Morgunblaðið - 26.05.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.05.2018, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2018 tonhun.is Það vantar tónlistarkennara norður Tónlistarskóli Austur-Húnvetninga auglýsir eftir blásturshljóðfærakennara í fullt starf frá 1. ágúst, 2018. Starfið felst í kennslu á blásturshljóðfæri auk annarrar kennslu í samræmi við áhuga og reynslu kennarans. Starf tónlistarskólans er blómlegt, í góðum tengslum við grunnskólana á svæðinu; Húnavallaskóla, Blönduskóla og Höfðaskóla, en meirihluti kennslunnar er á skólatíma grunnskólanemenda. Hæfniskröfur: Tónlistarkennaramenntun eða haldgóð tónlistarmenntun sem nýtist í starfi. Laun: Samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og FÍH/FT. Umsóknarfrestur er til 5. júní nk. Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um. Um framtíðarstarf er að ræða. Nánari upplýsingar: Skarphéðinn Einarsson, skólastjóri í síma: 861 8850 eða á netfangið: tonhun@centrum.is. Umsóknir berist á netfangið tonhun@centrum.is eða hunavatnshreppur@hunavatnshreppur.is Bæði leitum við að starfsmanni í fullt starf og einnig fyrir tímabundin verkefni á næstu mánuðum. Mikilvægt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólapróf sem nýtist í starfi, nám á sviði fatahönnunar æskilegt • Reynsla af starfi við fatahönnun og framleiðslu á fatnaði áskilin • Mjög góð tölvuþekking og reynsla í notkun Illustrator og Excel áskilin • Áreiðanleiki, nákvæmni og hæfni til að vinna undir álagi • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð • Jákvæðni, þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum Umsókn og nánari upplýsingar má nálgast á alfred.is Helstu verkefni: Störf fatahönnuðar felast m.a. í hugmyndavinnu og rannsóknum fyrir nýjar vörur, gerð flatra teikninga og tækniskjala fyrir framleiðendur og samskiptum við birgja. Fyrirtækið Icewear Icewear er ört vaxandi smásölu- og heildsölufyrirtæki sem rekur í dag tólf verslanir undir eigin merkjum, auk vefverslunar. Icewear hannar og framleiðir heilar línur af útivistarfatnaði, ullarvörum og minjagripum fyrir bæði eigin verslanir og til heildsölu. Skrifstofur fyrirtækisins eru staðsettar í Hlíðasmára 12 í Kópavogi og starfsmenn eru um 200 talsins. Fyrirtækið er framsækið og hefur verið í hópi "fyrirmyndarfyrirtækja" landsins undanfarin ár. Fatahönnuður Vegna aukinna umsvifa leitum við hjá Icewear að hæfileikaríkum fatahönnuði í starf við hönnun og vöruþróun á fatnaði fyrir fatalínu fyrirtækisins. Lausar stöður hjá Listasafni Reykjavíkur Listasafn Reykjavíkur auglýsir lausar til umsóknar tvær stöður verkefnastjóra í deild sýninga og miðlunar. Um er að ræða störf í 50-100% starfshlutfalli. Verkefnastjórar starfa við miðlun og fræðslu um sýningar safnsins jafn til almennra safngesta, skólahópa og annarra hópa sem sækja safnið heim. Verkefnastjóri sér um og ber ábyrgð á skipulagi, mótun, þróun og vinnu við fræðslustarf í samráði við yfirmann og samstarfsfólk. Leitað er að öflugum einstaklingum sem eru tilbúnir til að starfa í kraftmiklum starfshópi. Leitað er að hugmynda- ríkum og jákvæðum einstaklingum sem hafa frumkvæði og metnað til að ná árangri í starfi og hafa víðtæka þekkingu á myndlist og hæfni til að miðla til ólíkra hópa. Helstu verkefni og ábyrgð: Í starfinu felst umsjón og ábyrgð á skipulagi, mótun, þróun og vinnu við fræðslu í safninu. Á meðal verkefna er skipulag og móttaka skólahópa og annarra hópa, leiðsagnir og önnur safnfræðsla fyrir almenna gesti safnsins, ábyrgð á gesta- stofum og upplýsingagjöf í safnhúsum. Verkefnisstjórar hafa umsjón með þróun og gerð fræðsluefnis, námskeiðahaldi og ýmsum viðburðum og samstarfsverkefnum auk þess sem þeir taka þátt í þróun og framkvæmd fræðsludagskrár safnsins. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun á framhaldsstigi á sviði safnsins; í myndlist, listfræði, safnafræði eða listasögu auk mennt- unar og/eða reynslu á sviði listkennslu eða listmiðlunar. • Reynsla á sviði safnastarfs. • Mjög góð þekking á íslenskri listasögu, góð þekking á íslenskri og alþjóðlegri samtímamyndlist. • Mjög góðir skipulags- og verkefnisstjórnunarhæfileikar. • Mjög góð samskiptafærni á íslensku og ensku og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti. • Færni og geta til að vinna undir álagi og sinna mörgum viðfangsefnum. • Færni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki. • Metnaður, frumkvæði, hugmyndaauðgi og sjálfstæði í starfi. Listasafn Reykjavíkur er lifandi og framsækinn vettvangur þar sem tækifæri gefst til að að kynnast fjölbreytileika myndlistar og öðlast dýpri skilning á sögulegu, félagslegu, menningarlegu og listrænu samhengi sköpunarverka listamanna. Safnið er til húsa á þremur stöðum í Reykjavík: í Hafnarhúsi, á Kjarvalsstöðum og í Ásmundarsafni við Sigtún. Nánar: Umsóknarfrestur er til og með 13. júní 2018. Launakjör eru skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélög. Nánari upplýsingar um veitir Markús Þór Andrésson, deildarstjóri sýninga og miðlunar, markus.thor.andresson@reykjavik.is, sími 411 6400. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um störfin á vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf. Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem við búum í. Reykjavíkur- borg vinnur gegn mismunun á vinnumarkaði og hvetur innflytjendur, fatlað fólk, hinsegin fólk og fólk á öllum aldri til að sækja um störf hjá borginni.  1 ATVINNA í boði hjá Kópavogsbæ Sjá nánar á kopavogur.is www.kopavogur.is/is/stjornsysla/um-okkur/laus-storf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.