Morgunblaðið - 05.04.2018, Síða 4

Morgunblaðið - 05.04.2018, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2018FRÉTTIR HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Snögg og góð þjónusta Stafrænt prentaðir límmiðar á rúllum Vantar þig lítið upplag? Stafræn límmiðaprentun hentar vel fyrir minni upplög. Pappír, hvítt plast, glært plast og fl. þú velur! Sími 540 1818 | Skemmuvegi 4 | Kópavogi midaprent@midaprent.is | midaprent.is FERÐAFÉLAGI Aðbúnaður flugferðalanga hefur batnað svo um munar síðustu árin, bæði á flugvöllum og í sjálfum flug- vélunum. Tæknifyrirtækið Travel- Mate Robotics hefur nú stigið gríð- arstórt skref flugfarþegum til geðs því nú hefur litið dagsins ljós fyrsta snjallferðataskan, TravelMate. Taskan er ýmsum kostum gædd, en grunnhugmyndin að baki henni byggist á því að eigandi hennar þurfi ekki að draga hana með sér í ferða- lög, heldur fylgi hún í humátt á eftir honum. Að því er fram kemur á vefsíðu fyrirtækisins er taskan sú fyrsta í heiminum sem er að öllu leyti sjálf- keyrandi og kemst hún leiðar sinnar sjálf, hvort sem hún liggur á bakinu eða stendur upprétt. Gervigreind að baki tækninni Á vefsíðu TravelMate segir að taskan sé búin fullkomnum staðsetn- ingarbúnaði og forrituð með hjálp gervigreindar svo hún geti auðveld- lega skynjað umhverfi sitt í flug- stöðvum, en þar er oft mannmargt sem kunnugt er. Taskan er rafknúin, en rafhlaðan er utanáliggjandi og má hlaða með USB-tengi. Hafi farangur týnst á flugferða- lagi getur reynst ómögulegt að finna hann aftur sé hann ekki merktur. TravelMate leysir þennan vanda með staðsetningarbúnaðinum, en með upplýsingum úr GPS-kerfinu má finna ferðatöskuna auðveldlega. Töskunni eru gefnar skipanir með snjallforriti fyrir snjallsíma, snjallúr og spjaldtölvu og þar má einnig finna upplýsingar um staðsetningu. Fyrir þá sem hafa með sér mikinn farangur er taskan einnig búin snjallvigt. Einnig er hún þakin LED-ljósum sem gefa til kynna raf- hleðslu hennar á hverjum tíma. TravelMate fæst í þremur stærð- um og er minnsta gerðin sögð upp- fylla alla staðla um handfarangur. Sú stærsta hefur málin 75x31x52 cm. Minnsta gerð töskunnar kostar um 1.100 bandaríkjadali, sú í miðið kostar röska 1.300 dali og sú stærsta tæplega 1.500 dali. Gervigreind gerir töskunni kleift að fylgja eiganda sínum hvert fótmál. Ferðataska sem fylgir fast á hæla farþeganna samband. Þar þarf að hafa að- eins meira fyrir hversdags- legum hlutum eins og að hella upp á kaffið. Þetta er yndislegt svæði og bústaðurinn utan al- faraleiðar. Hvaða lögum myndirðu breyta ef þú værir einráð í einn dag? Ég myndi setja strangari skilyrði um athafnir og upp- byggingu á vatnsvernd- arsvæðum. SVIPMYND Inga Dóra Hrólfsdóttir, framkvæmdastjóri Veitna Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Inga Dóra bendir á að hitaveituvæðing höfuðborgarsvæðisins hafi spar- að mikinn útblástur koltvísýrings. Krefjandi verkefni eru fram und- an hjá Veitum og þarf Inga Dóra að tryggja að fyrirtækið geti haldið í við aukna eftirspurn eftir heitu og köldu vatni, rafmagni og fráveitum í vaxandi byggð. Hverjar eru stærstu áskoran- irnar í rekstrinum þessi miss- erin? Vatnsvernd er númer eitt, tvö og þrjú. Margir taka því sem sjálfsögðum hlut að vera alltaf með hreint vatn en það er alls ekki sjálfsagt og við viljum auka vitund um það. Við finnum líka vel fyrir auknum umsvifum í samfélaginu og erum að glíma við vaxtarverki vegna þeirra. Áhersl- an nú er þétting byggðar sem kallar á framkvæmdir á þegar byggðum svæðum sem geta vald- ið íbúum, fyrirtækjum og vegfar- endum ónæði. Hver var síðasta ráðstefnan sem þú sóttir? Hélt erindi á ársfundi Samorku um daginn um framlag orku- og veitufyrirtækja til loftslagsmála í fortíð, nútíð og framtíð. Það er gaman að hugsa til þess að hita- veituvæðingin var stærsta fram- lag Íslands til loftslagsmála og er t.d. hitaveituvæðing höfuðborg- arsvæðisins að spara útblástur koltvísýrings sem nemur þremur milljónum tonna á ári m.v. að húshitun væri með olíu. Hvaða hugsuður hefur haft mest áhrif á hvernig þú starf- ar? Held að ég nefni Dale Carne- gie hér. Þegar ég var nýskriðin út úr skóla og var að fóta mig á vinnumarkaðinum hjálpaði þessi aðferðafræði mér mikið og gerir í raun enn. Hvernig heldurðu þekkingu þinni við? Ráðstefnur og námskeið eru gulls ígildi og maður tekur alltaf eitthvað með sér frá þeim. Þekk- ing kemur líka með samvinnu með fróðu fólki og öll reynsla bætir í þekkingarbrunninn. Hugsarðu vel um heilsuna? Ég mætti hugsa betur um hana, en einhvern veginn hef ég komist í gegnum erfiðar margra daga göngur og gengið tugi kíló- metra með þyngdir á bakinu. Líklega hef ég farið það meira á seiglunni, þolinmæðinni og vilja- styrknum! Hvernig færðu orku og innblástur? Það geri ég í sumarbústaðn- um okkar í Tungudal í Fljótum. Þar er hvorki rafmagn né hita- veita þannig að maður kemst í allt annan gír og meira að segja stutt síðan þar komst á síma- NÁM: Stúdent frá Flensborg 1987; byggingarverkfræði frá HÍ 1993; MS frá Chalmers tekniska högskola í Gautaborg 1996. STÖRF: Hef starfað hjá Veitum og forverum hennar frá útskrift. Byrjaði hjá Hitaveitu Reykjavíkur árið 1996 og vann þá við þróun landupplýsingakerfis hitaveitunnar. Varð deildarstjóri þegar Orku- veita Reykjavíkur varð til við samruna Hitaveitu Reykjavíkur og Raf- magnsveitu Reykjavíkur. Hef gegnt ýmsum stjórnendastörfum inn- an fyrirtækisins sem deildar-, sviðs- eða framkvæmdastjóri. Varð framkvæmdastjóri Veitna þegar fyrirtækið var stofnað árið 2014. ÁHUGAMÁL: Samvera með fjölskyldunni í frítímanum er dýrmæt- ust af öllu. Syng í sönghópnum Spectrum sem gefur mér mikið og er skemmtilegur félagsskapur. Finnst yndislegt að ganga á fjöll og fara lengri ferðir með bakpoka. Almennt finnst mér gott að vera úti í náttúrunni hvort sem það er hérlendis eða erlendis. FJÖLSKYLDUHAGIR: Gift Axel Jónssyni og eru dæturnar fjórar talsins. HIN HLIÐIN LEIKFANGIÐ Skylmingar þykja mjög holl hreyf- ing, reyna bæði á liðleika, snerpu og úthald. Skemmir heldur ekki fyrir hvað skylmingar eru glæsileg íþrótt, og leyfa iðkendum að kom- ast í samband við sinn innri d‘Ar- tagnan á sama tíma og þeir stæla vöðvana og brenna fitu. En nú er sverðaframleiðandinn Leon Paul búinn að stíga merkilegt skref sem brúar bilið á milli hefð- bundinna ólympískra skylminga og vísindaskáldskapar. Um er að ræða n.k. geislasverð sem nota má til að skylmast á sama hátt og Svarthöfði og Logi geimgengill í Stjörnu- stríðsmyndunum. Sverðið samanstendur af hand- fangi úr áli og sterku „blaði“ úr hörðu og endingargóðu plasti. Inni í blaðinu eru ljósdíóður og hægt að stilla díóðurnar til að sýna tíu mis- munandi liti „svo að hæfi bardaga- stíl notandans“, eins og Leon Paul orðar það. Velja má 87 cm eða 57 cm langt blað og á rafhlaðan að duga fyrir 45-60 mínútna notkun. Sverðið kostar 179 pund, um 25.000 kr. í netverslun Leon Paul, og vita- skuld þarf að fjárfesta í skylm- ingagrímu og hlífðarbúnaði til að nota þetta ævintýralega æfingatæki á öruggan hátt. ai@mbl.is Haltu þér í formi með geislasverði Hleður rafhlöðurnar í sumarbústaðnum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.