Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.05.2018, Page 19
irnar og tekið þátt í að móta jörðina sem við lif-
um á.“
Þessi misserin vinnur Børge ásamt öðrum að
því að þvera tuttugu stærstu jökla í heimi.
Leikurinn hefur borist til Alaska, Grænlands,
Svalbarða, Íslands og víðar. „Ég er í öðrum
verkefnum á þessu ári en Kanada er næst á
dagskrá á næsta ári. Við stefnum að því að
ljúka þessu verkefni sem fyrst. Þurfum að fara
að herða okkur!“
Hann brosir.
Á og rekur hótel í Noregi
Jökla- og pólferðirnar taka sinn tíma, þannig
að ekki kemur á óvart að Børge er ekki í venju-
legu 9-5 starfi. Fyrir þremur árum opnaði hann
hótel heima í Noregi, Manshausen, á sam-
nefndri eyju, og hefur helgað því mikinn tíma
síðan. „Ég byggði hótelið upp frá grunni og er
að stækka það núna. Það er tímafrekt verkefni
sem þýðir til dæmis að ég kemst ekki í neina
jöklaleiðangra á þessu ári. En þetta hefur verið
mjög skemmtilegt, þannig að ég sé ekki eftir
þeim tíma sem fer í hótelið.“
Það er ekki fyrir hvern sem er að þvera stóra
jökla og ganga á norður- og suðurpólinn. Børge
gerir þó ekki mikið úr líkamlega þættinum.
Hreyfing og líkamsrækt hafi alla tíð verið snar
þáttur í hans lífsstíl og hann geti ekki ímyndað
sér lífið öðruvísi.
Hann verður 53 ára seinna í þessum mánuði
en hefur engin áform um að hægja ferðina. „Ég
hugsa ekki mikið um þetta og hef sannarlega
ekki neglt niður daginn þegar ég kem til með
að setjast í helgan stein. Það er hægt að gera
allskonar hluti jafnvel þó að maður eldist. Mað-
ur gengur bara aðeins hægar. Ég mun halda
áfram útivist og að njóta náttúrunnar meðan ég
mögulega get. Ævintýramennska er lykilhug-
takið í þessu öllu saman; á þeim grunni byggi
ég alla mína leiðangra. Á ævintýraþrá, forvitni
og ástríðu. Ég er mjög ástríðufullur þegar
náttúran er annars vegar.“
Vandamálin hlaðast upp
Spurður hvort mannkynið sé að hugsa með
sómasamlegum hætti um náttúruna svarar
Børge ákveðinn: „Alls ekki. Það er stórt vanda-
mál. Líklega það stærsta sem mannkynið glím-
ir við nú um stundir. Vandamálin hlaðast upp;
loftslagsbreytingar er eitt, plastmengun í höf-
unum annað. Við getum ekki leyft okkur að
halda áfram að ganga um náttúruna með þess-
um hætti. Svo einfalt er það.“
Og hvað er til ráða? „Lausnin liggur hjá okk-
ur sjálfum, hverju og einu. Við verðum að
spyrja okkur: Hvað get ég gert? Enginn einn
getur leyst þennan risavaxna vanda en margt
smátt gerir eitt stórt. Við þurfum að hjálpast
að; axla okkar persónulegu ábyrgð. Byrjum
þar og sjáum hvert það skilar okkur. Það er
borin von að varpa ábyrgðinni yfir á atvinnu-
lífið og stjórnmálamennina.“
Talandi um stjórnmálamenn þá segir Børge
erfitt að átta sig á því hversu skaðleg afstaða
valdamesta manns í heimi, Donalds Trumps
Bandaríkjaforseta, til loftslagsmála geti orðið
en hann vill sem kunnugt er hætta við þær
skuldbindingar sem Bandaríkin tókust á hend-
ur í Parísarsamkomulaginu.
Augu og eyru lokuð
„Sem betur fer eru til öfl sem munu vinna gegn
honum og hans sjónarmiðum, til dæmis innan
Bandaríkjanna sjálfra. Sum ríkin hafa þegar
tekið sjálfstæða afstöðu í þessum málum og
hyggjast vinna áfram gegn loftslagsbreyt-
ingum óháð vilja Hvíta hússins. Staðan er eigi
að síður grafalvarleg og maður skilur ekki
hvernig menntað og vel upplýst fólk getur
dregið í efa að loftslagsbreytingarnar sem við
erum þegar að reyna á eigin skinni séu af
mannavöldum. Hvers vegna kjósa menn að
loka augum og eyrum?“
Partur af vandanum, að dómi Børge, er að
lífshlaup okkar mannanna er svo stutt. Þess
vegna höfum við tilhneigingu til að horfa bara á
það sem er að gerast hér og nú, hjá okkur sjálf-
um, í stað þess að horfa til framtíðarinnar,
barnanna okkar og barnabarnanna. „Mér ligg-
ur við að segja að þetta sé genatískur vandi.
Svona hefur þetta alltaf verið. Mannkynið hef-
ur aldrei verið þess umkomið að horfa að neinu
gagni fram í tímann. En núna getum við ekki
leyft okkur að hugsa svona lengur; við verðum
að spyrja okkur: Er það sem við erum að gera
núna sjálfbært fyrir komandi kynslóðir? Það er
stóra myndin.“
Í pólferðum þarf stundum að tjalda við erfiðar aðstæður.
Børge Ousland eins og
hann kann best við sig;
gangandi á ísbreiðunni.
Ljósmynd/Mike Horn
Børge er með ævintýraþrána í blóðinu og lætur
sér fátt fyrir brjósti brenna.
Í ævintýraferðum er óhætt að gera ráð fyrir
óvæntum gestum.
Børge gengur í heilagt hjónaband á uppáhaldsstaðnum sínum í heiminum, norðurpólnum.
6.5. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19