Fréttablaðið - 09.07.2018, Blaðsíða 2
Veður
Suðvestan 13-23, áfram hvassast
norðvestan til og á miðhálendinu.
Víða skúrir, en léttskýjað austan-
lands. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á
Austurlandi. SJÁ SÍÐU 16
Flísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
30%
afmælisafsláttur
á Heliosa hiturum
HELIOSA hitarar henta bæði
innan- og utandyra.
Helstu kostir HELIOSA hitara eru:
• Hitna strax
• Vindur hefur ekki áhrif
• Vatnsheldir og menga ekki
Margar gerðir til á lager.
Finndu okkur
á facebook
Flísabúðin
30
ÁRA
2018
Skógarævintýri í Heiðmörk
Ungir sem aldnir léku við hvern sinn fingur á árlegum Skógarleikum Skógræktarfélags Reykjavíkur í Furulundi í Heiðmörk. Skógarhöggsmenn
kepptu í axarkasti, sporaklifri, bolahöggi og afkvistun trjábola. Gestir tálguðu undir handleiðslu meistara og spreyttu sig á skreytingum. Að þessu
sinni var áhersla lögð á að sýna hvernig hægt er að náttúrulita með hráefni úr skóginum. Og auðvitað var varðeldur og grill. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
DÓMSMÁL Bjarni Bærings Bjarnason
er bótaskyldur gagnvart félaginu
Brúarreykjum ehf. vegna tjóns sem
félagið gæti hafa orðið fyrir vegna
aðgerðaleysis hans eftir að dreifing
afurða mjólkurbúsins Brúarreykja
var bönnuð með ákvörðun Mat-
vælastofnunar (MAST) árið 2013.
Héraðsdómur Vesturlands kvað upp
dóm þessa efnis fyrir helgi.
Brúarreykir ehf. var stofnað af
Bjarna og þáverandi sambýliskonu
hans árið 2002 og áttu þau félagið
að jöfnu. Sá Bjarni um búrekstur og
var framkvæmdastjóri félagsins til
2011 en þá var kona hans skráð í
framkvæmdastjórn þess.
Í nóvember 2012 afturkallaði
MAST starfsleyfi Brúarreykja til
matvælaframleiðslu vegna ítrekaðra
brota á lögum og reglugerðum um
matvæli á árinu. Sú ákvörðun var
síðar staðfest af atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytinu.
Starfsleyfi var veitt að nýju í janú-
ar 2013 en í kjölfar eftirlitsferðar
MAST í febrúar sama ár var aðstaða
og fóðrun gripa metin óásættanleg.
Farið var fram á ýmsar úrbætur og
gripir teknir til aflífunar.
Í júní sama ár var afhending
afurða og dýra frá búinu bönnuð
meðal annars vegna þess að með-
ferð dýralyfja hefði ekki verið í sam-
ræmi við lög og reglur. Bjarni stefndi
ríkinu til ógildingar á þessum
aðgerðum og taldi um valdníðslu
af hálfu MAST ræða. Þeim málatil-
búnaði var hafnað.
Banninu var aflétt, að skilyrðum
uppfylltum, í ágúst en í mars 2014
var starfsleyfið afturkallað á ný. Var
það meðal annars vegna þess að eft-
irlitsmönnum var neitað um aðgang
að búinu. Allir nautgripir félagsins
voru síðan seldir í júní 2014.
Brúarreykir báru því við að Bjarni
hefði séð um allan daglegan búrekst-
ur frá árinu 2011 auk þess að vera
hluthafi og prókúruhafi. Byggt var á
því að með athafna- og aðgerðaleysi
sínu hefði hann bakað búinu tjón.
Það fólst í því að í stað þess að vinna
að úrbótum á aðbúnaði til að tryggja
áframhaldandi sölu afurða frá búinu
hefði Bjarni einbeitt sér að því að
véfengja niðurstöður MAST. Með því
hefði hann aukið á tjón búsins í stað
þess að lágmarka það.
Varnir Bjarna byggðu á því að
meðeigandi hans hefði einnig
gegnt stöðu framkvæmdastjóra og
málinu því verið ranglega beint að
honum einum. Þá hefðu aðgerðir
hans, meðal annars sala búpen-
ings, miðað að því að draga úr tjóni
Brúarreykja.
Héraðsdómur taldi Bjarna hafa
verið ábyrgan fyrir því að rekstur
búsins væri í lagi enda óumdeilt
að hann hefði séð um hann. Með
því að hafa ekki reynt að tryggja
að aðbúnaður væri í löglegu horfi
bæri hann bótaábyrgð á tjóni. Þá
var sala búfjárins metin óvenjuleg
og mikilsháttar ráðstöfun í skilningi
hlutafélagalaga sem samþykki hlut-
hafa hefði þurft fyrir.
Bótaábyrgð var felld á Bjarna og
þarf hann að auki að greiða rúma
milljón í málskostnað.
joli@frettabladid.is
Bótaskylda fyrir að láta
búrekstur sinn dankast
Héraðsdómur Vesturlands féllst á að búfjárhaldari á Brúarreykjum á Vesturlandi
væri bótaskyldur gagnvart hlutafélagi sem átti búið. Sala afurða frá búinu var
bönnuð árið 2013 vegna lélegrar aðstöðu og ólöglegrar notkunar á dýralyfjum.
Aðbúnaður á búinu áður en gripirnir voru seldir á brott. MYND/MATVÆLASTOFNUN
BYGGINGAR „Þetta er stormur í vatns-
glasi,“ segir Þorvaldur Gissurarson,
forstjóri ÞG verks. Nýverið kom í
ljós að asbest er að finna í skrifstofu-
húsnæðinu að Urðarhvarfi 8. ÞG
verk keypti nýverið þetta 16 þúsund
fermetra húsnæði aftur eftir að hafa
byggt það fyrir hrun. Það hefur þó
aldrei verið fullklárað og velkst um
hálfkarað síðan Íslandsbanki leysti
það til sín árið 2011.
RÚV greindi frá asbest-uppgötv-
uninni í síðustu viku en það er að
finna í plötum milli glugga. Notkun
á asbesti er bönnuð og hefur verið
um árabil. RÚV greindi frá því að
Byko hefði flutt einingarnar inn
frá Kína á sínum tíma en ekkert í
innihaldslýsingum hefði bent til að
asbest væri að finna í þeim. Efnið
fannst við athugun verkfræðistofu.
Aðspurður segir Þorvaldur ekki
ástæðu til að hafa áhyggjur af þeim
verkamönnum sem unnu með efnið
óafvitandi á sínum tíma.
„Þetta kemur samsett frá Kína
og er inni í kerfinu, þannig að það
kemur enginn við þetta, enginn
nálægt þessu og þetta er í loft- og
vatnsþéttum og aflokuðum álein-
ingum. Þar fyrir utan er þetta í svo
litlu magni að það er vart mælan-
legt. Þetta eru ekki asbestplötur,
þetta eru örlitlar leifar af þessari
efnasamsetningu, um eða innan við
1 prósent af plötunum.“
Brugðist verði þó við samkvæmt
nútímakröfum og einingarnar fjar-
lægðar. RÚV hafði eftir Vinnueftir-
litinu að Byko muni bera kostnaðinn
af því þegar af verður. – smj
Engar áhyggjur
af asbest-máli
Áður en hið umdeilda gluggakerfi var
sett í Urðarhvarf 8. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VIÐSKIPTI Stjórnendur Icelandair
Group hafa lækkað afkomuspá
félagsins fyrir þetta ár um 50 til 70
milljónir dala, eða frá 18 upp í allt
að 37 prósent. Þeir segja horfur í
rekstrinum lakari en gert varð ráð
fyrir. Þetta kom fram í afkomuvið-
vörun frá félaginu í gær.
EBITDA-hagnaður Icelandair
Group er sagður verða 120 til 140
milljónir dala á árinu í samanburði
við 170 til 190 milljónir dala sam-
kvæmt fyrri spá. EBITDA félagsins
nam 170,2 milljónum dala í fyrra.
Talsvert rask hafi orðið í flugáætlun
undanfarnar vikur, seinkun á inn-
leiðingu flugvéla, veðurfar og fleira
hafi valdið auknum kostnaði auk
þess sem tekjur hafi tapast.
„Sú staða sem við erum að horfa
upp á núna er okkur talsverð
vonbrigði,“ er haft eftir Björgólfi
Jóhannssyni, forstjóra Icelandair
Group, í tilkynningu sem send var
Kauphöllinni. – kij
Tekjurnar lækka
hjá Icelandair
9 . J Ú L Í 2 0 1 8 M Á N U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
9
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:1
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
5
6
-A
6
3
C
2
0
5
6
-A
5
0
0
2
0
5
6
-A
3
C
4
2
0
5
6
-A
2
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
0
s
_
8
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K