Morgunblaðið - 05.04.2018, Síða 15
Nýsköpunar- og frumkvöðlanefnd Stúdenta-
félags Háskólans í Reykjavík stóð í liðinni viku
fyrir svokölluðu fiskabúrssamtali á Drukkstofu
Mjölnis. Tilgangurinn var að sýna sterkar fyrir-
myndir í frumkvöðlaheiminum á Íslandi og gera ung-
um konum grein fyrir þeim tækifærum sem felast í
nýsköpun. Fiskabúrið er röð af fimm stólum, frum-
mælendur skipa fjóra í upphafi og er ávallt einn auður
til að fundargestir geti tekið þátt í umræðunum.
Fiskabúr vekur athygli á
konum sem stunda nýsköpun
Elsa Ýr Bernhardsdóttir,
verkefnastjóri hjá Icelandic
Startups, var fundarstjóri.
Fundargestir fylgdust
með því sem fram fór.
Eydís Ósk hjá tölvuleikja-
fyrirtækinu Myrkri.
Ellen Ragnarsdóttir, stofnandi
Myshopover, og Sandra Mjöll Jóns-
dóttir, stofnandi Platome líftækni.
Fundargestur
skrifar spurn-
ingu á miða til
að afhenda
fundarstjóra.
Morgunblaðið/Eggert
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2018 15FÓLK
Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | sala@postdreifing.is | postdreifing.is
FJÖLPÓSTUR
SEM VIRKAR
*könnun Zenter apríl 2016.
61% landsmanna lesa fjölpóst
70% kvenna lesa fjölpóst
58% neytenda taka eftir tilboðum á
vöru og þjónustu í gegnum fjölpóst*
Dreifum sex daga vikunnar inn á 80.000 heimili
MARKHÓPURINN ÞINN BÍÐUR
EFTIR TILBOÐI FRÁ ÞÉR
Hafðu samband og við gerum þér tilboð í þá þjónustu sem þér hentar
Við erum í hjarta borgarinnar
að Þverholti 13. Komdu við í
kaffisopa eða sendu okkur
línu og óskaðu eftir tilboði í
prentverkið þitt, stórt eða
smátt.
MIÐBORGIN
FUNDUR
Oddi Kristján Geir Gunnarsson hefur verið ráðinn í starf
framkvæmdastjóra Odda prentunar og umbúða ehf. Í til-
kynningu frá fyrirtækinu kemur fram að nýlega hafi Gunnar
Sverrisson, fráfarandi framkvæmdastjóri fyrirtækisins,
óskað eftir því við stjórn að láta af störfum af persónu-
legum ástæðum. Mun hann tímabundið sinna sérstökum
verkefnum fyrir félagið, m.a. í tengslum við fasteignir þess.
Krsitján Geir var ráðinn til Odda árið 2016 sem sölu- og markaðsstjóri
fyrirtækisins. Hann er iðnrekstrarfræðingur að mennt með BS-gráðu í al-
þjóðamarkaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík og MBA-gráðu frá Við-
skiptaháskólanum í Kaupmannahöfn (CBS). Áður en Kristján hóf störf hjá
Odda var hann markaðsstjóri Nóa Síríuss og markaðsráðgjafi hjá Íslensku
auglýsingastofunni.
Nýr framkvæmdastjóri
VISTASKIPTI