Morgunblaðið - 31.05.2018, Side 8
Eimskip í ólgusjó
16. NÓVEMBER 2012
Eimskip skráð á
markað. Útboðs-
gengið er 208.
14. OKTÓBER 2014
Kastljós fjallar
ítarlega um innihald
kæru Samkeppn-
iseftirlitsins til ríkis-
saksóknara vegna
meints samráðs
Eimskipafélagsins og
Samskipa.
21. MARS 2014
Samkeppniseftirlitið
beinir kæru til
Embættis sérstaks
saksóknara vegna
ætlaðra brota gegn
samkeppnislögum.
17. OKTÓBER 2014
Samkeppniseftirlitið
beinir erindi til ríkis-
saksóknara vegna
lekans.
10. SEPTEMBER 2013
Húsleit í starfsstöðv-
um Samskipa og
Eimskips, Eimskips
Ísland, TVG Zimsen,
Landfl utninga og
Jóna Transport.
16. OKTÓBER 2014
Eimskip kærir lekann
til lögreglu. Sendir
FME og Kauphöll
ábendingu um
mögulegt lögbrot.
Sendir Samkeppnis-
eftirlitinu og Sérstök-
um saksóknara bréf
og krefst þess að fá
hin umræddu gögn
afhent.
4. JÚNÍ 2014
Önnur húsleit gerð
hjá félaginu.
18. OKTÓ
Ríkissa
segir í s
Morgun
vísbendin
refsivert b
um við ga
f
al
ti
í k
bo
0. JANÚAR 2018
Félagið sendir frá
sér afkomuviðvör-
un. EBITDA-spá
fyrir 2017 lækkuð um
hálfan milljarð.
17. MAÍ 2017
Félagið nær hæsta
gengi sínu í Kauphöll
Íslands eða 338,5.
8. MARS 2017
Fjármálaeftirlitið
sektar félagið um
50 milljónir vegna
þess að félagið sat á
innherjaupplýsingum
um bætta afkomu í
sex daga.
18. APRÍL 2018
Héraðsdómur
Reykjavíkur staðfestir
ákvörðun FME frá 8.
mars 2017.
22. NÓVEMBER 2017
Yucaipa lýsir því
yfi r að það skoði
möguleikann á því að
selja fjórðungs hlut
sinn í félaginu.
Stærstu hluthafar
Yucaipa 25,3%
Lífeyrissjóður
verslunarmanna 13,89%
LSR 8,39%
Gildi lífeyrissjóður 9,65%
Eimskipafélag Íslands hf. 6,68%
Stapi lífeyrissjóður 4,62%
Birta lífeyrissjóður 4,05%
rekja til ýmissa þátta og að afkoman sé einn af
þeim „Afkoman hefur ekki verið sú sem vænst
var. Vonir stóðu til að afkoma myndi batna tals-
vert með auknum innflutningi.“ Hann segir einn-
ig að nú, á toppi hagsveiflunnar, sé afkoman hins
vegar heldur lakari en væntingar stóðu til um.
„Fjárfestingar félagsins, m.a. flutningsmiðlun
erlendis virðast þó hafa lukkast vel. Fyrirtækið
hefur vaxið talsvert erlendis og það hefur verið
mjög vel fjármagnað, á tímabili jafnvel fullvel
fjármagnið, en sú staða hefur auðvitað á sama
tíma gert því kleift að ráðast í þessar fjárfest-
ingar.“
Fleira hefur mögulega haft áhrif á stöðu fé-
lagsins á markaði að undanförnu. Þannig lýsti
stærsti hluthafi fyrirtækisins, Yucaipa, því yfir í
lok síðasta árs að það kannaði möguleikann á því
að losa um fjórðungshlut sinn í Eimskipafélag-
inu. Heimildir ViðskiptaMoggans herma að
hvorki hafi gengið né rekið í þreifingum í þá
veru. Helst hafi verið leitað til innlendra fjárfesta
sem ekki hafi stokkið til. Þá á félagið í deilu við
skattayfirvöld um álagningu tekjuskatts sem fé-
lagið hefur verið krafið um vegna umsvifa sinna í
erlendum dótturfélögum sem halda utan um
skipakost félagsins. Tapi félagið því máli fyrir yf-
irskattanefnd mun það þurfa að gjaldfæra 5,4
milljónir evra, jafnvirði 662 milljóna króna, í
bækur sínar.
Gengið á ýmsu frá skráningu
Líkt og átti við um mörg stórfyrirtæki hér á
landi þurfti Eimskipafélagið að ganga í gegnum
verulega endurskipulagningu í kjölfar banka-
hrunsins 2008. Í kjölfar þeirrar hreingerningar
áttu skilanefnd Landsbankans og fjárfesting-
arsjóðurinn Yucaipa um 70% hlutafjár í félaginu.
Þessir aðilar lýstu því yfir í árslok 2011 að þeir
hygðust koma félaginu að nýju á markað. Var sú
ákvörðun skýrt merki um að endurreisa ætti al-
mennan hlutabréfamarkað í landinu.
Tæpum 12 mánuðum síðar var félagið komið á
markað en skráningarferlið gekk ekki þrauta-
laust fyrir sig. Þegar skammt var í útboð, sem
fylgdi skráningunni, var tilkynnt að stjórn Eim-
skipafélagsins hefði aukið við kauprétti lykil-
stjórnenda og í því fólst að þeir fengu rétt til að
Á undanförnum vikum hefur gustað nokkuð um
Eimskipafélagið. Það er ekki ný staða fyrir hið
fornfræga félag sem lengi hefur haft sérstakan
sess í íslensku viðskiptalífi, sökum mikilvægis
þess fyrir flutninga til og frá landinu. En gust-
urinn sem um það leikur nú er af nokkuð öðrum
toga en oft áður. Birtingarmyndin er lækkandi
verð á bréfum félagsins og þá virðist stjórn-
endum þess hafa verið mislagðar hendur þegar
kemur að upplýsingagjöf til markaðarins. Um
það vitna tilkynningar til Kauphallar Íslands en
einnig nýleg stjórnvaldssekt upp á 50 milljónir
króna. Þá segja viðmælendur ViðskiptaMoggans
að í þeim efnum kunni að heyra til nýrra tíðinda á
næstunni.
Gengi félagsins stendur nú í 188 og hefur aldr-
ei reynst lægra frá því að félaginu var hleypt að
nýju af stokkum Kauphallarinnar. Það er ríflega
9% lægra en þegar bréf félagsins voru skráð á
markað í apríl 2012. En gengið hefur ekki staðið
kyrrt á þessum tíma. Þannig reis gengið hæst 17.
maí í fyrra og stóð þá í 338,5. Virði félagsins hef-
ur því rýrnað um 44% frá því er best lét fyrir
rúmu ári, til dagsins í dag. Félagið er í dag metið
á 37,6 milljarða króna. Stefán Broddi Guð-
jónsson, forstöðumaður greiningardeildar Arion
banka segir að lækkandi gengi félagsins megi
kaupa 0,88% hlut í félaginu til viðbótar við 3,5%
hlut sem þeir höfðu þá þegar samið um. Á þess-
um tíma var heildarvirði kaupréttanna metið 1,9
milljarðar króna. Þegar þetta spurðist út fór
nokkur skjálfti um markaðinn en þó einkum
vegna þess að Harpa Ólafsdóttir, stjórnar-
formaður Gildis, þriðja stærsta lífeyrissjóðs
landsins, gekk fram fyrir skjöldu og gagrýndi
ákvörðunina harkalega. Lét hún reyndar ekki
þar við sitja heldur lýsti því einnig yfir að sjóð-
urinn teldi gengið á bréfunum í útboðinu of hátt.
En Gildi var ekki eitt um að gagnrýna ákvörð-
unina. Þannig tóku Lífeyrissjóður starfsmanna
ríkisins og Festi heldur ekki þátt af sömu ástæð-
um. Hver sem ástæðan fyrir því var féllu for-
svarsmenn Eimskipafélagsins frá öllum kaup-
réttum til handa stjórnendum fyrirtækisins og
má telja víst að það hafi verið gert til að friða
hina umsvifamiklu fjárfesta. Það hefur gengið
eftir enda Gildi, LSR og Festa í dag meðal
stærstu hluthafa.
Stormurinn skellur á skipafélögunum
Í fyrrnefndu útboði var gengi bréfa félagsins
208. Þrátt fyrir hnútukast lífeyrissjóðanna í að-
draganda skráningar fékk Eimskipafélagið byr í
seglin á fyrri hluta árs 2013. Í byrjun apríl höfðu
bréfin hækkað um 35% frá skráningu og hýrnaði
þá mjög yfir þeim sem héldu á hlut í félaginu. En
Adam var ekki lengi í Paradís og í ágúst og sept-
ember lækkaði gengið skarpt.
Þegar niðursveiflan var orðin veruleg dundi
annað áfall á félaginu. Með úrskurði frá Héraðs-
dómi Reykjavíkur réðist Samkeppniseftirlitið í
umfangsmikla húsleit hjá Eimskipafélaginu og
Samskipum. Náði húsleitin einnig til dótt-
urfélaga þeirra, Eimskip Ísland ehf, TVG Zim-
sen ehf., Landflutninga og Jóna Transport.
Byggði heimildin á grun um að 10. og 11. grein
Samkeppnislaga hefðu verið brotnar en þær
varða bann við samstilltum aðgerðum sem hafa
að markmiði eða að af þeim leiðir að komið sé í
veg fyrir samkeppni og bann við misnotkun eins
eða fleiri fyrirtækja á markaðsráðandi stöðu.
Allt frá upphafi rannsóknarinnar og til dagsins
í dag hafa stjórnendur Eimskips kvartað undan
skorti á upplýsingum um húsleitina og grundvöll
hennar. Þannig neitaði félagið að tjá sig við fjöl-
miðla strax í kjölfar húsleitarinnar vegna þess að
upplýsingar væru af skornum skammti. Sú af-
staða hefur enn í dag verið lögð til grundvallar
þegar félagið tjáir sig um málareksturinn. Hins
vegar hefur félaginu orðið ágengt í upplýs-
ingaöflun og þannig kvað áfrýjunarnefnd sam-
keppnismála m.a. upp úrskurð í ársbyrjun 2014
þar sem ógilt var ákvörðun Samkeppniseftirlits-
ins sjálfs um að synja félaginu um aðgang að
gögnum sem lágu til grundvallar fyrrnefndri
húsleit. Var stofnuninni gert að endurskoða þá
niðurstöðu sína. Hefur reiptogið milli stofnunar-
innar og Eimskips haldið áfram síðan og m.a.
felldi áfrýjunarnefndin nýjan úrskurð 25. sept-
ember 2014 þar sem Samkeppniseftirlitinu var
gert að afhenda Eimskipafélaginu ákveðin gögn
er vörðuðu húsleitarheimildina sem byggt var á
10. september 2013 og reifun málsatvika sem
fylgdi þeirri kröfu sem lögð var fyrir héraðsdóm.
Leki sem enn er til rannsóknar
„Risarnir tveir á íslenskum flutningamarkaði
hafa valdið almenningi og atvinnulífi miklum
fjárhagslegum skaða með ólöglegu samráði að
mati Samkeppniseftirlitsins sem kært hefur 11
starfsmenn Eimskips og Samskipa til sérstaks
saksóknara fyrir þátt þeirra í meintum brotum.“
Með þessum orðum hófst Kastljósþáttur í Rík-
issjónvarpinu að kvöldi 14. október 2014. Þátt-
urinn átti eftir að draga dilk á eftir sér. Ljóst var
af þeim gögnum sem þar voru birt að upplýs-
ingum um kæru sem Samkeppniseftirlitið hafði
beint til saksóknara hafði verið lekið og að hann
hefði annaðhvort komið frá sérstökum saksókn-
ara eða Samkeppniseftirlitinu.
Kölluðu forsvarsmenn Eimskipafélagsins eftir
því að rannsókn færi fram á þessum leka, enda
vörðuðu þau gögn sem þeir hefðu ekki haft vitn-
eskju um en vörðuðu málaferli gegn þeim og
hefðu mikil áhrif á orðspor þeirra og fyrirtækis-
ins sem þeir stýrðu. Þá kom einnig fram, þremur
dögum síðar, að Samkeppniseftirlitið hefði beint
erindi til ríkissaksóknara þar sem farið var fram
á opinbera rannsókn á því hvaðan trúnaðar-
upplýsingarnar hefðu komið. Hinn 18. október
sendi svo Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Eimskipafélag Íslands siglir krappa
báru í Kauphöll Íslands um þessar
mundir. Þannig hafa bréf félagsins
ekki verið jafn lágt skráð frá því að
félagið kom á markað í apríl 2012.
Á sama tíma og gengi félagsins hef-
ur lækkað skarpt eru stjórnendur
þess gagnrýndir fyrir upplýsingagjöf
til markaðarins. Tengist sú gagnrýni
m.a. rannsókn Samkeppniseftirlits-
ins á meintu samráði Eimskipa-
félagsins og Samskipa. Rann-
sóknin hefur staðið frá árinu 2013.
8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018FRÉTTASKÝRING