Morgunblaðið - 26.05.2018, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 26.05.2018, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2018 MANNAUÐSSTJÓRI Upplýsingar veitir: Þórir Þorvarðarson, thorir@hagvangur.is Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf. Umsóknarfrestur er til og með 31. maí nk. SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700 Helstu verkþættir: • Ábyrgð á þróun og eftirfylgni starfsmannastefnu Reykjanesbæjar • Ábyrgð á helstu mannauðsferlum - þróun þeirra, innleiðingu, þjálfun og umbótum • Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur varðandi ráðningar, þjálfun, fræðslu og þróun starfsmanna • Aðkoma að launasetningu og málum er tengjast starfsmati • Þátttaka í stefnumótun fyrir sveitarfélagið í heild Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólapróf á sviði mannauðsmála, vinnusálfræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi • Yfirgripsmikil reynsla af mannauðsmálum • Þekking og/eða reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu • Reynsla og hæfni til að innleiða breytingar og stjórna þeim • Samskiptahæfni, frumkvæði, metnaður, sjálfstæði og skipulagshæfni Reykjanesbær er fimmta stærsta sveitarfélag á Íslandi með rúmlega 18.000 íbúa. Vöxtur sveitarfélagsins hefur verið fordæmalaus undanfarið og mikið um að vera meðal annars vegna aukinnar flugumferðar og uppbyggingar á Keflavíkurflugvelli. Spár gera ráð fyrir áframhaldandi miklum vexti. Það eru því spennandi og krefjandi tímar framundan. Við ráðningar er ávallt höfð hliðsjón af jafnréttisáætlun og starfsmannastefnu Reykjanesbæjar. Reykjanesbær óskar eftir metnaðarfullum og kraftmiklum einstaklingi í starf mannauðsstjóra. Mannauðsstjóri leiðir daglegan rekstur, uppbyggingu og þróun mannauðsmála í samstarfi við sviðsstjóra, deildarstjóra og forstöðumenn stofnana. Um er að ræða spennandi starf á miklum uppbyggingartímum. Starfið tilheyrir stjórnsýslusviði Reykjanesbæjar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.