Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.05.2018, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.05.2018, Blaðsíða 29
6.5. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 Ferðalag Unu hefur nú staðið í um tíu vikur eða síðan í lok febrúar. Hún ætlar að láta það ráðast hve lengi hún heldur ferðinni áfram en það verður í a.m.k. þrjá mánuði í viðbót. „Ég ferðast hægt, stefni núna landleiðina frá norðurhluta Síle yfir til Bólivíu og ætla mér svo að heimsækja líka Perú, Ekva- dor og Kólumbíu, hið minnsta, áður en ég fer heim. Þetta er nokkuð sem mig hefur lengi langað að gera; að leggja af stað í opið ferðalag með endastöð óákveðna,“ segir hún en því fræi var sáð fyrir tíu árum í hennar fyrsta bakpokaferðalagi. „Þá fór ég frá Tókýó til Bang- kok á þremur mánuðum en flugmiðinn heim var bókaður áður en ég lagði af stað og mér fannst það svolítið hamlandi. Nú áratug síðar lét ég loksins verða af því að leggja af stað í ferðalag án þess að vita hvenær ég ætla heim. Fyrir vikið er ég mjög sveigjanleg til að haga seglum eftir vindi, sem er frá- bært.“ Við hinn fræga skriðjökul Perito Moreno í Argentínu. FERÐALAG UNU UM SUÐUR-AMERÍKU Hagar seglum eftir vindi En almennt voru þetta auð- og fjöl- farnar gönguleiðir á flestra færi, þar sem hækkunin var aldrei meiri en 1.000 metrar. Helsta áskorunin er veðrið, sem er síbreytilegt í Patagóníu og getur verið hryssingslegt á öllum árstíðum, en fyrir Íslending er það nú engin fyrirstaða, þótt það sé mik- ilvægt að vera vel búinn. Ég lenti samt einu sinni í svo svakalegum vindstreng að hann feykti mér um koll og ég gat ekki staðið upp fyrr en það versta var gengið yfir. Í annað sinn feykti vindhviða sólgleraugunum af nefinu á mér og út í buskann. Ég hélt að Ísland væri hið eina sanna rok- rassgat, en komst að raun um að Pa- tagónía er þekkt sem „Land vindsins“ og það svo sannarlega með réttu.“ Minnir á Ísland Patagónía er að mörgu leyti lík Ís- landi, sem var hluti af ástæðunni fyrir því að Unu langaði þangað. „Ég var forvitin að bera þetta saman enda er maður alinn upp við að hvergi í heim- inum sé fegurra en á Íslandi. Aðspurð segi ég enn hiklaust að Ísland sé ein- hver fegursti staður á jarðríki, en Patagónía er samt engu síðri þegar kemur að víðfeðmi, kyrrð og náttúru- fegurð. Þar er loftið kristalstært og alls staðar hægt að drekka ferskvatn beint úr læknum. En rétt eins og á Ís- landi er þetta viðkvæm fegurð sem þarf að varðveita því þrátt fyrir að Patagónía sé mjög afskekkt eru líka sífellt fleiri sem fara þangað. Ég held að Íslendingar gætu tekið sér ýmis- legt til fyrirmyndar í því hvernig fjöl- sóttustu þjóðgarðarnir eru skipulagð- ir, bæði í Síle og Argentínu, til að hlífa náttúrunni við of miklum ágangi.“ Valdeflandi að ferðast ein Una er ein á ferðalagi og finnst frá- bært að ferðast ein. „Það þýðir að ég þarf aldrei að gera málamiðlanir við neinn nema sjálfa mig. Staðreyndin er líka sú að þegar maður er einn er maður næmari á umhverfið og opnari fyrir því að kynnast fólki og lenda í óvæntum aðstæðum,“ sem hún segir geta verið ótrúlega gefandi. „Ég held ég hafi til dæmis upplifað Patagóníu enn sterkar vegna þess að ég var oft alein á göngu klukkustund- um saman. Mér finnst satt að segja mjög valdeflandi og gaman að þurfa að finna út úr framandi aðstæðum al- gjörlega á eigin spýtur því þá verð ég að treysta á eigin dómgreind. En auð- vitað er maður líka manns gaman. Þótt ég njóti þess að vera ein með sjálfri mér er ég líka mikil félagsvera og er yfirleitt lent í einhverjum fé- lagsskap áður en ég veit af, oft alveg óvænt. Ég hef kynnst ótrúlega áhugaverðu fólki á ferðum mínum, bæði heimamönnum og öðrum ferða- löngum,“ segir Una en hún hefur undanfarin fjögur ár ferðast ein um allar heimsálfurnar utan Suður- skautslandsins en alltaf er reynslan sú sama: „Heimurinn er fullur af góðu fólki. Ef það er einhver að lesa þetta sem langar til að ferðast en er alltaf að bíða eftir ferðafélaga þá er mitt ráð: Ekki bíða of lengi eftir öðr- um, farðu bara af stað með opinn huga. Þú ert þinn eigin besti ferða- félagi.“ Stórkostlegir fjallstindar í Patagóníu. Myndir/Úr einkasafni Þarna eru ekki bílvegir heldur er farið með vistir á bátum þar sem það er hægt eða á hestum. Torres del Paine. Tjaldað var á pöllum sem þessum til að hlífa jörðinni. ’Það er ólýsanlega mik-ið frelsi og hugarrósem felst í því að vaknavið sólarupprás á morgn- ana og hafa ekkert fram undan annað en að pakka í bakpokann og ganga af stað út í náttúruna. Ein öflugustu meltingarensím ámarkaðnum í dag ● Ensím eru nauðsynleg fyrir meltingu og öll efnaskipti líkamans. ● Betri melting, meiri orka! ● Inniheldur ATPro (ATP (orkuefni líkamans), Magnesíum Citrate, Coensime Q10, Phytase). ● Söluhæsta meltingarvaran í Bandaríkjunum. ● 100% vegan hylki. Án fylliefna, bindiefna eða annarra flæðiefna. Fæst í flestum apótekum, heilsubúðum og Fræinu Fjarðarkaupum. Mér finnst gott að fá mér bjór með pizzu en því miður þá verð ég alltaf útþaninn eftir það. Ég að prófaði að taka „Digest Gold“ fyrir máltíðina og viti menn, það bara svínvirkaði! Haraldur Egilsson, 46 ára sjómaður og ævintýragjarn matgæðingur Það bara svínvirkaði! Digest Gold Ensím geta hjálpað til við að slá á óþægindi svo sem,loftmyndun, uppþembu, meltingartruflanir og meltingaróreglu

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.