Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.05.2018, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.5. 2018
Maðurinn minn er alvarlegaað íhuga að gerast mús-limi,“ trúði rammíslensk
kona mér fyrir í vikunni. Einmitt
það. Og hvers vegna? „Út af Moha-
med Salah. Hann er nefnilega púl-
ari,“ en það kallast hinir stoltu fylgj-
endur hins fornfræga enska
knattspyrnufélags Liverpool hér á
landi. Eftir ellefu ára hlé mun
„Rauði herinn“, með téðan Salah í
broddi fylkingar, leika á ný til úrslita
í Meistaradeild Evrópu í lok þessa
mánaðar gegn ríkjandi meisturum í
Real Madrid.
Egyptinn Mohamed Salah hefur
farið hamförum á sinni fyrstu leiktíð
með Liverpool, þegar skorað 43
mörk í aðeins 47 leikjum. Það er
sami fjöldi marka og sjálfur kon-
ungur samtímasparksins, Börsung-
urinn Lionel Messi, hefur skorað í
vetur – en í 51 leik. Áhöld eru um að
nokkur maður hafi leikið betur á
einni leiktíð frá því enska úrvals-
deildin var sett á laggirnar fyrir 26
árum; Thierry Henry, Luis Suárez,
Cristiano Ronaldo og Eden Hazard
meðtaldir. Egyptanum halda engin
bönd. Að vísu er hann að ganga í
gegnum ægilega þurrkatíð einmitt
núna; hefur ekki komið tuðrunni í
netið í tveimur leikjum í röð!
Það er óborganlegt að færa kapp-
ann í tal við púlara, sem eru á sveimi
allt í kringum mann, þeir ljóma um
leið eins og strákurinn sem farið hef-
ur heim með sætustu stelpunni á
ballinu. Og eiga það alveg skilið.
Hinn nýi Ramses
En Salah-áhrifin teygja anga sína
víðar en til Íslands; í heimalandi
hans heldur fólk ekki vatni og í
leiknum gegn Róma í vikunni kallaði
sparkþulur sjónvarpsstöðvarinnar
beIN kappann „hinn nýja Ramses
Egyptalands“. Lof af dýrari gerð-
inni en fáir faróar eru hærra skrif-
aðir en téður Ramses þar um slóðir.
Og svo vildi hann ólmur breyta nafn-
inu á liðinu í Salah-pool. Veit ekki
hvað Dalglish og Rush segja um það.
„Hann fyllir fólk stolti vegna þess
að hann er múslimi sem hefur slegið
í gegn í einni af bestu deildum í
heimi. Hann fyllir alla araba stolti,“
sagði Mohammed Hassen, 23 ára
gamall maður, fæddur í Súdan en al-
inn upp í Egyptalandi, við blaða-
mann breska blaðsins The Guardian,
sem fylgdist með leik Liverpool og
Róma í Kaíró í vikunni. „Hann hefur
fallegan leikstíl og er alltaf að bæta
sig.“
Hassen talar ugglaust fyrir munn
flestra ef ekki allra landa sinna en
Salah er vonarglætan á dimmum
tímum í sögu Egyptalands, þar sem
efnahagurinn er í ólestri og tjáning-
arfrelsið stundum virt að vettugi.
Á kaffihúsinu í Kairó, þar sem
blaðamaður The Guardian fylgdist
með leiknum, var mörkum Liverpool
vel fagnað, en þau gerðu Sadio Mané
og Georginio Wijnaldum, en þau
hróp voru þó pervisið píp við hliðina
á hljóðunum sem viðstaddir gáfu frá
sér þegar Salah fékk knöttinn.
„Það er auðvelt að tengja við
hann. Hann lagði mikið á sig til að
komast á þennan stað,“ sagði Ahmed
Said, 21 árs gestur á kaffihúsinu.
Sjálfur skrópaði hann í vinnunni til
að sjá seinni hálfleikinn. Og það er
einum manni að þakka að Said er
byrjaður að horfa aftur á fótbolta
eftir óeirðirnar miklu á Port Said-
leikvanginum árið 2012, þar sem 74
sparkunnendur týndu lífi. Sá maður
heitir vitaskuld Mohamed Salah.
„Ég ætla að horfa á HM út af hon-
um,“ bætti Said við en Salah skaut
Egyptum þangað með marki úr víta-
spyrnu í uppbótartíma í hreinum úr-
slitaleik gegn Kongó.
Skiptir um lið vegna Salah
Í millitíðinni þarf að útkljá málin í
Meistaradeild Evrópu og mörgum
Egyptum – og íbúum Mið-Austur-
landa yfir höfuð – er vandi á höndum
enda hefur spænska deildin löngum
verið vinsælli þar en sú enska. Mo-
hammed Hassen, sem getið var hér í
upphafi, lætur það þó ekki trufla sig.
Enda þótt hann hafi fylgt Real Ma-
drid að málum frá blautu barnsbeini
mun hann snúast á sveif með Liver-
pool í úrslitaleiknum í Kænugarði.
Vegna Salah. „Real Madrid á ekki
möguleika í leiknum,“ segir hann
vígreifur með bros á vör.
Já, það verður engin út-Salah.
Fjallið
kemur til
Múhameðs
Egyptinn Mohamed Salah hefur á undraskömm-
um tíma skipað sér á bekk með fremstu spark-
endum vorra tíma. Hann hefur ekki aðeins kveikt
í fylgjendum félags síns, Liverpool, heldur líka
löndum sínum og arabaheiminum öllum.
AFP
Mohamed Salah hefur stolið sviðsljósinu á leiktíðinni. Nær hann að fagna sigri í
Meistaradeild Evrópu í lok mánaðarins?
’
Það sem hann hefur gert á þessari leiktíð er
ekki eðlilegt og við munum reyna að hjálpa
honum að halda uppteknum hætti.
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool.
ERLENT
ORRI PÁLL ORMARSSON
orri@mbl.is
BANDARÍKIN
BOISE Málmbandið Metallica hefur gert
samkomulag við útvarpsmanninn Big J um
að takist honum að losa sig við 45 kg áður
en hljómsveitin kemur fram á tónleikum í
borginni 28. nóvember nk. fái hann einkaviðtal
við alla fjóra meðlimi bandsins. Big J, sem veg-
ur tæplega 200 kg, hefur lengi glímt við yfi rvigt
og setti sig í samband við Metallica í þeim
tilgangi að fá hvatningu til að grenna sig.
BRETLAND
LUNDÚNIR Leitinni að Madeleine
McCann, sem hvarf sporlaust meðan
hún var í fríi með fjölskyldu sinni í
Portúgal árið 2007, verður haldið
áfram, a.m.k. næstu sex mánuðina
eftir að stjórnvöld tryggðu lög-
reglunni frekara fjármagn til verk-
efnisins. Að sögn Scotland Yard þá
eru enn nokkrir þræðir til að fylgja og meðan einhver von sé til að
fi nna stúlkuna á lífi vilji menn halda leitinni áfram.
KANADA
TORONTO Vegfarendum brá í brún í
vikunni þegar þeir sáu bifreið hanga lóð-
rétta niður úr rafmagnslínum undir brú
í borginni. Lögregla upplýsti í fyrstu að
gjörningurinn tengdist gerð kvikmyndar
en dró þá fullyrðingu síðar til baka; ekkert
leyfi hefði verið gefi ð fyrir kvikmyndatök-
um á staðnum. Bílnum var fl jótlega náð
niður og heldur rannsókn lögreglu áfram.
KÍNA
BEIJING Liu Xia, ekkja aðgerða-
sinnans Liu Xiaobo, sem hlaut frið-
arverðlaun Nóbels árið 2010, hefur
lýst því yfi r í símtali við vin sinn, Liao
Yiwu, að hún vilji frekar deyja en lifa
áfram í stofufangelsi, eins og síðustu
sjö árin. „Komist ég ekki í burtu
mun ég deyja á heimili mínu. Xiabo
er dáinn og það er ekkert eftir fyrir mig í þessum heimi. Það er auðveldara
að deyja en lifa,” sagði hún í símtali sem var hljóðritað og sett á netið.
Mohamed Salah, sem verður
26 ára í næsta mánuði, hefur
slegið í gegn innan vallar sem
utan í bítlaborginni með hóg-
værð sinni og prúðmennsku.
Hann þykir bjóða af sér góð-
an þokka og hefur ekki látið
velgengni stíga sér til höfuðs.
Skemmtilegt var þegar sjón-
varpsstöð félagsins fékk
nokkur börn til að lýsa mörk-
um Salah, út frá upptökum,
og um leið og knötturinn
hafnaði í netinu spratt Salah
sjálfur fram úr leyni, börn-
unum til undrunar og gleði.
Veggmynd af Salah fyrir utan
kaffihús í Kaíró.
Hógvær og
prúður