Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.05.2018, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.5. 2018
VETTVANGUR
Ágætu ljósi var varpað á áskor-anir og tækifæri ferðaþjón-ustunnar á fróðlegum fundi
Ferðamálastofu og Íslenska ferða-
klasans í vikunni, þar sem sjónum var
einkum beint að tækniþróun og upp-
lýsingabyltingunni. Allmörg íslensk
fyrirtæki hafa þróað tæknilausnir
sem gefa möguleika á að auka bæði
skilvirkni og gæði á ýmsum sviðum.
Kynning frá Origo á sérhönnuðu upp-
lýsinga- og leiðsögukerfi í bíla-
leigubíla var til að mynda áhugavert
enda ljóst að sérsniðnar lausnir á því
sviði geta haft þýðingu fyrir hegðun,
öryggi og upplifun stórs hluta ferða-
manna.
Skilgreinum burðarþolið
Fjölmiðlar höfðu skiljanlega mestan
áhuga á vangaveltum Dougs Lanskys
um hvenær Ísland teldist vera upp-
selt og gæti ekki tekið við fleiri gest-
um. Rétt er að árétta að Lansky hélt
því ekki fram á fundinum að sá dagur
væri runninn upp. Hann hvetur okk-
ur aftur á móti til að skilgreina
flöskuhálsa og burðarþol landsins
hvað varðar ferðamenn og ferðaþjón-
ustu, út frá ýmsum mælikvörðum á
borð við innviði, hámark æskilegs
hlutfalls af landsframleiðslu, upplifun
ferðamannanna sjálfra og fleira. Ná-
kvæmlega þetta verkefni er einmitt
hafið á vegum Stjórnstöðvar ferða-
mála, þannig að hvatning Lanskys
rímar vel við áherslur og verkefni
stjórnvalda.
Ófullkomin samlíking
við skemmtigarð
Ég leyfi mér hér með að gera dálitla
athugasemd við samanburð Lanskys
á Reykjavík og Disneyworld, sem er
gamalkunnugt og vinsælt stef sem
skýtur reglulega upp kollinum. Með
tilvísuninni vakna hughrif um ægileg-
an mannfjölda og þrengsli. En
Lansky mælir þetta sem hlutfall
ferðamanna (á tilteknum degi) á móti
heimamönnum, og bendir á að þetta
hlutfall sé hærra í Reykjavík en í
Disneyworld (þar sem starfsmenn
garðsins eru skilgreindir sem
„heimamenn“). En hlutfallið eitt og
sér segir nákvæmlega ekkert um
mannmergðina eða þrengslin. Ef tíu
manna gönguhópur á leið um hundr-
að hektara jörð þar sem einn maður
býr myndum við ekki segja að sú jörð
hafi breyst í skemmtigarð af því að
hlutfallið sé tíu á móti einum. Hlutfall
Lanskys er vissulega áhugavert og
mikilvægt, einkum með hliðsjón af
samfélagslegum þolmörkum okkar
sjálfra. En það segir bara lítinn hluta
sögunnar og horfa þarf á fleiri þætti
til að meta „Disney-væðingu“. Mann-
mergðin í miðbæ Reykjavíkur kemst
ekki nema á örfáum hátíðisdögum í
námunda við klisjuna alræmdu um
þéttsetinn skemmtigarð.
Tímastýring lykilatriði
Ég er sammála því mati Lanskys að
fremur langsótt er að ferðamenn
komi til landsins án þess að vilja
heimsækja vinsælustu staðina hverju
sinni, þó að með eflingu fluggátta á
landsbyggðinni megi vissulega sækja
ferðamenn sem mögulega heimsækja
eingöngu þá landshluta. Hitt er ann-
að mál að með betri stýringu á flæði
gesta yfir tíma dags má auka afkasta-
getu vinsælla svæða án þess að spilla
upplifun ferðamanna. Á þetta hefur
að sjálfsögðu oft verið bent en það er
skiljanlegt að við höfum verið treg til
að innleiða aðgangsstýringu á svæð-
um sem við erum vön að geta valsað
um að vild og lítum á það sem sjálf-
sagðan og jafnvel helgan rétt. Vægari
nálgun gæti falist í að gefa upplýs-
ingar í rauntíma um álag á helstu
stöðum, þannig að ferðafólk geti af
sjálfsdáðum skipulagt ferðir sínar út
frá því. (GoogleMaps gefur raunar
vísi að þessum upplýsingum nú þegar
með súluriti sem sýnir dæmigert álag
áfangastaða brotið niður á klukku-
stundir sólarhringsins.) Sú spurning
er einnig eðlileg hvort í einhverjum
tilvikum mætti beita tímastýringu
gagnvart skipulögðum hópferðum en
undanskilja einstaklinga sem ferðast
á eigin vegum.
Milliliðirnir
Hlutfall þjónustu sem ferðaþjónustu-
fyrirtækin selja sjálf beint til við-
skiptavina sinna lækkar óðum.
Nokkrir stórir milliliðir hafa tekið yf-
ir að verulegu leyti. Að sumu leyti
eykur það og auðveldar aðgang selj-
enda að stórum hópi kaupenda og
dregur um leið úr þörf fyrir dýrar
auglýsingar og markaðsstarf. Tækni-
byltingin hefur að því leyti haft já-
kvæð áhrif. Góðar umsagnir á bók-
unarvef eru dýrmætari en
milljónaauglýsingar. En Jón Þór
Gunnarsson, forstjóri Arctic Advent-
ures, benti á það í erindi sínu á fund-
inum að þóknun milliliðanna væri í
einhverjum tilvikum orðin það há að
hún fæli í sér verulega áskorun fyrir
greinina og gæti raunar ekki staðist
til lengdar. Mögulega eru hér í upp-
siglingu átök á markaði sem gætu
haft töluverða þýðingu.
Það er einkum á markaði fyrir
gistiþjónustu sem horft hefur verið til
stjórnvalda vegna umfangs milliliða á
borð við Airbnb. Og það með réttu,
enda er það okkar hlutverk að skil-
greina landamæri á milli deili-
hagkerfisins og atvinnustarfsemi,
setja sanngjarnar leikreglur og fylgja
þeim eftir. Það er hlutverk sem við
tökum alvarlega.
Þolmörk, tækni og tækifæri
í ferðaþjónustu
Úr ólíkum
áttum
Þórdís Kolbrún
Gylfadóttir
thordiskolbrun@anr.is
Morgunblaðið/Eggert
’Það er skiljanlegt aðvið höfum verið tregtil að innleiða aðgangs-stýringu á svæðum sem
við erum vön að geta
valsað um að vild og lít-
um á það sem sjálfsagðan
og jafnvel helgan rétt.
Hópur íslenskra afreksíþrótta-
manna sem nú hafa tekið stefnuna á
Ólympíumótið í Japan 2020 hefur
tekið samfélagsmiðla í sína þjónustu
og opnað sérstakar síður á Face-
book fyrir fréttir af sinni framgöngu
á íþróttasviðinu. Á þessum opnu
síðum bjóða þau fylgjendum og
íþróttaáhugafólki að fylgjast með
undirbúningi fyrir stóra mótið, æf-
ingum sínum, keppnum og lífinu al-
mennt.
Arna Sigríður Albertsdóttir
keppir í handahjólreiðum. „Ég hlaut
mænuskaða í
skíðaslysi þegar
ég var 16 ára og
notast því við
hjólastól í dag.
Mitt helsta
áhugamál er
handahjólreiðar og ég hafnaði í 1.
sæti í mínum flokki í handahjólreiða-
keppni í Abú Dabí. Ásamt því er ég
virk í SEM (samtökum endurhæfðra
mænuskaddaðra) og stefni á Ól-
ympíumót fatlaðra 2020.“
Stefanía Daney Guðmunds-
dóttir er tvítugur Akureyringur
sem æfir frjálsar
íþróttir. „Ég náði
bronsinu í 400 m
hlaupi á Grand
Prix-mótinu í
Berlín í fyrra, auk
þess að vinna
gullverðlaun í langstökki þar sem ég
setti Íslandsmet. Keppi á EM fatlaðra
í frjálsum í sumar en undirbúning-
urinn fyrir Ólympíumótið er þegar
hafinn.“
Már Gunnarsson
„Ég er 18 ára Suðurnesjamaður
og náttúruunnandi með margvísleg
áhugamál. Ég tefli,
spila á píanó, syng
og ætla að taka
upp plötu í Pól-
landi í sumar. Ég
byrjaði að æfa
sund fyrir fjórum
árum, keppti á EM fatlaðra 2016,
NM 2017, HM fatlaðra í sundi í fyrra
og mun keppa á EM í sumar. Stóra
markmiðið er svo Ólympíumót fatl-
aðra í Tokyo 2020.“
Patrekur Andrés Axelsson er
24 ára frjálsíþróttamaður og sprett-
hlaupari. „Íþróttir
eru mínar ær og
kýr og hafa alltaf
verið. Fótbolti,
snjóbretti og
frjálsar. Ég byrjaði
að missa sjónina
fyrir fimm árum og í dag er ég með
um 5% sjón. Byrjaði að æfa frjálsar
íþróttir fyrir þremur árum og mun
keppa á Evrópumóti fatlaðra í frjáls-
um í sumar. Ég stefni á að keppa á
Ólympíumóti fatlaðra 2020 og er ég
byrjaður að undirbúa mig fyrir það.“
AF NETINU
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is
SÍGILDIR SUNNUDAGAR
Fyrsta flokks
kammertónlist
Sígildir sunnudagar eru klassísk
tónleikaröð þar sem boðið er upp
á fjölbreytt úrval kammertónleika.
Sunnudaga
kl. 17:00 í Hörpu