Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.05.2018, Qupperneq 8
Í PRÓFÍL
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.5. 2018
Hulda B. Ágústsdóttir Margrét Guðnadóttir
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17
GRÍNIÐ Wolf hefur framleitt og
leikið í tveimur seríum, Now
Hiring og Used People, fyrir
sjónvarpsstöðina Comedy Cent-
ral. Einnig skrifaði hún grín fyrir
óskarsverðlaunahátíðina þegar
Chris Rock var kynnir. Wolf hef-
ur lent á topp-tíu-lista yfir fyndn-
ustu konur New York-borgar,
valið af TimeOut New York.
Einnig er hún á lista hjá tímarit-
inu Rolling Stone sem ein af 25
fyndnustu manneskjum á Twitter
í dag. Hún hefur komið fram í
grínklúbbum og háskólum víða
um Bandaríkin og tekið þátt í
fjölda grínhátíða.
Wolf er talin ein af tíu fyndnustu
konum New York-borgar og ein
af 25 fyndnustu á Twitter.
Ein fyndnasta
kona New
York-borgar
MICHELLE WOLF er grínistinn sem gerði allt vitlaust vestanhafs í árlegum
blaðamannakvöldverði Hvíta hússins á dögunum. Hún fæddist 21. júní 1985
og er þekkt fyrir að koma fram og skrifa fyrir þáttinn The Daily Show.
Eftir útskrift úr háskóla árið 2007 vann hún hjá fjárfestingabankanum
Bear Stearns og síðan um hríð hjá bankanum JP Morgan. Þaðan lá leiðin í
vinnu á Wall Street.
„Ég ætlaði annaðhvort að fara í doktorsnám eða í læknisfræði en ég hafði
fengið nóg af skóla,“ sagði Wolf í viðtali við The Wrap.
„Herbergisfélagar mínir höfðu öll fengið vinnu á Wall Street og þau
stungu upp á að ég kæmi að vinna þar. Þá gætum við öll búið í New York í
nokkur ár,“ segir hún.
Þótt henni líkaði ekkert sérstaklega vinnan í fjármálageiranum gaf það
henni tækifæri á að komast með tærnar inn um dyrnar í grínheiminum. Árið
2008 horfði hún á upptöku af grínþættinum Saturday Night Live
sem veitti henni innblástur.
„Ég hef alltaf elskað grín en í mínum huga hafði það ekki verið
raunhæfur kostur að velja það sem atvinnu,“ segir hún.
„Ég hef alltaf verið mikill aðdáandi Saturday Night Live og
eftir þáttinn var ég staðráðin í að ég vildi gera eitthvað svipað,“
segir Wolf í viðtali við Splitsider. Stuttu síðar var hún komin í
uppistand og vann við það í fjögur ár. Árið 2014 fékk hún vinnu
sem textahöfundur hjá þættinum Late Night with Seth Meyers.
Hún fékk einnig að koma fram þar sem persónan Grown Up An-
nie. Eftir tvö ár í því starfi gekk hún til liðs við grínhöfunda hjá
The Daily Show with Trevor Noah, þætti sem hún segist vera alin
upp við. Stjarna hennar reis enn frekar þegar hún lék í vinsælum
HBO-þætti að nafni Michelle Wolf: Nice Lady.
Næst á dagskrá er Netflix-þátturinn The Break with Michelle
Wolf, hálftíma langur grínþáttur, og verður hann frumsýndur 27.
maí næstkomandi.
Wolf hefur lengi gagnrýnt Trump og hans stjórn í gríni sínu.
Hún var beðin að koma fram sem veislustjóri í kvöldverði Hvíta
hússins og sagðist ekki ætla að draga úr gríninu þar.
Það kom á daginn að það gerði hún alls ekki, en Trump sjálfur
mætti ekki en sendi í sinn stað Söruh Huckabee Sanders, fjöl-
miðlafulltrúa Hvíta hússins. Grínið vakti verðskuld-
aða athygli og fékk bæði hrós og gagnrýni.
ÍÞRÓTTIR Wolf ólst upp í Penn-
sylvaniu-ríki og á hún tvo eldri
bræður. Á unglingsárunum æfði
hún frjálsar íþróttir, hástökk, þrí-
stökk og 400 metra hlaup en
meiðsli bundu enda á keppni á
þeim vígstöðvum.
Hún stundaði háskólanám í Col-
lege of William & Mary þar sem
hún lærði vöðva- og hreyfifræði
(kinesiology). Wolf starfaði lengi í
fjármálaheiminum áður en hún
lagði grínið fyrir sig.
Hún stundar langhlaup í frí-
stundum.
Hætti að
keppa
UMDEILD Mikið hefur verið rætt
um ræðu Wolf á blaðamanna-
kvöldverðinum. Þar kallaði hún
forsetann rasista og gantaðist
með framhjáhald hans með klám-
myndastjörnu. Hún lét einnig fjöl-
miðlafulltrúa hvíta hússins, Söruh
Huckabee Sanders, finna vel fyrir
gríninu.
Skiptar skoðanir eru á því gríni
en bæði íhaldsmenn og blaða-
menn hafa gagnýnt það sem þeir
kalla árásir á útlit Sanders. Vísa
þeir til ummælanna um hversu
„úrræðagóð“ Sanders væri en
Wolf sagði hana „brenna stað-
reyndir og nota öskuna fyrir augn-
skugga“.
Einnig líkti hún Sanders við
harðstjórann Lydiu úr sjón-
varpsþáttunum The Handmaid’s
Tale.
Sanders, fjölmiðlafulltrúi Hvíta húss-
ins, fékk að finna fyrir gríninu.
Hvað sagði
Wolf?
Gekk langt
í gríninu
Grínistinn
Michelle Wolf
fór á kostum í
kvöldverð-
arboði Hvíta
hússins.
Gettyimages
Michelle sést hér í hlutverki
Grown Up Annie í þætt-
inum hjá Seth Meyers.
’ Ég hef alltaf verið mikillaðdáandi Saturday NightLife og var staðráðin í að égvildi gera eitthvað svipað.
Wolf var mikil íþrótta-
kona á yngri árum en
nýtur sín nú á sviðinu.