Morgunblaðið - 21.04.2018, Síða 11

Morgunblaðið - 21.04.2018, Síða 11
Morgunblaðið/Árni Sæberg Á ferð Moggahringurinn er árlegur viðburður keppnishjólreiðafólks Fyrsta fjallahjólamót ársins fer fram fimmtudaginn 26. apríl klukkan 18.00, en mótið er jafnframt fyrsta bikarmót sumarsins. Keppt verður í meistaraflokki karla og kvenna(elite), U23 og ungmennaflokki (junior). Þá verða einnig almenningsflokkur og U15 flokkur, en þeir telja ekki til stiga í bikarkeppninni. Brautin sem keppt er í er 6,8 km að lengd og fara keppendur 2 til 4 eftir flokki. Mótið er haldið af HFR í samvinnu við Morgunblaðið, en í lok keppni verður boðið upp á ljúfar veitingar. Um er að ræða sömu braut og undanfarin ár, en smávægilegar breytingar hafa þó verið gerðar frá því í fyrra til að tvista upp á hana. Brautarskoðun verður auglýst síðar. Sem bik- arkeppni er keppnin hluti af Íslands- bikarmóti Hjólreiðasambands Ís- lands, en auk Morgunblaðshringsins eru það fjallahjólamót Krónunnar í Öskjuhlíð 12. maí og KIA-hringurinn í Leirdal á Hólmsheiði 30. ágúst sem flokkast sem bikarmót. Í fyrra var það Ingvar Ómarsson sem fór með sigur af hólmi í karlaflokki og Haf- steinn Ægir Geirsson var í öðru sæti. Í kvennaflokki var Erla Sigurlaug Sig- urðardóttir hlutskörpust og Anna Kristín Pétursdóttir varð í öðru sæti. Mogga- hringurinn Brunandi Keppendur í Morgunblaðs- hringnum í fyrra. Um mánaðamótin hefst átakið Hjólaðu í vinnuna í 16. skipti, en á þátttökutölum má vel sjá hversu vel Íslendingar hafa tek- ið hjólreiðum undanfarin ár. Hrönn Guðmundsdóttir hjá ÍSÍ segir að fyrsta árið hafi 500 skráð sig til leiks og fólk var ekk- ert mikið að segja frá því. Núna eru allir aftur á móti komnir með hjóladellu. Á síðustu árum hafa virkir þátttakendur hins vegar verið á bilinu 5-7 þúsund og skráðir þátttakendur tals- vert fleiri. „Við höfum séð talsverða breytingu á hjólreiðamenningu síðan þetta hófst,“ segir Hrönn þó að hún vilji ekki eigna átak- inu einu og sér þá breytingu. Hún segir fjölgun hjólreiðafólks hins vegar hafa ýtt við sveitarfélögum um að fá betri hjólreiða- stíga, að stígar séu sópaðir og ruddir á veturna. „Sveit- arfélögin hafa fengið talsverðan þrýsting og tekið við sér.“ Hrönn segir hjólreiðar í og úr vinnu ekki bara vinsælar með- an átakið stendur yfir, enda sé talið að rúmlega þúsund manns hjóli í vinnu allt árið um kring. Fjöldinn sé svo margfaldur frá vori og fram á haust þegar betur viðrar til og stígar séu auðir. Fyrir þá sem búa það fjarri vinnustað að þeir sjá ekki fram á að komast alla leið til vinnu með því að nýta eigin orku er líka hægt að nýta almenningssamgöngur og er þá skráð sú vega- lengd sem gengin er eða hjóluð til og frá stoppistöð. Hjólaðu í vinnuna hefst 2. maí og stendur til 22. maí. Hægt er að skrá vinnustaði og þátttakendur til keppni á hjoladui- vinnuna.is. Haldið er utan um hvaða vinnustaðir standa sig best, bæði út frá kílómetrafjölda og hlutfallslegri þátttöku. Eru veitt verðlaun í átta fyrirtækjaflokkum og svo flokki sveit- arfélaga. Keppendur fóru úr 500 fyrsta árið í tæplega 7 þúsund í fyrra Morgunblaðið/Hari Hjólaðu í vinnuna Hjólað á stígum borgarinnar. LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2018 MORGUNBLAÐIÐ 11

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.