Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.05.2018, Page 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.05.2018, Page 15
6.5. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 af sjálfum sér sem hann yrði að viðhalda.“ Bjarni og móðir Brynju, Lára Valgerður Al- bertsdóttir, voru í daglegu sambandi eftir að þau skildu. Brynja segir að í sínum huga hafi þau næstum ekki verið skilin. Jólunum eyddi fjölskyldan saman en Brynja og faðir hennar voru í minna sambandi þar sem kastast hafði í kekki milli þeirra og Brynja upplifði reiði í garð föður síns. „Þegar hann flutti út frá mömmu tók hann ekkert með sér. Ég og afi vorum þau einu sem komum heim til hans í nýju íbúðina og þar var nánast bara rúm. Pabbi hafði alltaf viljað hafa fallegt í kringum sig svo þetta var ólíkt honum. Mamma og pabbi áttu mörg málverk og hún spurði hvort hann vildi ekki fá málverkin en hann sagðist bara myndu fá þau seinna. Hann var á óskoðuðum bíl og sinnti ekki hlutum sem hann var alltaf vanur að sinna. Tilfinningin eftir á er sú að hann þarna, löngu áður en það svo gerist, hafi verið búinn að ákveða að enda líf sitt og hafi bara verið að bíða eftir að húsið yrði selt og við mamma búnar að koma okkur fyrir á nýj- um stað. Það var eins og hann sæi enga leið til að líða betur í lífi sínu, með ónýtan skrokk og fannst lögfræðin leiðinleg. Í bréfi sem hann skildi eftir handa mér sagði hann að lögfræðin hefði étið sig að innan.“ Brynja upplifði í fyrsta skipti hræðslu yfir því að hann gæti unnið sjálfum sér skaða ári áður en hann lést, 2016. Vinur Bjarna bankaði upp á að morgni heima hjá Brynju og móður hennar og var að leita að honum. Bjarni svaraði ekki síma og hafði haldið sér sérstaklega einangr- uðum. Mæðgurnar reyndu að ná sambandi við hann án árangurs. „Ég var á leiðinni í próf eftir smástund þegar þetta var en ég var á fyrsta ári í iðnaðar- verkfræði í Háskóla Íslands. Ég var á leið í próf í áfanga sem mér hafði gengið mjög vel í um vet- urinn og hafði því litlar áhyggjur af prófinu. Ég fór í prófið, vitandi það að strax eftir það færi ég að athuga hvort pabbi væri á lífi. Eftir prófið fór ég í íbúðina hans, sem ég var með lykla að, en hann var ekki þar og við náðum loks sambandi við hann og það var í lagi með hann, hann var þá staddur í London. Útskýr- ingin sem við fengum væri að hann hefði þurft að komast í burtu í smá tíma. Ég féll í prófinu, var ein fjögurra nemenda sem féllu, enda var prófið allt í móðu, ég var með hugann við pabba. Eftir þetta töluðum við alvarlega við pabba, hann yrði að láta okkur vita af sér, hann mætti ekki gera okkur svona hrædd. Hann lofaði okk- ur því að hann myndi aldrei fremja sjálfsvíg. Hann lét mig líka lofa sér að gefa verkfræðinni áfram séns og prófa HR því þarna eftir þetta próf höfðu mér fallist hendur í náminu. Eftir þetta náðum við pabbi aftur saman og urðum miklir félagar. Ég bjó um tíma hjá afa meðan við mamma vorum að bíða eftir að fá afhenta nýja íbúð og var því í enn meiri samskiptum við hann.“ Notaleg kvöldstund tveimur dögum áður 12. júní 2017 svipti Bjarni sig lífi. „Hefði þetta gerst einu til tveimur árum fyrr hefði ég frekar búist við þessu. Tímasetningin gerði það að verkum að þetta var meira sjokk því ég og allir héldu að hann væri kominn á miklu betri stað andlega. Laugardaginn 10. júní fór öll fjölskyldan saman út að borða. Afi bauð okkur, systur ömmu, pabba, mömmu og frænku minni, á Grillið því amma hefði orðið 85 ára þá helgi. Við byrjuðum heima hjá afa, skál- uðum í kampavíni og það var svo æðislega huggulegt og gaman hjá okkur, allir glaðir og eðlilegir. Daginn eftir heyrði ég í honum og hann hljómaði vel. Á mánudagsmorgninum fékk mamma tölvupóst þar sem hann baðst af- sökunar á öllu og segir henni að hann sé búinn að taka þessa ákvörðun og kveður. Sendi hann þetta rétt áður en hann svipti sig lífi. Mamma hringir þá í mig, ég skildi varla hvað hún sagði en þá var hún á leiðinni úr vinnunni og brunaði vestur í bæ. Ég hringdi á leigubíl og þegar ég kom voru mamma, lögreglan og sjúkraliðarnir komnir. Hann var látinn.“ Brynju biðu bréf, nokkur, sem skrifuð voru yfir lengri tíma. „Það var greinilegt að honum fannst eins og honum hefði misheppnast í lífinu. Hann skrifaði að það hefðu verið mistök að fara í lögfræði, mistök að skilja við mömmu, mistök að rækta ekki vini sína, skrifaði eins og hann hefði brugð- ist plönum sínum. Mér fannst svo sárt að lesa þetta því sjálf sá ég ekkert nema lausnir. Þessi vandamál sem honum fannst svo stór; að hann skyldi ekki sjá að hann gæti farið að gera eitt- hvað annað en sinna lögfræði. Hann var líka alltaf velkominn heim, ég veit að hann hefði komið að opnum dyrum hjá mömmu. Hann átti fullt af vinum sem létu sér annt um hann, eins og við sáum í kringum jarðarförina þegar vina- fólk okkar tók sig saman og sá um erfidrykkj- una og á skrifum allra í minningargreinunum. Ég sá ekkert nema lausnir sem hann hefði fengið hefði hann bara fært hlutina í tal, deilt með okkur áhyggjum sínum og hugsunum. Ég held að það sé ákveðinn misskilningur hjá karlmönnum sem eiga uppkomin eða eldri börn að halda að börnin þurfi ekki á þeim að halda lengur. Þótt þau séu orðin sjálfstæðari þýðir það ekki að þau vilji ekki hafa föður sinn í lífi sínu. Ég vildi vera þátttakandi í lífi pabba, sama hvernig líf hans yrði. Börnum er alveg sama; þau vilja bara foreldra sína. Þegar talað er um þá skilyrðislausu ást sem foreldrar hafa á börnum sínum gleymist oft að það er gagnkvæmt. Börnin hafa líka sömu skil- yrðislausu ást á foreldrum sínum.“ Svona á ekki að vera leyndarmál Brynja segir dagana misgóða eftir að faðir hennar lést, suma daga finnist henni auðveld- ara að hugsa eins og faðir hennar hafi farið í frí. En hún hafi aldrei viljað fara í felur með þetta; ef fólk spyrji segi hún frá. Hún vilji ekki að svona sé leyndarmál, það ýti undir að þeim sem líði illa finnist þeir hafa eitthvað til að skamm- ast sín fyrir. „Ég ræði mikið við karlkyns vini mína að það sé mikilvægt að tala um hlutina. Ekki hætta með kærustunni sinni og segja bara að allt sé frábært. Að tala um litlu vandamálin, eins og við stelpurnar erum held ég vanari að gera, þjálfar fólk í að takast svo á við að ræða stóru vandamálin líka. Bara að geta komið hlutunum í orð er svo mikill léttir og öxl til að halla sér að er alltaf í boði. Það er engin ástæða til að fara eitthvað á hnefanum af því bara, það fylgir því léttir að færa tilfinningar sínar í orð. Hjá pabba voru ekki merki um grafalvarlegt þunglyndi þegar hann dó. Ég held að fólk þurfi líka að vera vakandi fyrir því að svona getur gerst þótt fólk virðist ekki vera fárveikt. Kannski les einhver þetta og hugsar: já, þetta er eins og vinur minn hagar sér, best að hringja í hann. Eða þekkir sjálft sig í þessari sögu. Þá finnst mér þess virði að tala um þetta. Að svipta sig lífi er ekki gert af sjálfselsku. Fólk heldur í alvörunni að fólkinu sínu líði betur að losna við sig. Vandamál þeirra séu meiri byrði en dauði þeirra yrði. Ég vildi að pabbi hefði skilið að ég vildi frekar öll hans heimsins vandamál en missa hann.“ Hvernig gengur þér að vinna úr áfallinu? „Ég hef farið til sálfræðings, unnið í sjálfri mér og reynt að horfa til 19 ára Brynju og fyr- irgefa henni að vera svona reið út í pabba sinn þegar hann skildi við mömmu. Stundum hellist samviskubit yfir mann að maður hafi ekki sagt nóg, hvað mér þótti vænt um hann og reynt að fá hann til að tala meira við mann. Þetta kemur þótt maður viti innst inni að þetta er aldrei neinum einum að kenna. Ég á frábæra vini og vinkonur sem ég get leitað til. Ég finn að það að fara í gönguna með Pieta og sjá annað fólk sem hefur gengið í gegnum það sama eða líður illa er mikils virði. Fólk heldur oft að það sé svo eitt með sínar hugsanir. En eins og í stærðfræðitíma; ef þú ert með spurningar, þá eru aðrir bekkjarfélagar líka að pæla í því sama. Sama gildir um tilfinningar. Líðan er ekki einstaklingsbundin, það ganga allir í gegnum allar tilfinningar í heiminum.“ Brynja segist taka eigin lífi með meiri ró en hún gerði. Hún hafi lært að til að koma vel fram við fjölskyldu sína og vini þurfi hún fyrst að koma vel fram við sjálfa sig og hlúa að sér, þá sé hægt að gefa. „Lífið snýst ekki um veraldlegu hlutina, einkunnir, vinnu. Ég reyni að gera það sem ég get til að mér líði vel, hita mér uppá- haldskaffið mitt á sunnudögum og legg mig á eftir ef svo ber undir. Fer í sund og sleppi frek- ar einhverju úr dagskránni ef ég finn að það mun gera eitthvað fyrir mig. Ég set ekki óþarfa pressu á mig og reyni að njóta líðandi stundar.“ „Hefði þetta gerst einu til tveimur árum fyrr hefði ég frekar búist við þessu. Tímasetningin gerði það að verkum að þetta var meira sjokk því ég og allir héldu að hann væri kominn á miklu betri stað andlega,“ segir Brynja Bjarnadóttir. Morgunblaðið/Eggert ’Hann vildi fela hvernig komið var í lífi hans, hannvar fastur í einhverri myndaf sjálfum sér sem hann yrði að viðhalda.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.