Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.05.2018, Síða 35
6.5. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
BÓKSALA Í APRÍL
Tekið saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda
1 Í nafni sannleikansViveca Sten
2 Dagar höfnunarElena Ferrante
3 Þorsti Jo Nesbø
4 Leikskólaföt 2Eva Mjöll Einarsdóttir
5
Mið-Austurlönd
Magnús Þorkell
Bernharðsson
6
Stóra bókin um
Hvolpasveitina
Mary Tillworth
7 Allt sundrastChinua Achebe
8 Hvolpasveitin - litabók
9 Týnda systirinB.A. Paris
10 Um harðstjórnTimothy Snyder
11 Gleðilega fæðinguTobba Marinós
12 Fyrstu orðin - leikur að læra
13 Það sem að baki býrMerete Pryds Helle
14 LukkuriddarinnJan-Erik Fjell
15 Gæfuspor - gildin í lífinuGunnar Hersveinn
16 Þitt annað lífRaphaëlle Giordano
17
Ég er að spá í að slútta
þessu
Ian Reid
18 Englar HammúrabísMax Seeck
19
Konan sem át fíl og
grenntist (samt)
Margrét Guðmundsdóttir
20 Litir - leikur að læra
Allar bækur
Ég hlusta mikið á bækur og er
núna að hlusta á ævisögu hennar
Jóhönnu Sigurðardóttur eftir Pál
Valsson, er ekki alveg búin með
hana. Það er gaman
að hlusta á hana því
ég man svo vel
hennar feril og það
sem hún er að segja
frá. Hún er mikil
baráttukona, gefst
ekki upp þó að á
móti blási. Ég mæli með því að
fólk lesi hana.
Svo er ég nýbúin með ótrúlega
góða bók, Ertu vakandi herra
Víkingur?, eftir Stefaníu G. Gísla-
dóttur. Hún segir frá fjölskyldu
sem fluttist til Ástralíu frá Norð-
firði. Ég mæli líka eindregið með
henni. Þetta er saga um ungan
mann sem fluttist
með fjölskyldu sinni,
foreldrum og átta
systkinum til Ástr-
alíu 1969, þegar
hann var ellefu ára.
Hann lýsir því í bók-
inni hvernig hann
var ofvirkur og hefði örugglega
verið greindur með ADHD í dag.
Hann var meira að segja sendur á
Breiðavík á sínum tíma, en slapp
þaðan af því að fjölskyldan ákvað
að flytjast til Ástralíu. Þetta er
stórmerkileg bók og ég mæli mjög
með henni.
ÉG VAR AÐ HLUSTA
Kristrún
Gunnarsdóttir
Kristrún Gunnarsdóttir er húsvörður
í Grunnskólanum á Djúpavogi.
Draugsól heitir fjórða bindið í sagnabálknum
Þriggja heima saga eftir þá Kjartan Yngva
Björnsson og Snæbjörn Brynjarsson, en áður
eru komnar Hrafnsauga, Draumsverð og Orms-
tunga. Þriggja heima saga segir frá Ragnari,
Breka og Sirju sem glíma við veldi Skugganna
og manngálkn þeirra. Í Draugsól er þar komið
sögu að vetur er skollinn á og átök í aðsigi; í
norðri berjast Janarnir fyrir lífi sínu, í austri
skelfur jörðin undan stærsta her sem heimurinn
hefur séð og í suðri hlýtur Sirja þjálfun í listum
sverðameistaranna. Forlagið gefur út.
Í febrúar 1959 brast á með illviðri með mikilli
ísingu þar sem íslenskir togarar voru á karfa-
veiðum við Nýfundnaland. Einn togaranna fórst
með allri áhöfn en á öðrum togurum tókst
mönnum að brjóta ísbrynjuna af og skera burt
allt sem skera mátti til að koma í veg fyrir að
skipinu hvolfdi. Þetta veður er baksvið Storm-
fugls, skáldsögu Einars Kárasonar, sem Forlagið
hefur gefið út. Þess má geta að handrit bók-
arinnar vakti mikla athygi á bókakaupstefnu í
Lundúnum fyrir stuttu og var slegist um að fá
að gefa hana út á erlendum málum.
Þriðja bindið í skáldævisögu Normu E. Sam-
úelsdóttur Melastelpan III: Minninga- og bar-
áttusaga húsmóður í Þingholtunum, kom út fyr-
ir skemmstu. Í bókinni segir Norma frá ævi og
örlögum Elísabetar Mc.Tosh Magnúsdóttur,
húsmóðurinnar í Þingholtunum sem er nú orð-
in 65 ára og lítur yfir ævi sína. Í kynningu á kápu
bókarinnar segir svo: „Það gengur á ýmsu í ævi
manneskju, brauðstrit, barátta. Beta, sextíu og
fimm ára, lítur til baka. Margs vísari. Komst
næstum heil heim.“
NÝJAR BÆKUR
Fyrir stuttu kom út glæpasaganMarrið í stiganum eftir EvuBjörgu Ægisdóttur, en fyrir
bókina hlaut hún spennusagnaverð-
launin Svartfuglinn. Í bókinni segir
frá því er ung kona finnst myrt í fjör-
unni við Akranes og lögreglukonunni
Elmu er falið að rannsaka málið.
Marrið í stiganum er fyrsta bók
Evu, en hún segist hafa verið að
skrifa skáldskap frá því hún var lítil.
„Ég skrifaði dagbækur sem voru
mjög færðar í stílinn og orti líka ljóð.
Sem unglingur fór ég að skrifa smá-
sögur og vann meðal annars í smá-
sagnakeppni.
Ég ætlaði mér alltaf að skrifa
skáldsögu en það varð aldrei af því
fyrr ég þegar ég var að klára mast-
ersnám og ákvað að demba mér í
skrifin,“ segir hún og bætir við að
hún hafi byrjað á bókinni sem varð
að Marrinu í stiganum í lok árs 2016
og lokið við hana seint á síðasta ári.
Eins og hún rekur söguna var hún
ekki með neina sérstaka hugmynd í
huga þegar hún settist niður til að
skrifa skáldsögu. „Ég byrjaði á þó-
nokkrum sögum áður en ég festi mig
við þá hugmynd sem varð svo að
bókinni.“
– Af hverju kaustu að skrifa
glæpasögu?
„Það var ekki beinlínis meðvituð
ákvörðun. Ég lærði félagsfræði og
hef þó alltaf haft mikinn áhuga á
sakamálafræðum, BA-ritgerðin mín
fjallaði um hlutverk fangelsa í nú-
tímasamfélagi. Þegar ég skrifaði
mína fyrstu smásögu var það einmitt
sakamálasaga, saga um stelpu sem
hrindir vinkonu sinni fram af kletti.“
– Sakamálasaga getur náttúrlega
verið um meira en það hver framdi
glæpinn.
„Nákvæmlega. Ég ætlaði reyndar
ekki að gera sögu sem væri sögð frá
sjónarhorni lögreglunnar, en hún
endaði þannig. Ég hef líka mikinn
áhuga á alls konar glæpasögum sem
eru meira um venjulegt fólk í
óvenjulegum aðstæðum. Ég hef svo
mikinn áhuga á því hvernig fólk ger-
ir vonda hluti og af hverju. Það er
vont og gott í öllum og ég hugsa að
undir vissum kringumstæðum geti
flestir örugglega framið morð.“
Aðalpersóna bókarinnar er lög-
reglukonan Elma, sem er alin upp á
Akranesi, líkt og Eva reyndar, ger-
ist síðan lögreglukona í Reykjavík,
en snýr aftur á heimaslóðir. Aðspurð
hvort Elma eigi sér framhaldslíf
segir Eva að hún sjái það fyrir sér,
það sé ýmislegt óuppgert í sögu
Elmu, „en ég held ég myndi aldrei
fara í tíu eða tuttugu bækur um
sama karakterinn, þótt ég vilji ekki
lofa neinu. Ég get hugsað mér að-
eins meira til að klára hennar per-
sónulegu mál“.
Eins og getið er hreppti handrit
Evu spennusagnaverðlaunin Svart-
fuglinn og hún segir að það hafi
komið sér skemmtilega á óvart. „Ég
sá keppnina auglýsta og var svo
heppin að vera byrjuð að skrifa bók-
ina, enda var fyrirvarinn stuttur.
Þegar ég sá svo að það komu inn
þrjátíu handrit var ég viss um að ég
ætti ekki séns, þannig að ég var eðli-
lega mjög ánægð með að hljóta verð-
launin.“
Vont og gott í öllum
Eva Björg Ægisdóttir sendi frá sér sína fyrstu skáldsögu fyrir stuttu,
glæpasöguna Marrið í stiganum, og hlaut fyrir spennusagnaverðlaun.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Eva Björg Ægisdóttir hefur mikinn áhuga á glæpasögum af venjulegu fólki.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þarftu að framkvæma?
Við eigum pallana fyrir þig
www.kvarnir.is
1996
2016
20 ÁRA
Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Álfhellu 9 | 221 Hafnarfirði
sími 564 6070 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is