Morgunblaðið - 26.05.2018, Qupperneq 1
LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2018
ÍÞRÓTTIR
Golf Morgunblaðið ræðir við Anniku Sörenstam frá Svíþjóð sem er á leið til Íslands. Sörenstam var valin
íþróttakona ársins í heiminum þrjú ár í röð hjá AP-fréttastofunni fyrir afrek sín á golfvellinum. 2-3
Íþróttir
mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Best Ester Óskarsdóttir var í lykilhlutverki hjá ÍBV sem féll út í undan-
úrslitum í bæði Íslandsmótinu og bikarkeppninni.
Selfyssingurinn Elvar Örn Jóns-
son og Eyjakonan Ester Ósk-
arsdóttir voru í gærkvöld útnefnd
bestu leikmenn Íslandsmótsins í
handknattleik 2017-2018 og heiðr-
uð fyrir það á lokahófi HSÍ sem
fram fór í Gullhömrum í Reykja-
vík.
Elvar varð efstur í kosningu á
besta leikmanninum en Björgvin
Páll Gústavsson markvörður
Hauka varð annar og Einar Rafn
Eiðsson úr FH þriðji.
Ester vann kosninguna í
kvennaflokki en Framararnir Þór-
ey Rósa Stefánsdóttir og Guðrún
Ósk Maríasdóttir urðu í öðru og
þriðja sæti.
Haukur Þrastarson frá Selfossi
var valinn efnilegasti leikmaður
Olísdeildar karla og Berta Rut
Harðardóttir Haukum efnilegust í
Olísdeild kvenna.
Theodór Sigurbjörnsson úr ÍBV
fékk Valdimarsbikarinn sem mikil-
vægasti leikmaður Olísdeildar
karla og Ester Óskarsdóttir úr
ÍBV fékk Sigríðarbikarinn sem
mikilvægust í Olísdeild kvenna en
þar eru það þjálfararnir sem
kjósa, ekki leikmennirnir eins og í
kjörinu á þeim bestu og efnileg-
ustu.
Patrekur Jóhannesson frá Sel-
fossi var valinn besti þjálfarinn í
Olísdeild karla og Ágúst Þór Jó-
hannsson úr Val var valinn besti
þjálfarinn í Olísdeild kvenna.
Í 1. deild karla var Kristófer
Dagur Sigurðsson úr HK besti
leikmaðurinn, Dagur Gautason úr
KA sá efnilegasti og Sverre Jak-
obsson úr Akureyri var valinn
besti þjálfarinn.
Í 1. deild kvenna var Martha
Hermannsdóttir úr KA/Þór valin
besti leikmaðurinn og Þóra María
Sigurjónsdóttir úr Aftureldingu sú
efnilegasta. Þjálfari ársins í 1.
deild kvenna var valinn var valinn
Jónatan Þór Magnússon úr KA/
Þór. vs@mbl.is
Elvar og Ester best í vetur
Haukur og Berta Rut efnilegust Patrekur og Ágúst bestu þjálfararnir
Morgunblaðið/Hari
Bestur Elvar Örn Jónsson var í lykilhlutverki hjá Selfyssingum sem féllu út
í undanúrslitum í bæði Íslandsmótinu og bikarkeppninni.
Valencia, lið
Tryggva Snæs
Hlinasonar, mun
mæta Gran Can-
aria í úr-
slitakeppninni í
spænsku ACB-
deildinni í körfu-
knattleik. Val-
encia hafnaði í 4.
sæti en GC í 5.
sæti og á Val-
encia því heimaleikjaréttinn í 8-liða
úrslitunum. Fyrsti leikur liðanna
verður á mánudagskvöld.
Úrslitakeppnin er með sambæri-
legu sniði og hér heima. Valencia
varð spænskur meistari í fyrra
býsna óvænt. Tryggvi er á sínu
fyrsta ári í atvinnumennsku og fet-
ar í fótspor Jóns Arnórs Stef-
ánssonar sem er eini Íslending-
urinn sem leikið hefur í
úrslitakeppninni á Spáni. Komst
hann tvívegis í undanúrslit með
Unicaja Málaga annars vegar og
Valencia hins vegar. kris@mbl.is
Úrslitakeppni
framundan
hjá Tryggva
Tryggvi Snær
Hlinason
Nýliðarnir úr körfuboltabænum
Njarðvík halda áfram að koma á
óvart í upphafi Inkasso-deildar karla
í knattspyrnu. Njarðvík náði í stig
gegn ÍA á Akranesi í gær og er með
50% árangur eftir fjóra leiki. Liðin
gerðu 2:2 jafntefli en Magnús Þór
Magnússon gerði jöfnunarmark
Njarðvíkur á 86. mínútu.
Víkingur Ólafsvík sem féll úr efstu
deild síðasta haust eins og ÍA náði í
þrjú stig á Ásvelli með 1:0 sigri.
Ingibergur Sigurðsson skoraði eina
mark leiksins.
ÍA er með 10 stig á toppnum eins
og HK en Víkingur er með 7 stig,
Njarðvík 5 stig og Haukar 4 stig.
Nánar um leikina á mbl.is.
Náðu í stig á Skaganum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mættur Pape Mamadou Faye lék sinn fyrsta leik með Víkingi í sumar.
yfir í Laugardalnum en þar eigast
við 6 erlend lið, ásamt þeim ís-
lensku.
Úrslitaleikurinn á mótinu er á
morgun klukkan 19.00 en þar á
undan fer fram góðgerðarleikur
Mjölnis og 101 Granda klukkan
18.15.
johanningi@mbl.is
Leikurinn um Íslandsmeistaratit-
ilinn í sundknattleik fór fram í
Laugardalslaug í gær. Lið SH og lið
Ármanns kepptust um gullið en svo
fór að Ármenningar stóðu uppi sem
sigurvegarar eftir hörkuspennandi
leik, 8:7.
Leikurinn var hluti af alþjóðlegu
sundknattleiksmóti sem stendur nú
Ármann Íslandsmeistari
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Barningur Frá úrslitaleiknum í Laugardalslauginni í gær.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, at-
vinnukylfingur úr Golfklúbbi
Reykjavíkur, varð vafalaust fyrir
miklum vonbrigðum í Michigan-ríki
í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Hún
var langt komin með annan hring-
inn á Volvik-meistaramótinu á
LPGA-mótaröðinni.
Ólafía var undir parinu á fyrsta
hringnum og lék þá á 71 höggi.
Þegar hún hafði leikið 33 holur í
mótinu í gær virtist hún í góðum
málum. Var aftur á höggi undir
pari eftir fimmtán holur á öðrum
hringnum og samtals á tveimur
undir pari í mótinu.
Búist var við því að leika þyrfti á
parinu samtals til að komast í gegn-
um niðurskurð keppenda fyrir
helgina.
Þá kom skolli hjá Ólafíu og á
næstsíðustu holunni fór eitthvað úr-
skeiðis. Þar fékk Ólafía sjö högg á
par 4 holu og var skyndilega komin
tvö högg yfir parið samanlagt áður
en hún fékk par á síðustu holuna.
Ólafía Þórunn hóf leik á 10. teig í
gær og holan sem fór svona illa með
hana var því sú áttunda á vellinum.
kris@mbl.is
Ein hola
breytti öllu
AFP
Súrt Sú næstsíðasta fór illa með Ólafíu.