Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.05.2018, Side 31

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.05.2018, Side 31
ríkisstjórn. Jafnvel land eins og Belgía sem skikkar kjósendur á kjörstað að viðlagðri refsingu, ræður iðu- lega illa við útkomuna. Eftir kosningar í Belgíu 2011 tók 19 mánuði að mynda ríkisstjórn og það hefur oft gengið illa endranær. Spánn hefur verið í hreinum vandræðum líka og nú síðast Holland. Og forysturíkið Þýskaland tók hálft ár í að mynda ríkisstjórn, sem var þó bara ljósrit af seinustu ríkisstjórn. ESB flæmdi Berlusconi úr embætti og setti búrókrat frá sér í forsætisráðherrastól. Þar situr nú annar ut- anþingsmaður, sá þriðji í röð, því að Matteo Renzi kom sem borgarstjóri í Flórens í forsætisráðherrastólinn. Þrívegis í röð hefur ekki tekist að fá lýðræðislega kjör- inn forsætisráðherra í embætti í þessu einu stærsta ríki ESB. Ítalir eru dálítið viðkvæmir fyrir umtali um skort á stjórnmálalegum stöðugleika og aragrúa ríkisstjórna. En nú þegar þeir hafa verið í viðræðum um stjórn í tvo mánuði benda þeir á vandræðaganginn í Þýskalandi og Spáni. Þeir gætu einnig bent á frændur okkar Svía þar sem veik minnihlutastjórn situr að völdum vegna stjórn- málalegs vandræðagangs þar. Og vonandi hafa menn ekki gleymt Grikklandi, „vöggu lýðræðisins“, þar sem andlitslausir búrókratar bönnuðu löglega kjörnum forsætisráðherra að efna til þjóðaratkvæðis, boluðu honum svo úr embætti og sendu embættismann úr Seðlabanka ESB í forsætisráð- herrasætið með áþekkum hætti og Ítalía mátti kyngja slíkum. Lokatilraun í Róm Mattarella forseti Ítalíu er tekinn að hóta nýjum kosn- ingum þar reynist leiðtogarnir ófærir um að leysa dæm- ið. Fimm stjörnu hreyfingin segist tilbúin í stjórn með (Norður-) Bandalaginu gegn því skilyrði að Bandalagið ýti flokki Berlusconis út úr kosningabandalagi þeirra. Það er tvíeggjað fyrir Salvini, leiðtoga Bandalagsins, því saman hafa þeir mest fylgi, flokkar hans og Silvio Ber- lusconis, ásamt smáhægriflokknum „Bræðrum Ítalíu“ (sem reyndar er undir forystu Giorgiu Meloni, sem er fertugt glæsikvendi (!) eins og Silvio væri vís til að orða það). Fráfarandi stjórnarflokkur sósíaldemókrata sem tap- aði miklu í kosningunum, býr nú við alvarlegan klofning. Matteo Renzi, fyrrverandi forsætisráðherra og flokks- leiðtogi, er algjörlega andvígur því að eiga aðild að rík- isstjórn með Fimmstjörnu hreyfingunni, en önnur öfl innanflokks sækja í sig veðrið, hvött til þess af Matt- arella, forseta Ítalíu. Forsetinn segir að demókratar verði nú að sýna nauðsynlega ábyrgðartilfinningu. Fari svo að forsetinn knýi fram kosningar liggur í loft- inu samkomulag um það á milli 5 stjörnunnar annars vegar og Bandalagsins (flokks Berlusconis, Bandalags Salvinis og Bræðra Ítalíu undir forystu Meloni) hins vegar, að breyta kosningalögum þannig að auðveldara verði að ná fram stjórnhæfum meirihluta. Nú eru regl- urnar þannig að fái flokkur eða kosningabandalag 40% atkvæðanna fær hann „bónus“ í útdeilingu þingsæta og þar með öruggan meirihluta á þingi. Svipað fyrirkomulag gildir í Grikklandi. Í Bretlandi gerir kerfi einmenningskjördæma það að verkum að flokkur með byr fær iðulega hreinan meirihluta þótt hann sé fjarri því að hafa meirihluta atkvæða. Þegar Tony Blair vann sinn mikla sigur 1997 fékk hann um 43% atkvæðanna. En atkvæðin lögðust svo vel í kjördæmunum að Blair fékk 418 þingsæti í Neðri deildinni eða 63,4% þingsæta, en Íhaldsflokkurinn með 30,7% atkvæðanna fékk aðeins 165 eða 25% þingmanna. Lýðskrumið á heima til hægri Að undanförnu hafa flokkar sósíaldemókrata beðið af- hroð í hverjum kosningunum af öðrum, ekki síst í Evr- ópu. Í Bandaríkjunum vann Trump Hvíta húsið og repú- blikanar hafa að auki meirihluta í báðum þingdeildum nú. Eins og staðan er þar vestra í augnablikinu eygja demókratar von í að ná meirihluta í Fulltrúadeild þings- ins í kosningunum í nóvember n.k. og ekki er útilokað að þeir nái einnig meirihluta í Öldungadeildinni, þótt það sé ólíklegra. Fréttaskýrendur af nánast öllum fjölmiðlum útskýra hrakfarir flokkanna vinstra megin við miðju í Evrópu og í Bandaríkjunum eins og þeir hafi allir fengið talpunkta úr einum stað. Það er „popúlismi“, „lýðskrum“, sem ræður ferðinni. Hvernig er það útskýrt? Innflytjenda- mál hafa farið úr böndum í Evrópu. Kanslari Þýska- lands viðurkennir það í raun með því að samþykkja að- gerðir til að reyna að vinda ofan af ákvörðunum sínum. Enginn getur neitað því að innstreymi fólks frá ólíkum menningarheimum, í stærri stíl og miklu hraðar en áður hefur sést, hlýtur að vera mál sem stjórnmálamenn eigi að ræða og almenningur megi hafa skoðun á án þess að það kalli á uppnefni í hans garð eða alvarlegar órök- studdar ásakanir. ESB og evran eru í vandræðum. Á að banna umræður um það? Hinir skotheldu skrumarar Í mjög mörg ár eru það þeir flokkar, sem hafa beðið af- hroð undanfarin ár, sem hafa haldið því að kjósendum að það megi allan vanda leysa með auknum ríkisút- gjöldum og þá með hækkuðum sköttum og minnkandi kröfum til einstaklinganna sjálfra um að stuðla að eigin velferð. Hvað væri að því að kalla slíka stefnu „popúl- isma“? Er það ekki lýðskrum í myndarlegum mæli að halda því að fólki að það sé hægt að auðvelda lífsbaráttu þess og fjárhagslega afkomu með því að þrengja að öðrum, aflahæfi þeirra og frelsi og það nánast takmarkalaust? Nú er það svo, að í þjóðfélögum á borð við okkar er ríkari skilningur á því en víðast annars staðar að það beri að rétta hlut þeirra sem búa við þrengingar, tíma- bundnar eða langvarandi. Slík sjónarmið eru ekki ný. Þeirra sér stað á lögbókum Íslendinga frá fyrstu tíð. Það þýðir þó ekki að það sé í mannlegu valdi að afnema lífs- baráttuna. Það er hægt að gera hana sanngjarnari og jafnvel þeir sem telja óþarft að horfa um of til mann- úðarraka viðurkenna að slík sjónarmið eigi rétt af sér af öðrum ástæðum og gagnist öllu þjóðfélaginu, þegar best tekst til. En það eru til öfgar í þessum efnum sem öllum öðrum, þótt sá sem semur talpunktana fyrir fréttaskýr- endahjörð hér á jörð muni seint skrifa upp á það. Sá sem býður þér upp á það, að annar skuli borga allt fyrir þig, og sú lausn sé næstum takmarkalaus, hlýtur að vera nærri því að eiga metið í lýðskrumi. Er það ekki? Morgunblaðið/Kristinn Magnússon ’ Í mjög mörg ár eru það þeir flokkar, sem hafa beðið afhroð undanfarin ár, sem hafa haldið því að kjósendum að það megi allan vanda leysa með auknum ríkisút- gjöldum og þá með hækkuðum sköttum og minnkandi kröfum til einstaklinganna sjálfra um að stuðla að eigin velferð. Hvað væri að því að kalla slíka stefnu „popúlisma?“ 6.5. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.