Morgunblaðið - 31.05.2018, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.05.2018, Blaðsíða 1
NETVERSLUN FYLGJAVAXTARVERKIR Virðulegt veski fyrir vandláta vindlaunnendur. 4 Unnið í samvinnu við Kaup sjávarútvegsfyrirtækja á hvers kyns búnaði og veiðarfærum skila að líkindum um 1.500 störfum. 14 VIÐSKIPTA Sverrir Auðunsson, framkvæmdastjóri DHL, segir vöxt í netverslun síðastliðin tvö ár hafa ver mikla áskorun og vaxtarverkir fylgi. SKILA FJÖLDA STARFA ið 4 FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018 Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í. Íslandsbanki brúar bilið Íslandsbanki greiðslutryggir þá fjárhæð sem Brim mun þurfa að leggja út í tengslum við yfir- tökutilboð það sem fyrirtækið hefur gert til annarra hluthafa sjávar- útvegsfyrirtækisins HB Granda. Íslandsbanki er umsjónaraðili með yfirtökutilboðinu sem Brimi ber að gera öðrum hluthöfum í kjölfar þess að fyrirtækið keypti 34,01% hluta- fjár í HB Granda af Vogun hf. og Fiskveiðihlutafélaginu Venusi hf. 4. maí síðastliðinn. Kaupverð hlut- anna nam 21,7 milljörðum króna. Markaðurinn, fylgirit Frétta- blaðsins, greindi frá því að Lands- bankinn hefði fjármagnað kaup Brims á hlutnum í HB Granda en að heimildir blaðsins hermdu að bank- inn væri ekki tilbúinn til þess að lána frekari fjármuni til viðskipta með bréf í fyrirtækinu. Það réðist m.a. af því að lán bankans til Brims nálguðust verulega 25 prósent af eiginfjárgrunni bankans en þar liggur leyfilegt hámark sem Fjár- málaeftirlitið setur við áhættu- skuldbindingum útlánsstofnana. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hversu margir hluthafar í HB Granda hyggjast nýta sér yfirtöku- tilboðið sem Brim hefur nú þurft að gera. ViðskiptaMogginn hefur hins vegar heimildir fyrir því að stærstu eigendur félagsins, að Brimi undan- skildu, hafi nú þegar lýst því form- lega yfir að þeir hyggist ekki draga á hið lögbundna yfirtökutilboð. Það á m.a. við um Lífeyrissjóð verslunarmanna sem á 13,66% í fé- laginu, Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins sem fer með 12,72%, Gildi lífeyrissjóð sem á 8,62% og Birtu líf- eyrissjóð sem á 3,95%. Ekki hafa fengist upplýsingar um hvaða tryggingar Brim hf. leggur fram gagnvart greiðslutryggingu Ís- landsbanka í tengslum við yfir- tökutilboðið. Hins vegar er ljóst að þótt stærstu hluthafar félagsins hafi lýst því yfir að þeir hyggist ekki selja hluti sína geta verulegar skuldbindingar hlaðist upp ef stór hópur minni hluthafa, eða ein- hverjir í hópi 20 stærstu hluthafa ákveða að selja. Meðal stærstu hlut- hafa á skrá eru Arion banki og Landsbankinn. Á bak við þá eign- arhluti, sem nema ríflega 1% af út- gefnu hlutafé HB Granda, eru hins vegar framvirkir samningar og því geta bankastofnanirnar ekki skilyrt eignarhaldið á bréfunum, enda for- ræði yfir þeim í raun ekki í þeirra höndum. Ákveði 5% hluthafa, svo dæmi sé tekið, að losa um eign sína í félaginu í tengslum við yfirtökutilboðið, kall- ar það á að Íslandsbanki greiðslu- tryggi 3,2 milljarða króna. Þann 29. júní næstkomandi kemur svo í ljós hversu stór hluti eigenda HB Granda hyggst hverfa úr hluthafa- hópnum í kjölfar hinnar óvæntu innkomu Brims hf. í eigendahópinn. Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Íslandsbanki greiðslutryggir yfirtökutilboð það sem Brim hf. hefur gert í hlutafé HB Granda. Enn er óljóst hversu margir hluthafar hyggjast ganga að tilboðinu. Morgunblaðið/Styrmir Kári Enn liggur ekki ljóst fyrir hversu stór eignarhlutur Brims verður í HB Granda. Úrvalsvísitalan EUR/ISK 2.000 1.900 1.800 1.700 1.600 1.500 1.12.‘17 1.12.‘17 23.5.‘18 30.5.‘18 1.632,63 1.739,76 130 125 120 115 110 122,85 122,75 Forsvarsmenn Eimskipafélagsins standa í ströngu þessa dagana en Samkeppniseftirlitið hefur haft fyrir- tækið og lykilstjórnendur þess til rannsóknar í á fimmta ár vegna meints samráðs við Samskip og dótt- urfélög þeirra. Á sama tíma hefur gengi bréfa félagsins gefið verulega eftir og greiningaraðilar segja afkomu þess hafa verið undir væntingum allt frá því að það kom á markað. Í liðinni viku upphófst allsérstök at- burðarás þar sem fyrirtækinu var gert, að kröfu Fjármálaeftirlitsins, að senda ítrekun á afkomutilkynningu sem kynnt hafði verið markaðnum hinn 17. maí síðastliðinn, þar sem sér- staklega var áréttað að forstjóri fé- lagsins ásamt framkvæmdastjóra al- þjóðasviðs hefði nú stöðu sakbornings í rannsókn Samkeppn- iseftirlitsins. ViðskiptaMogginn skyggnist inn í málið á mið- opnu í dag. Gustar um óskabarn þjóðarinnar Lárus Karl Ingason Eimskipafélag Íslands hefur lækkað mikið í Kauphöllinni að undanförnu. Hlutabréf Eimskips hafa ekki verið ódýrari frá skrán- ingu 2012 og mörg spjót standa á félaginu. 8 Ólíkt evrunni hefur banda- ríkjadollarinn verið stór þátt- ur í utanríkisstefnu Banda- ríkjanna um árabil. Evran getur ekki keppt við dollar 10 Mest má hagnast á því að sinna efnuðustu viðskiptavin- unum en peningar streyma til svissneskra banka frá Asíu. Lex: Góðar horfur fyrir einkabanka 11

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.