Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.07.2018, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 09.07.2018, Qupperneq 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 6 0 . T Ö L U B L A Ð 1 8 . Á R G A N G U R M Á N U D A G U R 9 . J Ú L Í 2 0 1 8 Borgargrátt öflugur liðstyrkur Fréttablaðið í dag SKOÐUN Guðmundur Stein- grímsson vill nýja þjóðarsátt. 11 TÍMAMÓT Hitamet var slegið í Reykjavík fyrir 42 árum. 14 LÍFIÐ Förðunarfræðingur stjarnanna með námskeið. 22 PLÚS 2 SÉRBLÖÐ l FÓLK l  FASTEIGNIR *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 LÖGREGLUMÁL Eigandi veitinga- húss í miðbæ Reykjavíkur hefur verið kærður til lögreglu fyrir kyn- ferðislega áreitni. Minnst tvær ungar konur hafa lagt fram kæru á hendur veitingamanninum. Þetta staðfestir Sigrún Jóhanns- dóttir, lögmaður kvennanna. Lög- regla rannsakar nú málið. Konurnar störfuðu sem þjónar á veitingastaðnum þegar brotin eiga að hafa átt sér stað. Manninum er gefið að sök að hafa ítrekað káfað, þuklað og strokið konunum, þving- að tungu sinni upp í munn þeirra eftir vaktir og viðhaft óviðeigandi og klámfengin ummæli um útlit þeirra og eigin kynferðislegu langanir. Að sögn kvennanna fékk hegð- unin að viðgangast undir því yfir- skini að um menningarmun væri að ræða, en maðurinn er af erlendu bergi brotinn. Mikill aldursmunur er á honum og konunum, sem margar voru að stíga sín fyrsta skref á vinnu- markaðnum. Meint brot eru sögð ná yfir margra ára tímabil. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins íhuga fleiri konur stöðu sína. Konurnar leituðu til Vinnueftir- litsins eftir að hafa rætt við starfs- mannastjóra veitingastaðarins. Hjá Vinnueftirlitinu fengu konurnar þau svör að lítið sem ekkert væri hægt að gera í slíkum málum þar sem ekki væri hægt að kvarta nafnlaust. Þetta segir Sigrún að sé rangt. Vinnueftir- litið hafi eftirlitsskyldu í málum er varða kynferðislega áreitni á vinnu- stað og beri að sjá til þess að vinnu- veitandi grípi til viðeigandi úrbóta, sé þess þörf. Hægt hefði verið að koma í veg fyrir að málið fengi að vinda upp á sig. Starfsmaður Vinnueftirlitsins benti konunum á að hafa samband við stéttarfélag sitt, Eflingu. Þar sagð- ist starfsmaður ekkert geta aðhafst nema að búið væri að kæra manninn fyrir kynferðislega áreitni. „Það að leggja fram kæru á hendur vinnuveitanda fyrir kynferðisbrot er meira en að segja það og algjörlega ótækt að setja slíka ábyrgð á einstak- ling sem er á sama tíma að vinna úr afleiðingum brotsins,“ segir Sigrún. „Að enginn annar en þolandinn sjálfur geti stöðvað áframhaldandi brot yfirmanns er algjörlega óásætt- anlegt.“ Svava Jónsdóttir, sviðsstjóri hjá Vinnueftirliti ríkisins, segir mál af þessum toga hafa verið snúin hingað til. Hún þekki ekki umrætt mál en vinnuveitandi hafi til þessa getað óskað eftir upplýsingum um kvörtun samkvæmt stjórnsýslu- og upplýsingalögum og því fengið upp- lýsingar um þann sem kvartaði. „Við tökum á móti ábendingum og formlegum kvörtunum frá einstakl- ingum. Það sem við getum svo gert er að fara inn á viðkomandi vinnustað og skoða almennt vinnuumhverfið. Við getum hins vegar ekki beitt okkur út frá einstaklingsmáli. Vegna þess að ef við segjum að okkur hafi borist kvörtun þá hefur viðkomandi vinnustaður heimild til að óska eftir upplýsingum um gögnin sem við höfum,“ segir Svava. Fyrir þinglok hafi hins vegar verið samþykkt að Vinnueftirlitið fengi heimild til að halda trúnaði við þann sem kvartar. „Við erum ekki komin það langt að við getum farið að breyta þessu en við munum setja starfsreglur um það eftir sumarið. Nú höfum við að minnsta kosti sterkari möguleika til að ganga harðar fram með þessum lagabreytingum,“ segir Svava Jóns- dóttir. – gj Veitingamaður kærður fyrir margra ára áreitni Meint brot veitingamanns eru sögð ná yfir margra ára tímabil. Konur sem unnu á veitingastað mannsins í miðbænum segja hegðunina hafa viðgengist á þeim forsendum að um menningarmun væri að ræða. Vinnueftirlitið hafi brugðist. Að enginn annar en þolandinn sjálfur geti stöðvað áframhaldandi brot yfirmanns er algjörlega óásættanlegt. Sigrún Jóhanns- dóttir, lögmaður DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykjavík- ur segir synjun Tryggingastofnunar ríkisins á umsókn föður langveiks, tólfa ára drengs um tekjutengdar greiðslur andstæða stjórnarskrá. Dómurinn átelur ríkið fyrir að ganga hart fram gegn feðgunum. „Við gæslu hagsmuna ríkis- valdsins eða einstakra þátta þess í skiptum við almenna borgara getur það ekki verið hlutverk stjórnvalda að leita allra leiða eða beita öllum brögðum til að fá sýknu fyrir hið opinbera eða til að fá málum vísað frá dómi,“ segir í dómnum. – jóe / sjá síðu 4 Aðgangsharka ríkisins átalin TAÍLAND Fjórum af taílensku drengj- unum tólf sem fastir hafa verið í helli var bjargað í gær. Hagstæð skilyrði mynduðust til björgunarað- gerða og var ákveðið að ráðast í þær. Kafarateymi fylgdi drengjunum fjórum út í tveimur hollum. Aðgerð- irnar þykja hafa tekist vonum framar. „Þessi björgun var okkar meist- araverk,“ sagði yfirmaður aðgerð- anna. – smj / sjá síðu 8 Fjórir drengir heilir á húfi Enn drynur í Fagraskógarfjalli þegar smærri skriður falla úr fjallinu. Sú stærsta fór af stað aðfaranótt laugardags. Sú er um tveggja kílómetra breið og margra mannhæða há þar sem mest er. Enn er á huldu hve mikil áhrif framburðurinn mun hafa á lífríki Hítarár. Sjá síðu 6 FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Sjúkrabílar flytja fjóra taílenska drengi á spítala. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Hamfarir í Hítardal 0 9 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :1 3 F B 0 4 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 5 6 -A 1 4 C 2 0 5 6 -A 0 1 0 2 0 5 6 -9 E D 4 2 0 5 6 -9 D 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 0 s _ 8 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.