Morgunblaðið - 17.04.2018, Side 12
12 | MORGUNBLAÐIÐ
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is • Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratuga
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Einnig getum við úvegað
startara og alternatora
í allskonar smávélar
frá Ameríku
Rafstilling ehf er sérhæft verkstæði
í alternator og startaraviðgerðum.
Við höfum áratuga reynslu í
viðgerðum fyrir einstaklinga
og fyrirtæki.
Verkstæðið er með öll nauðsynleg
tæki og tól til þessara verka.
Allir viðgerðir hlutir eru prófaðir í
prufubekk til að tryggja að allt sé
í lagi. Þeim er einnig skilað
hreinum og máluðum.
Sjaldan hefur ein bíómynd gert eins mikið
fyrir úraframleiðanda og kappakstursmyndin
Le Mans með Steve McQueen gerði fyrir TAG
Heuer, en bláa Monaco-úrið sem hann skart-
aði í myndinni varð samstundis að girndargrip
fyrir bílaáhugamenn og úradellukarla sömu-
leiðis. Nú hefur TAG Heuer sent frá sér sér-
staka útgáfu af úrinu í sömu litum og bíll
McQueen var í myndinni, en bíllinn var mál-
aður í hinum klassísku ljósbláu og appels-
ínugulu litum Gulf-olíuframleiðandans.
TAG Heuer Monaco var um margt sögulegt
úr þegar það kom á markaðinn, og ekki bara
af því svalasti maður veraldar gekk með það.
Úrið var fyrsta „chronograph“ úrið með sjálf-
trekkjandi gangverki sem kallaðist Caliber 11.
Í áðurnefndri bíómynd gekk McQueen um
með
blátt TAG Heuer Monaco 1133B Caliber 11
á hendinni en nýja úrið er sem fyrr segir í
sömu litum og Porsche 917 bíllinn sem hann
ók í myndinni.
Fyrir áhugasama má geta þess að verðið á
hátíðarútgáfunni er 5.900 Bandaríkjadalir, eða
um 583.000 íslenskar krónur.
jonagnar@mbl.is
50 ára afmælisúr fyrir þá sem kunna að meta bíla og úrverk
Nýja Monaco-úrið frá TAG Heuer í Gulf-
litunum er hreint ekkert slor og það er
verðmiðinn svosem ekki heldur.
Porsche 917 bíllinn sem Steve
McQueen ók um á fleygiferð í
hinni sígildu kappaksturs-
mynd Le Mans frá 1970.
Steve McQueen með TAG
Heuer Monaco 1133B Caliber
11 um úlnliðinn. Þar með var
framtíð úrsins tryggð.
TAG Heuer Monaco í
sérstakri Gulf-útgáfu