Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.05.2018, Page 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.05.2018, Page 22
Fyrir 4 Þessi drykkur heitir ayran og er algengur í Tyrklandi. 500 ml hrein jógúrt 500 ml kalt vatn salt eftir smekk 2 teskeiðar mulin, þurrkuð mynta (má sleppa) Helltu jógúrti í skál og hrærðu þangað til það er mjúkt. Bættu við vatni þangað til blandast vel. Það má líka nota blandara. Bragðbætt eftir smekk með salti og myntu. Kælt vel og borið fram með klaka í háum glösum. Tyrkneskur jógúrtdrykkur Fyrir 4-6 8 bollar vatnsmelóna í teningum, án steina 1 bolli nýkreistur límónusafi ½ bolli sykur, eða meira eftir smekk límónusneiðar eða myntugreinar til skreytingar Settu helminginn af vatns- melónuteningunum í blandara og blandaðu vel saman. Sigtaðu í gegnum fíngert sigti yfir stórri skál. Endurtaktu þangað til búið er að blanda og sigta allt saman. Losaðu þig við hratið. Bættu límónunni og sykrinum við vatnsmelónusafann og hrærðu þangað til sykurinn er búinn að leysast upp. Bættu við sykri ef þarf. Helltu límonaðinu í karöflu og kældu vel. Gott að bera fram með klökum. Vatnsmelónulímonaði Sumarið er formlega gengið í garð og ekki seinna vænna að draga grillið fram úr skúmaskotum geymslanna. Nú, eða sækja það út í garð hafi það fokið fram af svölum í einni vorlægðinni Haraldur Jónasson hari@mbl.is Grillvöðvinn rýrnar eins og aðrir vöðvar semekki eru notaðir yfir lengri tíma. Því geturverið gott að geyma stórverkefni eins og nauta T-bein og heilgrillað mjólkurlamb þangað sól- in fer í alvörunni að verma upphandleggina. Því er gott að rifja upp ryðgaða grilltaktana. Byrjum á undirstöðufæðu áhugagrillarans — hamborgaranum og reglunum sem um hann gilda. Hamborgarareglur ríkisins MATUR Með því að búa til eigin drykki er hægt að stjórna sykurmagn-inu eða sleppa alveg viðbættum sykri. Til samanburðar eru 29 sykurmolar í hálfum lítra af appelsíni. Ekki kaupa tilbúið 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.5. 2018 Nei, eigi borgarinn að bragðast rétt er hann háþróuð formúla fitu og próteins frá réttum hlutum nautgripa – og bara nautgripa. Rík- isformúlan er kjöt af hálsi, bringu eða öxlinni eða blanda af þessu þrennu og 20% fita. Já, svona mikil fita er góð á bragðið og kemur í veg fyrir að hamborgarinn breytist í skósóla. Sér í lagi þegar hann er grillaður og nokkuð stór fituprósenta verður eldinum að bráð. Það þarf svo ekki að taka fram hér að kartöflutrefjar (hvað svo sem það er) og hvers konar sojaprótein á ekki heima í hamborgara. FYRSTA REGLA Hamborgari er ekki bara platti úr hvaða kjötafgöngum sem er Hamborgari sem vegur meira en 120 grömm er alls ekki borgari heldur kjöthleifur. Ákjósanlegur grammafjöldi er 90-100 per platta. Þeir stóru og yfirleitt sjálfskipuðu grillmeist- arar sem segja það varla taka að hita grillið fyrir minna en 200 grömm skulu notast við tvo 100 gramma platta per eina brauðbollu og hananú! ÖNNUR REGLA Hamborgari skal ekki vera þyngri en 120 grömm Það þarf enga sérlagaða kryddblöndu á grillaðan gæðaborgara. Gott kjöt, salt og pipar, ásamt hóflegum skammti af reyk, er það eina sem vel formaður sæmi- lega þunnur grillborgari þarf. Undantekningin á þeirri reglu er álklæddir sjoppuborgarar við Eyjafjörð, en þeir eru reyndar hvorki grillaðir né eru þeir ætlaðir til manneldis án verulegs fjölda áfengisprómilla í blóði, nú eða eftirkasta téðra prómilla. ÞRIÐJA REGLA Kjötbragð er gott Borgari verður aldrei annað en laukbuff með eggi ef ekk- ert er brauðið og það skal vera mjúkt eins og ský. Glú- tenóþolendur og aðrir hveitihatarar fá því miður aldrei upplifað sannan hamborgara. Síðustu miss- erin höfum við, hér á landi, loksins fengið fjöl- breyttara val um sæmileg hamborgarabrauð en þau eru þó, enn sem komið er, ekki nógu mjúk og svolítið í stærri kantinum. XL-hamborgarabrauð eru síðan óskapnaður sem þarf bara að útrýma hið snarasta. Lítil og mjúk er málið. Frjálst val er hins vegar um sesamfræ eða sköllóttar bollur. FJÓRÐA REGLA Hamborgarabrauðið skal ekki vera of stórt Þegar kemur svo að grillinu sjálfu skal það vera orðið rjúkandi heitt áður en nokkurt kjöt- stykki kemur þar nærri. Borgarinn er svo grillaður hratt og örugglega. Passa að botninn sé karamelíseraður án verulegra brunabletta. Vilji fólk breyta hamborgaranum í ostborg- ara, sem allir ættu nú að kjósa, skal leggja vel valda ostsneið ofan á plattann eftir að búið er að snúa honum við og krydda suðurhliðina. Mikilvægt er að brúka lokið svo að osturinn bráðni áður en kalla þarf eftir slökkviliðinu. Já og eitt einn, þeir eiga að vera gegnsteiktir. Hrátt hakk er ekki gott á bragðið og getur beinlínis verið hættulegt. FIMMTA REGLA Ef enginn er hitinn er enginn hamborgarinn Svalandi sumar- drykkir Heimatilbúnir svala- drykkir eru góðir með grillmatnum eða til að bjóða upp á sem fordrykk fyrir veisluna. Þeir eru líka fallegir og setja punktinn yfir i-ið í partíinu. Hér fylgja fjórar ólíkar upp- skriftir að heimalöguðum drykkjum sem gleðja bæði bragðlauka og augu. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.