Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.05.2018, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.5. 2018
Geta bragðlaukarnir lært?
Ég er búin að ganga með þessahugmynd í maganum í tíu ár,“segir dr. Anna Sigríður Ólafs-
dóttir, prófessor í næringarfræði, um
doktorsverkefni í heilsueflingu sem
Sigrún Þorsteinsdóttir vinnur nú að
undir hennar handleiðslu um mat-
vendni bara og lausnir við þeim
vanda. Hluti af rannsókninni er að fá
foreldra til að taka þátt í sérstökum
námskeiðum með matvöndum börn-
um sínum til að þjálfa bragðlaukana.
„Þegar ég talaði um næringu
barna á fyrirlestrum og í hópum fékk
ég nær alltaf spurninguna: Hvað á ég
að gera við matvanda barnið? Það var
augljós þörf á að svara þessu. Annars
vegar að athuga hvort það skipti ein-
hverju máli að barnið væri matvant
og hins vegar athuga hvort það væri
eitthvað hægt að gera við því,“ segir
Anna Sigga, en leitast er við því að
svara hvorutveggja í rannsókninni.
„Ein ástæða matvendni er nýfælni,
sem er algeng, sem þýðir að þú forð-
ast hið óþekkta. Svo er það í eðli okk-
ar að borða allt sem er sætt. Móður-
mjólkin er sæt. Beiska bragðið og
annað bragð þarf að læra. Mjög mörg
börn eru matvönd á aldrinum tveggja
til sex ára en svo eiga þau að vaxa upp
úr því. En við þekkjum að það gerist
ekki alltaf. Og þá er gott að finna út
hverjar ástæðurnar eru.“
Máltíðum getur fylgt kvíði
Fyrsti hluti rannsóknarinnar er að fá
foreldra til að svara spurningalista
um matarvenjur barna sinna. „Við
höfum sérstaklega áhuga á að skoða
eðli matvendni og hvort eða hversu
mikil áhrif hún hafi á fæðuvalið. Það
er heldur ekki endilega allt mat-
vendni sem foreldrar myndu flokka á
þann veg. Við viljum átta okkur á
hvort upplifunin sé eins á meðal
barna almennt og hjá börnum með
taugaþroskaraskanir, eins og ein-
hverfu og ADHD sem við skoðum
sérstaklega,“ segir Anna Sigga. „Það
er mjög þekkt hjá einhverfum að tak-
markanir í fæðuvali séu miklar og
vaxi alls ekki af einstaklingunum og
háir þeim þá líka félagslega, því mat-
ur er svo stór hluti af lífi okkar. Mál-
tíðum getur fylgt kvíði ef erfiðleikar
eru í samskiptum í kringum þær.
Þarna kemur Sigrún sterk inn.“
Sigrún Þorsteinsdóttir er barna-
sálfræðingur að mennt og doktors-
nemi í heilsueflingu. Báðar hafa þær
reynslu af bragðlaukaþjálfun barna í
gegnum störf sín fyrir offituteymi
Barnaspítala Hringsins.
„Við höfum prófað bragðlauka-
þjálfun á hópanámskeiðum þar og
það hefur verið ótrúlega skemmti-
legt. Krakkarnir hafa sagt að þau ætli
alls ekki að borða salatið, en svo end-
ar með því að það er slegist um það,“
segir Sigrún.
„Þetta snýst fyrst og fremst um
vellíðan. Við viljum draga úr nýfælni
og kvíða tengdum mat og gerum það
með bragðlaukaþjálfun, sem er al-
hliða skynþjálfun. Þetta snýst því líka
um að snerta, þefa, horfa og hlusta á
matinn. Bragðið sjálft er oft bara brot
af upplifuninni. Áferðarfælni er til
dæmis mjög algeng. Við erum að
vinna í að nálgast matvælin með öll-
um skynfærum,“ segir Anna Sigga.
„Það sem er líka svo skemmtilegt
við þetta verkefni er þverfaglega
nálgunin og við finnum fyrir miklum
áhuga bæði úr heilbrigðis- og
menntageiranum. Mér finnst áhuga-
verðast að skoða það sem snýr að vel-
líðan og kvíða í tengslum við máltíðir,
og streituna sem getur myndast í
kringum máltíðir ef börn vilja ekki
allan mat. Við vitum að það er gríð-
arlega mikil streita við matborðið hjá
mörgum fjölskyldum sem eiga barn
með taugaþroskaraskanir,“ segir Sig-
rún. „Þetta getur endað með látum
eða tárum.“
Leikið með matinn
Eftir að spurningalistar eru komnir í
hús verður boðið upp á námskeið til
þess að vinna með börnum og for-
eldrum þeirra. Fyrstu námskeiðin
verða í haust og standa yfir allan
næsta vetur en hvert námskeið er í
sex vikur, einu sinni í viku.
Á námskeiðunum verður ekki ein-
blínt á að smakka mat heldur er lögð
áhersla á skynjun og eru leikir not-
aðir til að kynnast matnum betur.
Foreldrar sem svara spurninga-
listum geta sótt um að komast á nám-
skeið með börn sín eða tekið ein-
göngu þátt í fyrsta hlutanum, þ.e. að
svara spurningalista um eðli mat-
vendni. Þær vonast að sjálfsögðu til
að margir komi á námskeiðin en það
skiptir ennfremur máli að sem flestir
svari spurningalistum óháð því hvort
þeir sæki námskeið eða ekki.
„Við reiknum með að fara með 240
fjölskyldur í gegnum námskeiðin, en
forsenda þess að geta verið með er að
svara spurningalistunum,“ segir
Anna Sigga.
Bætt samskipti
við matarborðið
Skiptir máli hvort barn er matvant?
„Það fer eftir hversu víðtæk mat-
vendnin er. Barn sem borðar ekkert
grænmeti og enga ávexti eða sleppir
heilu fæðuflokkunum á á hættu að
líða næringarskort. En líka er mikil-
vægt að vinna að því að bæta sam-
skiptin við matarborðið og minnka
streituna. Það er ekki hægt að sneiða
hjá því að borða í lífinu. Matur hefur
áhrif á félagslega, andlega og líkam-
lega heilsu. Við erum að tækla alla
þessa þætti,“ segir Anna Sigga og út-
skýrir að matvendni hafi í raun ekk-
ert endilega með fæðuuppeldið að
gera. „Hún kemur upp í alls konar
fjölskyldum.“
Algengt er að börn á aldrinum 2-6 ára séu
matvönd og oftast eldist það af þeim.
Doktorsverkefni Sigrúnar Þorsteinsdóttur
fjallar um matvendni íslenskra barna.
Thinkstock
Margir foreldrar eiga í basli með að koma mat eða ákveðnum tegundum matar ofan í börn sín. Matvönd börn geta farið á mis
við nauðsynlega næringu auk þess sem matvendni getur skapað togstreitu á heimilinu. Prófessor í næringarfræði og barnasál-
fræðingur leita nú að 240 fjölskyldum til að fara í gegnum sérstaka bragðlaukaþjálfun í því skyni að vinna gegn matvendni.
Barnasálfræðingurinn Sigrún Þorsteinsdóttir og Anna Sigríður Ólafsdóttir,
prófessor í næringarfræði, vinna að rannsókn um matvendni barna.
Morgunblaðið/Ásdís
’
Mjög mörg börn eru matvönd á aldrinum tveggja
til sex ára en svo eiga þau að vaxa upp úr því. En
við þekkjum að það gerist ekki alltaf. Og þá er gott að
finna út hverjar ástæðurnar eru.
Anna Sigríður Ólafsdóttir, prófessor í næringarfræði.
INNLENT
ÁSDÍS ÁSGEIRSDÓTTIR
asdis@mbl.is
Rannsóknin nær til matar-
venja barna og er athyglinni
sérstaklega beint að þeim
börnum þar sem foreldrar
upplifa að matvendni komi
niður á fæðuvali og/eða sam-
skiptum í kringum máltíðir.
Rannsóknin nær til 8-12 ára
barna sem glíma við tauga-
þroskaraskanir á borð við at-
hyglisbrest með ofvirkni
(ADHD) eða einhverfurófs-
röskun, en einnig er leitað að
börnum án þessara raskana.
Börnin fá ásamt foreldrum
þjálfun í að meðhöndla, mat-
reiða og smakka mat og er
það gert í formi leikja og ým-
issa einfaldra verkefna sem
unnin eru á námskeiði og
heima.
Rannsóknin er samþykkt af
vísindasiðanefnd. Nánari
upplýsingar má finna á vef-
slóðinni
www.bit.ly/bragdlauka-
thjalfun. Einnig má senda fyr-
irspurnir á netfangið bragd-
laukathjalfun@hi.is.
Leita að
8-12 ára
börnum