Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.05.2018, Page 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.05.2018, Page 12
Ekkert vantraust „Það er engin ástæða til að van- treysta mér. Þetta framboð snýst um hæfni mína og getu til starfa á alþjóð- legum vettvangi.“ Bragi Guðbrandsson um framboð sitt til setu í Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna. Út fyrir boxið „Þegar hnúturinn er orðinn svo harður eins og raun ber vitni hér þá þarf að hugsa út fyrir boxið.“ Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra um kjaradeilu ljósmæðra. Hæstánægður „Ég er hæstánægður með Hæstarétt.“ Sigmundur Ernir Rúnarsson, ritstjóri Hringbrautar, eftir að hann var sýknaður í meiðyrðamáli sem Guðmundur Spartakus Ómarsson höfðaði gegn honum. Gleymi ekki töffaraskapnum „Mér þykir svo vænt um þessar stelpur og maður er búinn að þekkja þær síðan þær voru pínulitlar. Ég hef þjálfað þær og spilað með þeim og ég mun ekki gleyma töffaraskapnum sem þær sýndu í seinni hálfleik í dag.“ Helena Sverrisdóttir um samherja sína í nýbökuðu Íslandsmeistaraliði Hauka í körfubolta. Farvegur hótana „Það er fyrst til að taka að ég lít ekki á verkalýðshreyf- inguna sem andstæðing, heldur samherja í því að vinna að félagslegum umbótum. Mér finnst mjög slæmt ef samskipti stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins eru að fara í einhvern farveg hótana.“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Morgunblaðið/Valli VIKAN SEM LEIÐ VETTVANGUR 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.5. 2018 Okkur Íslendingum hefur alltaf fundist gam-an að bera okkur saman við aðrar þjóðir. Ííþróttum, Eurovision, lífslíkum og bara hverju sem er. Stundum þurfum við að nota höfða- töluna til að sýna fram á hvað við erum meiriháttar en stundum erum við bara býsna góð. Þá erum við stolt og flöggum því að við Íslendingar séum nú ekkert venjuleg þjóð. Stundum erum við samt ekki alveg eins og við hefðum óskað okkur. Til dæmis þegar við vorum feitasta þjóð í Evrópu sem bruddi þunglyndislyf í gríð og erg, með drengi sem ómögulega gátu lesið sér til gagns. Einu sinni var líka enginn maður með mönnum nema hann væri með kröftugt bakflæði og á að minnsta kosti tveimur tegundum af magalyfj- um. Við höfum ekki verið montin af þessu öllu en við höfum alltaf sætt okkur við þessar niðurstöður og tekið mark á þeim. Alþjóðlegur samanburður er nefnilega einmitt það – samanburður. Í vikunni ræddi ég við hagfræðing sem skrifaði grein sem sagði að á Íslandi væru einhver hæstu meðallaun í heimi, meira að segja borið saman við vinnustundir, og jöfnuður töluvert meiri en á annars staðar á Norðurlöndum. Þetta voru tölur frá Euro- stat, Hagstofunni og OECD. Allt fyrirbæri sem taka svona hluti alvarlega. Stofnanir sem vinna með staðlaðar tölur og ná þannig að reikna út ástandið um allan heim. Í kommentakerfi var bent á að best væri senni- lega að draga hagfræðinginn út á Austurvöll og skjóta hann. Annar fór aðeins yfir það hvernig byssukúlu væri best að nota við verkið. Ekki mjög málefnaleg viðbrögð en frekar afgerandi. Meira að segja formaður stærsta stéttarfélags landsins hafnaði þessu og sagði að það væri ekkert að marka þetta. Félagið hefði gert sínar eigin rann- sóknir sem sýndu allt aðra niðurstöðu. Þannig hefur reyndar umræðan verið. Upplifun einhvers passar ekki við það sem tölurnar segja. Og hverju ætlum við þá að trúa? Einhverju ókunnugu fólki, jafnvel í útlöndum, eða okkur sjálfum? Og þá komum við að vandamálinu – okkar eigin mati og tilfinningu fyrir ástandinu. Á sama tíma og við töluðum um hvernig allt væri að fara til helvítis í heilbrigðiskerfinu þá sýndu alþjóðlegar rannsóknir að Íslendingar voru með eitt besta kerfi í heimi. Við vorum hreint ekki tilbúin til að trúa því. En á sama tíma vorum við alveg til í að við værum hamingju- samasta þjóð í heimi. Og við erum heldur betur til í að taka mark á tölum sem segja að vextir séu of há- ir og sumardagurinn fyrsti sé bara eitthvert heima- tilbúið rugl. En er það eðlilegt að við ætlum bara að velja hverju við trúum af þessu? Það er enginn að segja að hér sé allt í himnalagi. Það væri kjánalegt. En er ekki pæling, að þegar al- þjóðlegar stofnanir segja að ástandið á Íslandi sé betra en víðast hvar í heiminum, þá sé það ekki bara eitthvað sem þær hafi á tilfinningunni? Á valdi tilfinninganna Á meðan ég man Logi Bergmann logi@mbl.is ’Og hverju ætlum við þá að trúa? Einhverju ókunnugu fólki,jafnvel í útlöndum, eða okkur sjálfum? UMMÆLI VIKUNNAR ’Við verðum að fara að slá íhann Skjóna okkar.Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverf- isráðherra um loftslagsmál. Keyrir sjálfur Fyrsta sjálfstýrða bif- reiðin á Íslandi af fjórða stigi sjálfkeyrandi bif- reiða var til sýnis við Hörpu í vikunni. Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Svansvottuð betra fyrir umhverfið, betra fyrir þig Almött veggjamálning Dýpri litir - dásamleg áferð Pressed Petal Heart Wood ColourFutures2018 BRÚÐARGJAFA­ LISTINN Á WWW.FAKO.IS Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is SPENNANDI BRÚÐAR­ GJAFIR Matur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.