðsvegar um landið. Samdráttur í sölu nýrra bíla Í tilkynningu frá Bílgreina- sambandinu segir að í mars hafi reynst 11,9% samdráttur í sölu nýrra bíla almennt. Nýskráðir bílar á tíma- bilinu voru 1.833 samanborið við 2.081 á sama tíma í fyrra, þ.e. sam- dráttur um 248 bíla. Á fyrstu þremur mánuðum ársins voru skráðir 4.615 nýir bílar, 42 bílum færri en á sama tíma í fyrra. Af nýskráðum bílum á þessu ári voru 1.685 bílar skráðir sem bílaleigubílar. Flestir seldir bílar frá Toyota Flestir bílar sem nýskráðir hafa verið eru af gerðinni Toyota, eða 938 talsins. Þar á eftir koma KIA með 522 bíla og Nissan með 421 bíl. Mest seldi tengiltvinnbíllinn á Ís- landi á síðasta ári var Mitsubishi Out- lander PHEV, en 884 slíkir seldust, 29,6% allra seldra tengiltvinnbíla. 523 bílar af gerðinni Nissan Leaf voru seldir eða 17,5%, 271 bíll af gerðinni Volvo XC90 PHEV, eða 9,1%, 122 bílar af gerðinni Audi A3 e-Tron og 106 bílar af gerðinni Volkswagen Golf GTE, eða 3,5%. Rúmlega þriðjungur af seldum tengiltvinnbílum á síðasta ári var af öðrum tegundum. Kippur í innflutningi á tengiltvinnbílum Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Fjöldi innfluttra tengiltvinn- bíla er næstum jafn mikill og allt árið 2016. Sam- dráttur er í innflutningi hreinna rafbíla, en net hleðslustöðva vex hratt. Morgunblaðið/Ófeigur Innflutningur á tengiltvinnbílum stórjókst á fyrstu mánuðum ársins saman- borið við sama tímabil í fyrra. Samdráttur varð í innflutningi hreinna rafbíla. KAUPHÖLL Mest velta var með hlutabréf Sýnar, sem áður hét Vodafone, á meðal minni fyrirtækja sem skráð eru í kauphallir Nasdaq Nordic í mars- mánuði. Að meðaltali nam velta með bréfin 0,9 milljónum evra á dag eða rúmlega hundrað milljónum króna. Það er tæplega 30% meiri velta á dag en hjá sænska tæknifyrirtækinu Invuo Technologies AB sem skipaði annað sætið og 50% meiri velta en með bréf Fjarskipta í febrúar. Þetta kemur fram í yfirliti frá Nasdaq. Hluthafafundur Sýnar samþykkti að breyta nafni félagsins hinn 22. mars í kjölfar sameiningar við 365 miðla. Af þessu tilefni verður nafni félagsins ásamt auðkenni tilboða- bókar í viðskiptakerfi Nasdaq Ice- land breytt frá og með 9. apríl 2018. Fyrirtækjum sem skráð eru í Kauphöll er skipað í þrjá flokka eftir stærð: stórfyrirtæki, meðalstór og lítil. Marel er eina félagið á íslenska hlutabréfamarkaðnum sem flokkast sem stórfyrirtæki, markaðsvirði þess er 274 milljarðar króna. Þrjú félög eru flokkuð sem lítil, þau eru Sýn, Origo og Skeljungur. Markaðs- virði Sýnar er 21 milljarður króna. Það sem af er ári hafa bréfin hækk- að um 4%. Sýn veltumest smærri félaga í Nasdaq Nordic Morgumblaðið/Vodafone Markaðsvirði Sýnar er 21 milljarður króna og jókst um 4% frá áramótum. SEÐLABANKI Enn mun verða dráttur á birtingu skýrslu þeirrar sem Seðlabanki Ís- lands tilkynnti að í smíðum væri á vettvangi hans árið 2015, og varðar 500 milljóna evra neyðarlán sem bankinn veitti Kaupþingi í október 2008. Þetta staðfestir Stefán Jóhann Stefánsson, ritstjóri á skrifstofu seðlabankastjóra, í samtali við Við- skiptaMoggann. „Skýrslan liggur að verulegu leyti fyrir í drögum en lokayfirferð er eft- ir. Þegar skýrslan verður tilbúin verður hún fyrst kynnt bankaráði Seðlabanka Íslands með öllum trún- aðarupplýsingum sem þar kunna að vera. Eftir það verður tekin ákvörð- un um birtingu. Allt tekur þetta tíma og verkefni þeirra sem geta sinnt þessu verki eru oft veruleg. Það set- ur svo oft strik í reikninginn að óvænt verkefni koma upp sem lúta að vandamálum samtímans sem verður að sinna. Oft er þar um að ræða nýjar beiðnir frá Alþingi, rík- isstjórn og ráðuneytum. Þetta eru allt ástæður þess að ekki er hægt að gefa bindandi tímasetningar varð- andi fortíðarverkefni eins og þessi. Þar er meira um að ræða áform, en verkið er mjög langt komið þótt það sé ekki hægt að festa útgáfu- dagsetningu nú.“ Á síðustu árum hefur bankinn ítrekað fullyrt að skýrslunnar yrði að vænta innan skamms. Það var síðast gert í samtali við Morgun- blaðið í haust og því slegið föstu að skýrslan yrði birt í janúar síðast- liðnum. ses@mbl.is Geta engu svarað um neyðarlánsskýrsluna NÝSKÖPUN Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið App Dynamic hefur kynnt nýja vöru í samstarfi við Intel, eitt af stærstu tæknifyrirtækjum heims. Pratik Kumar, framkvæmdastjóri fyrir- tækisins, segir í samtali við Við- skiptaMoggann að samstarfið hafi í raun hafist fyrir einu og hálfu ári. App Dynamic framleiðir hug- búnað sem þjónustar AirPlay. Fyrirtækið, sem var stofnað af hjón- unum Kumar og Kristínu Ósk Ósk- arsdóttur, hefur frá árinu 2011 þróað vöruna AirServer sem auð- veldar notendum að varpa mynd, myndbandi eða tónlist á milli skjáa, bæði í gegnum Google Cast, Mira- cast og AirPlay. Kumar segir að með samstarfinu geti fyrirtæki sem noti Intel Unite boðið upp á svokallað „snjallt fundarherbergi“ en með hjálp Air- Server sé hægt að spegla eða varpa allt að sex tækjum samtímis beint í gegnum Intel Unite, án þess að nota utanaðkomandi forrit eða viðauka. Unnið sé að fleiri samstarfsverk- efnum. Að hans sögn hefur sala Intel Unite tvöfaldast á hverju ári um nokkurt skeið. Í fyrra voru 400 þús- und eintök seld og er búist við að varan verði komin í 800 þúsund fundarherbergi. App Dynamic skipaði 262. sætið á lista Financial Times síðastliðið vor yfir þau fyrirtæki sem vaxa hraðast í Evrópu. Vöxturinn var 471% á ár- unum 2012-2015. Kumar segir að viðskiptavinir App Dynamic séu um þrjár millj- ónir. Starfsmenn séu tíu. Tekjur félagsins voru 226 millj- ónir árið 2016 og hagnaður var 34 milljónir króna, samkvæmt árs- reikningi. helgivifill@mbl.is Íslendingar í samstarfi við Intel Kumar segir að unnið sé að fleiri samstarfsverkefnum með Intel.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.