Morgunblaðið - 31.05.2018, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018FÓLK
Reikna má með að banka- og fjár-
málaþjónusta muni taka miklum
breytingum á komandi árum og ára-
tugum. Framfarir í fjármálatækni
(e. fintech) hafa þegar orðið til þess
að auka samkeppni og vöruframboð,
neytendum til hagsbóta, og smám
saman hefur regluverkið greitt leið
frumkvöðla inn á þennan markað og
lækkað aðgangshindranir.
Sprotafyrirtækið Ekki banka er
ágætis dæmi um þessa þróun, og
gefur nafnið vísbendingu um hvern-
ig fjármálatækni kann að snúa hefð-
bundinni bankastarfsemi á haus.
„Við erum banki, en þó ekki banki,
og munum veita fjármálaþjónustu
með því að hjálpa fólki að velja bestu
lausnirnar og þjónusturnar sem eru
í boði á markaðinum, og á sem hag-
stæðustum kjörum,“ útskýrir Brynj-
ólfur Ægir Sævarsson, fram-
kvæmdastjóri og stofnandi
fyrirtækisins.
Ekki banka (www.ekkibanka.is)
tekur þátt í Startup Reykjavík við-
skiptahraðlinum í sumar. Brynjólfur
segir þjónustu Ekki banka m.a.
ganga út á það sem hann kallar „nú-
vitund í fjármálum“. „Við viljum
hjálpa fólki að skilja hvernig það
hagar fjármálum sínum, hvernig það
getur stýrt neyslu sinni, og látið
peningana vinna sem best fyrir sig.“
Sprotinn er enn á fyrstu stigum
og verður sumarið notað til að fín-
pússa þjónustuna, skipuleggja
markaðsmál og vonandi fá fjárfesta
að borðinu. Ætti fyrsta vara Ekki
banka að vera tilbúin á næsta ári
gangi allt samkvæmt áætlun.
Lipur með litla yfirbyggingu
Brynjólfur segir nýjar fjármála-
tæknilausnir þýða að fyrirtæki eins
og Ekki banka geta veitt við-
skiptavinum afmarkaða og
klæðskerasniðna bankaþjónustu,
eða gegnt hlutverki milliliðs án þess
að þurfa að hafa jafn stóra og dýra
yfirbyggingu og hefðbundinn banki.
„Þjónustan er einföld, örugg, en
kostar ekki of mikið,“ segir hann og
bendir á hvernig tiltölulega lítil fjár-
málatæknifyrirtæki geta verið lipur
og sveigjanleg og gripið tækifærin
hraðar og betur en stóru bankarnir.
„Það fylgir því verulegur kostnaður
að reka hefðbundinn banka með
fjölda starfsmanna, og uppfylla skil-
yrði eins og eiginfjárkröfur. Gömul
kerfi geta líka verið til trafala í
stórum fjármálafyrirtækjum og gert
þeim erfiðara um vik að þróa og
bjóða upp á nýjungar. Erfitt er fyrir
banka að halda mjög vel utan um
viðskiptasambönd sín og besta bæði
vöruþroún og kerfin sem reksturinn
hvílir á. Aftur á móti geta fyrirtæki
á borð við Ekki banka haldið betur
utan um viðskiptasambandið og
fundið þær vörur sem best falla að
þörfum hvers og eins viðskiptavin-
ar.“
Brynjólfur þekkir fjármálaheim-
inn vel og hefur fengið til liðs við sig
öflugan hóp af fólki. Sjálfur vann
hann hjá Landsbankanum í tólf ár,
fyrst sem útibússtjóri og síðar sem
förstöðumaður viðskiptaþróunar.
„Starfið kallaði m.a. á það að heim-
sækja ráðstefnur víða um heim en
þegar ég reyndi þar að komast að
því hvernig hlutirnir myndu breyt-
ast og hver framtíð banka- og fjár-
málaþjónustu myndi verða þá hafði
enginn svarið við því. Það sem menn
voru einna hræddastir um, og er að
koma í ljós að átti við rök að styðj-
ast, var að tekjur bankanna myndu
dragast saman í takt við aukna sam-
keppni og lægri þjónustugjöld,“ seg-
ir hann. „Við erum að sjá svipaða
þróun eiga sér stað í bankageiranum
og þegar hefur orðið í raforku, fjar-
skipta og fjölmiðlageurm þar sem
búið er að skilja í sundur bakenda og
framenda, og gefa neytendum val að
kaupa ólíka þjónustu og vörur frá
mismunandi aðilum. Rétt eins og við
getum í dag valið eigin sjónvarps-
dagskrá og fengið ráðleggingar um
sjónvarpsþætti sem falla að okkar
smekk, munum við hafa aðgang að
þeirri fjármálaþjónustu sem við
þurfum, án þess að vera sérfræð-
ingar í fjármálum. Þannig fáum við
neytendur aukna valmöguleika, auk-
ið vald og getum gert meira úr pen-
ingunum okkar.“
Morgunblaðið/Valli
Brynjólfur Ægir Sævarsson og Ásgeir Helgi Jóhannsson mynda hluta af Ekki
banka-teyminu. Fyrirhugað er að þjónustan muni fara í loftið á næsta ári.
Leggja drög að
bankabyltingu
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Hjá sprotanum Ekki banka
er verið að þróa nýja kyn-
slóð bankaþjónustu sem
aðlagar sig þörfum hvers
viðskiptavinar.
86
ÁRA
Starfsmannafatnaður
fyrir hótel og veitingahús
Hótelrúmföt og handklæði
fyrir ferðaþjónustuna
Eigum allt fyrir:
• Þjóninn
• Kokkinn
• Gestamóttökuna
• Þernuna
• Vikapiltinn
• Hótelstjórnandann
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | sími 525 8210 | eddaehf@eddaehf.is | www.eddaehf.is
Allt lín fyrir:
Hótelið • Gistiheimilið
Bændagistinguna • Airbnb
Veitingasalinn • Heilsulindina
Þvottahúsið • Sérverslunina
Samtök byggingar- og rekstr-
araðila stúdentahúsnæðis á
Norðurlöndunum, NSBO, ræddu
lykilatriði sem nauðsynleg eru fyrir
uppbyggingu stúdentasamfélags á
tveggja daga ráðstefnu í vikunni.
Deildu þekkingu um
stúdentahúsnæði
Fjölmargir
hlustuðu á erindi í
stofnun Vigdísar
Finnbogadóttur.
Morgunblaðið/Arnþór
Gró Einarsdóttir
var á meðal fyrir-
lesara.Hjálmar Árnason, fram-
kvæmdastjóri Keilis, var
meðal fundargesta.
RÁÐSTEFNA SPROTAR