Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.07.2018, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 09.07.2018, Qupperneq 12
Stjarna helgarinnar á HM 2018 Jordan Pickford lék sinn besta landsleik þegar England bar sigur- orð af Svíþjóð, 0-2, í 8-liða úrslitum á HM í Rússlandi á laugardaginn. Eftir náðugan fyrri hálfleik þurfti Pickford nokkrum sinnum að taka á honum stóra sínum í seinni hálfleik. Hann varði til að mynda tvisvar frá Marcus Berg og einu sinni frá Viktor Claesson og sá til þess að Eng- land hélt hreinu í fyrsta skipti á HM 2018. Pickford, sem er 24 ára, hefur náð ótrúlega langt á stuttum tíma en það er ekki langt síðan hann lék í utan- deildinni á Eng- landi. HM 2018 í Rússlandi, 8-liða úrslit Svíþjóð - England 0-2 0-1 Harry Maguire (30), 0-2 Dele Alli (59.). Rússland - Króatía 2-2 (3-4) 1-0 Denis Cheryshev (31.), 1-1 Andrej Kramaric (39.), 1-2 Domagoj Vida (101.), 2-2 Mario Fernandes (115.). Króatía vann í vítakeppni, 3-4. England og Króatía mætast í undanúrslitum HM í Moskvu á miðvikudaginn. FH - Grindavík 2-1 1-0 Steven Lennon, víti (32.), 2-0 Brandur Olsen (58.), 2-1 Rodrigo Gomes Mateo (76.). Rauð spjöld: Brynjar Ásgeir Guðmundsson, Grindavík (31.), Pétur Viðarsson, FH (48.). Keflavík - Stjarnan 0-2 0-1 Guðmundur Steinn Hafsteinsson (15.), 0-2 Hilmar Árni Halldórsson (27.). ÍBV - Breiðablik 0-0 Efri Stjarnan 25 Valur 25 Breiðablik 19 FH 19 Grindavík 17 KR 14 Neðri KA 12 ÍBV 12 Víkingur R. 12 Fjölnir 12 Fylkir 11 Keflavík 3 Pepsi-deild karla Komnir í undanúrslit á HM í fyrsta sinn síðan 1990 Næstum þriggja áratug bið á enda. Dele Alli fagnar eftir að hafa gulltryggt Englandi 0-2 sigur á Svíþjóð í 8-liða úrslitum á HM í Rússlandi á laugar- daginn. Englendingar eru því komnir í undanúrslit á HM í fyrsta sinn síðan 1990. Þar mæta þeir Króötum. Englendingar eru fótboltaóðir sem aldrei fyrr og kyrja lagið vinsæla „Three Lions“, þar sem sungið er um að fótboltinn sé kominn heim, við hvert einasta tækifæri. NORDICPHOTOS/GETTY 9 . J Ú L Í 2 0 1 8 M Á N U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR „Ég vissi þann- ig séð að ég myndi enda á palli í 200 metra hlaupi en 100 metrarnir komu á óvart. Ég var með áttunda besta tímann inn í úrslitin. Það var gaman að komast þangað og geggjað að verða í 1. sæti,“ sagði Evrópumeistarinn Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir í samtali við Frétta- blaðið í gær. Guðbjörg gerði sér lítið fyrir og vann til tvennra verðlauna á Evr- ópumeistaramóti 18 ára og yngri í Györ í Ungverjalandi sem lauk í gær. Á föstudaginn kom hún fyrst í mark í úrslitum í 100 metra hlaupi. Sigurtíminn var 11,75 sekúndur en Guðbjörg var sex þúsundustu úr sekúndu á undan Pameru Losange frá Frakklandi og Boglörku Takács frá Ungverjalandi. Besti tími hennar í greininni er 11,68 sekúndur. Á laugardaginn bætti Guðbjörg svo bronsmedalíu í safnið þegar hún varð þriðja í úrslitum í 200 metra hlaupi sem er hennar sterkasta grein. Hún var með næstbesta tím- ann inn í úrslitin; 23,70 sekúndur. Í úrslitunum kom Guðbjörg í mark á 23,73 sekúndum en hennar besti tími í greininni er 23,61 sek- únda.Adeleke Rhasidat frá Írlandi varð hlutskörpust á 23,52 sekúnd- um og hin franska Joseph Gemima varð önnur á 23,60 sekúndum. „Markmiðið var að komast í úrslit og ná sem bestum tíma en ekkert endilega að komast á pall,“ segir Guðbjörg um væntingarnar fyrir 200 metra hlaupið. Hún kveðst ánægð með tímana sem hún náði á EM, ekki síst þegar tekið er mið af álaginu sem er á hlaupurum á mótum sem þessum. „Sérstaklega miðað við hvað þetta eru mörg hlaup. Það er ekkert alltaf hægt að hlaupa á bestu tímunum eftir 4–5 hlaup. Þetta voru mjög góðir tímar miðað við það,“ segir Guðbjörg sem hefur æft frjálsar íþróttir í sex ár. Frá 14 ára aldri hefur hún einbeitt sér að hlaupum. Eins og áður sagði er 200 metra hlaup sterkasta grein Guðbjargar. Hún gæti þó einbeitt sér meira að 400 metra hlaupi eftir því sem fram líða stundir. „Hundrað metra hlaup er eigin- lega of stutt fyrir mig því ég er betri í endann. Það er betra fyrir mig að vera í aðeins lengri hlaupum,“ segir Guðbjörg sem hefur keppt í 400 metra hlaupi þótt hún æfi ekki sér- staklega fyrir það. Guðbjörg vonast til að geta nýtt meðbyrinn sem hún fékk á EM í næstu verkefni hjá sér. Hún er jafn- framt þakklát fyrir stuðninginn sem hún hefur fengið síðustu daga. „Vonandi get ég bætt tímana mína og það væri gaman að komast oftar á pall. Það er frábært að vita að maður geti gert þetta og fá allan þennan stuðning. Ég hef fengið fullt af skilaboðum og það er frábært að fólk sé að fylgjast með þessu. Það ýtir manni áfram til að bæta sig á æfingum og í keppni,“ segir Guð- björg sem verður ekki 17 ára fyrr en á aðfangadag. En hvernig sér hún fyrir sér næstu skref á ferlinum og framhaldið? „Mig langar kannski að fara í skóla til Bandaríkjanna eftir menntaskólann en það kemur bara allt í ljós. Það er langt þangað til maður þarf að fara að pæla í því,“ segir Evrópumeistarinn Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir að lokum. ingvithor@frettabladid.is Frábært að fólk fylgist með Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, 16 ára hlaupakona úr ÍR, náði frábærum árangri á Evrópumeistaramóti U-18 ára sem lauk í gær. Hún vann til gullverðlauna í 100 metra hlaupi og bronsverðlauna í 200 metra hlaupi. Íslenskur sigur í lokaumferðinni HANDBOLTI Ísland vann nauman sigur á Síle, 23-22, í lokaumferð riðla- keppninnar á HM U-20 ára kvenna í handbolta í gær. Mótið fer fram í Debrechen í Ungverjalandi. Lovísa Thompson skoraði sigur- mark Íslands þegar tæpar tvær mínútur voru til leiksloka. Hún var markahæst í íslenska liðinu með sjö mörk. Ísland endaði í 3. sæti B-riðils og mætir Noregi, sem endaði í 2. sæti A-riðils, í 16-liða úrslitum mótsins á morgun. Sigurvegarinn mætir Frakklandi eða Japan í 8-liða úrslit- unum á miðvikudaginn. – iþs Evrópumeistarinn Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir. MYND/GUNNLAUGUR JÚLÍUSSON 0 9 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :1 3 F B 0 4 0 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 5 6 -B 0 1 C 2 0 5 6 -A E E 0 2 0 5 6 -A D A 4 2 0 5 6 -A C 6 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 0 s _ 8 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.