Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.05.2018, Síða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.05.2018, Síða 2
Hvernig tilfinning var að vinna Söngkeppni framhaldsskólanna? Mjög góð. Pínu skrítið eiginlega. Ég kann varla að lýsa því. Varstu sigurviss? Nei, alls ekki. Ég var búinn að pakka niður gítarnum. Þess vegna var ég svo lengi að koma mér upp á sviðið þegar tilkynnt var að ég hefði unnið. Varstu búinn að sjá einhverja sem þú hélst að myndu vinna? Já, ég man ekki frá hvaða skólum en ég var búinn að búa til topp-þrjú-lista og ég var ekki á honum. Þannig að ég var mjög hissa á að vinna keppnina. Ertu búinn að vera í tónlist frá blautu barnsbeini? Já, ég var að læra á píanó á yngsta stigi. Svo fékk ég leiða á því og fór yfir í gítarinn. Svo varð ég leiður á því og er kominn yfir í sönginn. Ég er samt ekki að læra söng. Er þá söngurinn núna í forgangi? Já, klárlega. Eru allir í fjölskyldunni í tónlist? Já, eiginlega. Stjúppabbi minn er organisti hér á Akureyri og er mjög mikill tónlistarmaður. Hann heitir Eyþór Ingi, ekki með síða hárið. Mamma er söngkona og pabbi hlustar mjög mikið á tónlist þannig að ég hef verið í kringum tónlist alla tíð. Hvaða tónlistarmaður er í uppáhaldi? Ed Sheeran, allt við hann heillar mig. Hann er hógvær þótt hann sé stórstjarna og svo gerir hann rosalega góð lög í mínum tónlistarstíl. Ætlarðu að leggja tónlistina fyrir þig? Já, ég ætla að halda áfram endalaust vonandi. Ljósmynd/Eyþór Ingi Jónsson BIRKIR BLÆR ÓÐINSSON SITUR FYRIR SVÖRUM Var búinn að pakka niður gítarnum Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.5. 2018 Ritstjórn Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Og það eru ekki margir kostir á því að heyra í lóunni þessa dagana.Georg Magnússon, tæknimeistari hér á útvarpinu, brá sér í gervilóunnar og flautaði lóusöng fyrir okkur,“ varð Brodda Brodda- syni að orði í hádegisfréttum RÚV á föstudag, í lok fréttflutnings af tíð- inni, þar sem lóunni hafði verið ætlað það hlutverk að kveða undir. Þetta var vel leyst, Georg er ákjósan- legur í þetta hlutverk lóunnar ef það þarf áfram að grípa til þeirra ráða að stæla söng hennar. Ef Broddi hefði ekki fært þetta sér- staklega í tal hefði enginn komið því heim og saman að þarna söng homo sapiens. En þegar Ríkisútvarpið þarf að láta leiklesa lóuna hlýtur lóan að vera týnd, eða það sem verra er, farin. Því hún kom vissulega. Hún sást heldur þreytuleg eftir langt flug fyrir um mánuði, 28. mars, fyrir sunnan Selfoss. Hún var þar á flugi sunnan við hús Haralds Ólasonar fuglaáhugamanns, en mér er spurn; hefur einhver séð hana síðan? Og ef einhver telur sig hafa séð hana, er viðkomandi alveg örugglega handviss um að um heiðlóu hafi verið að ræða? Þekkja þessir, sem tilkynna lóurnar til fjölmiðla, þennan fugl eitthvað eins og börnin sín? Ég velti þessu bara svona fyrir mér. Hvort hér sé þöggun í gangi. Getur verið að vorboðinn okkar, dauðþreyttur eftir langt flug hafi ákveðið að athuga með Færeyjar í staðinn. Lóan er hraðfleyg og væri ekki svo lengi að skjótast þangað. Í Þórshöfn er 9 stiga hiti og snjólaust. Já, takk – myndi ég og pottþétt lóan líka segja og þiggja þann kaupauka. Einhverjir segjast bara ekkert ætla að láta veðrið á sig fá, ætla að kaupa kók og pylsu í Tryggvagötunni á stuttermabolnum og ís á Ingólfs- torgi á eftir. Hlusta á falsaðan lóusöng og slá snjó. Ég sem er svo ofsalega jákvæð og glöð að upplagi ætla að taka annan snúning og finna gleðina í að byrja aftur að gefa í skóinn. Morgunblaðið/Ómar Lóan er farin Pistill Júlía Margrét Al- exandersdóttir julia@mbl.is ’Þegar Ríkisútvarpiðþarf að láta leiklesalóuna hlýtur lóan er aðvera týnd, eða það sem verra er, farin. Því hún kom vissulega. Ingibjörg María Jónsdóttir Ég hef alveg trú á því að lagið komist áfram en ég held að það verði tæpt. SPURNING DAGSINS Heldurðu að Ísland komist áfram í undan- úrslitum Eurovision? Ármann Örn Guðbjörnsson Nei. Mér finnst lagið ekki nógu gott. Gunnar Bjarki Baldvinsson Já, ég hef trú á því. Góður söngvari, góð rödd og nær örugglega til margra. Eydís Torshamar Ég held ekki, þrátt fyrir að hann syngi ægilega vel og lagið sé fínt. Það eru svo mörg önnur lög sem maður man betur eftir. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Eggert Jóhannesson Birkir Blær Óðinsson, 18 ára nemandi Menntaskólans á Akureyri, sigraði í Söngkeppni framhaldsskólanna um síðustu helgi. Hann söng lagið I put a spell on you. Hann hyggst leggja tónlist fyrir sig að loknu menntaskólanámi.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.