Morgunblaðið - 05.04.2018, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.04.2018, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2018FÓLK Fréttir undanfarnar vikur af mik- illi gagnasöfnun Facebook og Google, hafa vakið bæði fólk og fyrirtæki til vitundar um hve miklu máli skiptir að fara varlega með persónuupplýsingar. Jón S. von Tetzchner, forstjóri Vivaldi sem gefur út samnefndan vafra, segir mega greina að við- horf almennings sé að breytast – og ekki seinna vænna. „Það átti sér stað hugarfars- breyting eftir hryðjuverkaárásir- nar í Bandaríkjunum í september 2001, og fólk fór að hugsa sem svo að nauðsynlegt væri að fórna gagnavernd til að gera heiminn öruggari. Smám saman hefur við- horfið tekið að breytast aftur til þess sem áður var, og fólk ekki aðeins orðið betur meðvitað um mikilvægi gagnaverndar heldur er söfnun gagna orðin svo um- fangsmikil að hún er orðin að nýju öryggisvandamáli,“ segir Jón. „Er skemmst að minnast fjargviðrisins í kringum Cam- bridge Analytica og hvernig það fyrirtæki hefur blandað sér inn í kosningar, og á vissan hátt vopnavætt netið með þeim gögn- um sem þar hafa verið gerð að- gengileg.“ Símar og tölvur sem njósna Jón segir allan þorra fólks ekki gera sér grein fyrir umfangi þeirrar gagnasöfnunar sem á sér stað. Hann bendir líka á að oft sé neytendum varla gefinn kostur á öðru en að leyfa fyrirtækjum að safna öllum þeim upplýsingum sem þau vilja. „Sá sem kaupir sér nýjan síma þarf oft að fallast á að gefa framleiðandanum símans alls kyns leyfi til gagnasöfnunar, ella geta hreinlega ekki notað símann. Oft eru skilmálar og leyfi líka þannig orðuð að venjulegur notandi skilur ekki hvað hann er að heimila fyrirtækjunum sem hann á í samskiptum við. Alls kyns forrit safna síðan upplýs- ingum langt umfram það sem nauðsynlegt getur talist, geyma þær miklu lengur en þörf er á, og gefa notendum litla eða enga möguleika á að fallast ekki á gagnaöflunina. Nú síðast ákvað Microsoft að gera það að sjálf- krafa stillingu í nýja Windwos 10 stýrikerfinu að það safni per- sónuupplýsingum um notandann, og undarlegt að það sé hægara sagt en gert fyrir neytendur að kaupa tölvu sem ekki njósnar um þá á einhvern hátt.“ Að mati Jóns er það líka áhyggjuefni hve mörg fyrirtæki virðast byggja viðskiptamódel sitt á öflun og sölu persónu- upplýsinga. Meðfram störfum sínum hjá Vivaldi fylgist Jón vandlega með sprotasamfélaginu og segir hann mörg ný fyrirtæki gera út á að nýta möguleika tækninnar til hins ýtrasta. „Einn áhugaverður sproti í Noregi not- ar blátannartækni til að fylgjast með ferðum fólks og safna gögn- um úr ýmsum áttum, og hefur þannig tekist að kortleggja líf og hegðun fólks þegar það er ekki á netinu,“ segir hann. „Nú þegar eru í notkun forrit sem nota hljóðnema snjallsímans til að vita t.d. hvar fólk er statt inni í versl- un og hvaða hillurekka það er að skoða, og svo að um leið er hægt að senda þeim auglýsingar í sím- ann fyrir vörur sem eru innan seilingar.“ Jón segir þjónustu sem byggist á gagnaöflun oft nýtast fólki á ýmsan hátt, en það ætti að vera hægt að gera sama gagn með mun minni gögnum, eða með því að geyma gögnin skemur. „Leið- söguforritið í símanum mínum gæti t.d. fylgst með því hversu hratt ég hreyfist í bílnum mínum á leiðinni á milli staða til að geta hjálpað öðrum notendum að átta sig á umferðarþunganum, en það eru ekki upplýsingar sem þarf að geyma í marga mánuði eða ár.“ Betri reglur myndu leysa vandann Bráðum tekur gildi ný Evrópu- reglugerð um meðferð persónu- upplýsinga og leggur hún enn ríkari skyldur á fyrirtæki og stofnanir um ábyrga öflun og geymslu persónuupplýsinga. Jóni þykir reglugerðin framfaraskref en að hún gangi ekki nógu langt. Hann segir að það þurfi þó ekki að vera flókið að laga það vanda- mál sem víðtæk gagnasöfnun hef- ur skapað. „Setja þarf reglur um að fyrirtæki megi ekki safna öðr- um gögnum en þeim sem þau þurfa á að halda til að veita sína þjónustu, að ekki megi blanda saman gögnum sem safnað hefur verið á ólíkum stöðum, og ekki selja upplýsingarnar,“ segir hann. „Fjölmörg fyrirtæki eru að safna ógrynni upplýsinga, og eyða þeim ekki. Á meðan þessum gögnum er safnað, og þau geymd, er alltaf hætta á að einhver geti brotið sér leið inn í tölvukerfi tæknirisanna og stolið þeim.“ Vivaldi hefur synt á móti straumn- um í tækniheiminum með því að bjóða upp á vafra sem ekki safn- ar gögnum um notandann. Í nýj- ustu uppfærslu Vivaldi var gerð sú breyting að leitarvélin Duck- DuckGo er sjálfkrafa valin sem leitarvél þegar notaður er svokall- aður „leynigluggi“ í vafranum (e. private browsing). „DuckDuckGo er vönduð leitarvél sem safnar ekki upplýsingum um notendur ólíkt t.d. Google. Það sem margir átta sig ekki á þegar þeir opna leyniglugga í öðrum vöfrum er að þó svo að vafrinn safni ekki upp- lýsingum um notandann á meðan veitir leyniglugginn aðeins tak- markaða vernd og vita t.d. Go- ogle eða Facebook um leið hver notandinn er ef hann skráir sig inn í kerfi þeirra í gegnum leyni- gluggann.“ Gögnum safnað við hvert fótspor Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Fólki er gert erfitt fyrir að meina fyrirtækjum að afla alls kyns persónuupplýs- inga í gegnum forrit og raf- tæki. Jón S. von Tetzchner segir nýja Evrópureglugerð ekki ganga nógu langt, en leysa megi vandann með nokkrum einföldum reglum. „Sá sem kaupir sér nýjan síma þarf oft að fallast á að gefa framleiðandanum símans alls kyns leyfi til gagnasöfn- unar, ella geta hreinlega ekki notað símann“ segir Jón von Tetzchner og segir það sama gilda um sumar tölvur. Leyniglugginn veitir falskt öryggi Sterkir í stálinu Skipastál • Lunningajárn • Bakjárn Kælirör • Fíber- og galvanhúðaðar ristar Svört- og ryðfrí rör og fittings Ál • Ryðfrítt stál • PVC plötur POM öxlar • PE plötur Lokar af ýmsum gerðum Opið virka daga kl. 8-17 Skútuvogi 4, Rvk Rauðhellu 2, Hafnarfirði Sími 568 6844 | ga@ga.is | ga.is 1.259.000 Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is Verð frá m. vsk Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Atvinnublað alla laugardaga Sendu pöntun á augl@mbl.is eða hafðu samband í síma 569-1100 Allar auglýsingar birtast bæði í Mogganum og ámbl.is ER ATVINNUAUGLÝSINGIN ÞÍN Á BESTA STAÐ?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.