Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.05.2018, Side 23

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.05.2018, Side 23
Morgunblaðið/Hari Jarðarberja- límonaði Fyrir 4 1 bolli fersk jarðarber, skoluð og græni hlutinn skorinn frá ½ bolli sítrónusafi 1⁄4 bolli agave-síróp eða hun- ang 2 bollar vatn klaki Blandaðu vel saman jarð- arberjunum og hunanginu í blandara eða matvinnsluvél og helltu í karöflu. Helltu vatninu og sítrónusafanum ofan í og hrærðu saman. Kælt og borið fram með klaka. Hægt að skreyta með jarðarberja- og sítrónu- sneiðum. Allir sem hafa prófað að gera borgara frá grunni vita að það er auðvelt að hnoða hakkbollu saman og fletja. Það vita líka flestir sem hafa reynt að grilla illa pressaðan „mömmuborgara“ að neytandinn fer fljótt úr heilu fæði í hálft þegar meirihluti borgarans fellur ofan í eldinn. Gott er því bara að kaupa gæðaborgara eða fjárfesta í góðri ham- borgarapressu. Áhugamenn ættu að halda síg frá handgerðum plöttum. ÁTTUNDA REGLA Tilbúinn platti er betri en mislukkaður heimaborgari 6.5. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23 Ber borgari í brauði er ágætur uppi á fjallstindi langt frá grænmetis- salanum hitaður á einnota kola- grilli. En hamborgari í byggð ber sig betur í samvistum við smá af ljóstillífandi grænmeti. Kálblað, tómatar (sem tæknilega er ávöxt- ur en skiptir ekki máli fyrir þessar reglur), laukur og góð súr gúrka (tæknilega líka ávöxtur) er hin heilaga ferna, klassíkin. Passa bara að of mikill laukur er aldrei til bóta og því gott að saxa hann og súru gúrkurnar smátt og strá yfir botnbrauðið og setja heitan pökkinn yfir. SJÖUNDA REGLA Talandi um þetta græna Hamborgari þarf tæknilega séð ekki að hvíla eins og nautasteik en borgari sem kemur brennandi heitur af grillinu mun tapa vökva þurfi hann að bíða. Þess vegna er best að vera með brauðið tilbúið, glóðað fyrir þá sem það kjósa, og setja kjötið til geymslu ofan á brauðið. Þá fer safinn ekki til spillis heldur færir bragðupplifunina upp á næsta plan. Passið bara brauðlokið. Það er gott að hafa það aðeins á hlið svo það festist ekki í ostinum. Þeir sem svo vilja færa borgaraátið upp á næsta plan pakka borgaranum, þegar hann er tilbúinn með öllu havaríinu, inn í smjörpappír og láta hann „þroskast“ í mín- útu eða þrjár. Skiptir sköpum. SJÖTTA REGLA Hamborgari þarf stundum smá slökun Það er tæknilega hægt að grilla forsteiktar fransk- ar kartöflur. En það er þó ekki vænlegt til árang- urs og ofninn er ekki brúkaður á grilltímabilinu. Þannig að ef kartöfluhungrið er ærandi er betra að grilla heilar kartöflur og löðra þær svo í smjöri, mæjónesi, osti eða hverju því sem hugurinn girn- ist – en það er önnur saga og um jarðeplin gilda líka auðvitað allt aðrar grillreglur. TÍUNDA REGLA Franskar eru góðar en... Mæjónes er gjöf frá guðunum og á einkar vel við undir hamborgaraplattanum, sem rakavörn fyrir brauðið. Gott sinnep fer svo efst, alveg eins og á pylsu. Undir efra lokið til að vera nákvæmari. Tómatsósa er betri með frönskum (sjá reglu 10). Béarnaise-sósa á hamborgara er svo annar handleggur og um hana eru aðrar reglur og ein af þeim er að hún á ekki heima á klassískum ostborgara. NÍUNDA REGLA Það þarf alltaf að vera mæjónes Hunangsmelónudrykkur Fyrir 4 1 hunangsmelóna, skorin í litla bita (um 6 bollar) 1 agúrka, skræld og skorin í grófa bita 1⁄3 bolli myntulauf (þéttpökkuð) og meira til skreytingar klípa af salti 3 matskeiðar nýkreistur límónusafi sódavatn Blandaðu vel saman í blandara mel- ónunni, myntunni og saltinu. Sigt- aðu í gegnum fíngert sigti, ekki pressa á ávextina, þá verður bland- an skýjuð. Hrærðu límónusafanum saman við og kældu í klukkustund. Skipt niður í fjögur glös með klök- um, toppað upp með sódavatni og skreytt með myntu ef vill. Melónublönduna er hægt að und- irbúa daginn áður.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.