Fréttablaðið - 09.07.2018, Síða 14

Fréttablaðið - 09.07.2018, Síða 14
Helga féll fyrir stemningunni á Eistnaflugi og hlakkar mikið til hátíðarinnar. MYND/ÞÓRSTEINNThe Vintage Caravan hefur spilað á Eistnaflugi áður og snýr aftur í ár. MYND/GAUI H Það er harðbannað að vera fáviti á Eistnaflugi og þar hafa aldrei komið upp alvarlega ofbeldismál. MYND/RONALD ROGGE Þungarokkshátíðin Eistnaflug hefur verið haldin í Neskaup­stað á hverju ári síðan 2005 og í ár fer hún fram milli 11. og 14. júlí. Þar koma margar af fremstu þungarokkssveitum landsins fram ásamt ýmsum þekktum erlendum sveitum, eins og til dæmis Kreator, Týr, Watain, Batushka og Ana­ thema. „Eistnaflug er það sem við köllum árshátíð þungarokksins á Íslandi. Þarna koma allir þunga­ rokkararnir saman einu sinni á ári og fagna,“ segir Helga Dóra Jóhannesdóttir, sölustjóri hátíðar­ innar. „Þetta byrjaði með vinahópi sem fór í rútu til Neskaupstaðar til að halda partí, en Stefán Magnús­ son, stofnandi Eistnaflugs, bjó þar á þeim tíma. Þetta varð svo að hefð og síðan hefur hátíðin stækkað með hverju ári. Íslensku þungarokkararnir eru mjög hollir og tryggir Eistnaflugi og hátíðin er nú orðin nógu stór til að vera alþjóðleg þungarokkshátíð.“ Stemningin og andrúms- loftið aðalatriðið „Það sem gerir Eistnaflug einstakt er stemningin og andrúmsloftið. Þó að þetta sé árshátíð þungarokk­ ara þá er þungarokkið í rauninni í öðru sæti á eftir þessu,“ segir Helga Dóra. „Það er einstök vinátta í gangi, fólk er hjálpsamt og það er mikil gleði í gangi. Þó fötin séu svört og sumum þyki kannski sumt við þungarokksmenningu ógnvekjandi er ótrúlega mikil gleði í gangi. Í fyrra kom líka fullt af fjölskyldum, enda hefur Neskaup­ staður sérstaklega fjölskylduvænt útilegusvæði. Við höfum tekið mjög skýra afstöðu gegn ofbeldi og það hafa ekki komið upp nein alvarleg mál á Eistnaflugi, sem við erum ótrú­ lega stolt af,“ segir Helga Dóra. „Við gerum líka ýmislegt til að koma í veg fyrir það og erum bæði með öfluga gæslu og fólk frá Aflinu frá Akureyri, sem eru systursamtök Stígamóta og þau eru sýnileg og í viðbragðsstöðu alla hátíðina. Fólkið stendur líka saman og þetta slagorð okkar, „bannað að vera fáviti“, hjálpar mikið til,“ segir Helga Dóra. „Árið 2013 varð ég vitni að stympingum á milli tveggja stráka en þá gekk stelpa á milli þeirra og sagði: „Strákar, þið vitið að það er bannað að vera fáviti hérna,“ og það stoppaði þá.“ Margar spennandi hljóm- sveitir „Í ár erum við að reyna að komast aftur að rótum Eistnaflugs, tón­ listarlega séð. Hátíðin hefur orðið fjölbreyttari með árunum og fleiri tónlistarstefnur hafa komist að, en við viljum leggja áhersluna aftur á þungarokkið og að fagna fjöl­ breytileika þess,“ segir Helga Dóra. „En svo erum við líka alltaf með partí á laugardagskvöldinu og í ár ætlar Gus Gus að spila, svo þar fær fólk frí frá þungarokkinu og getur dansað við öðruvísi tónlist. Ég er alltaf spenntust fyrir vinum mínum í íslensku sveitunum, en það koma líka margar spennandi erlendar sveitir. Af þeim er ég klár­ lega spenntust fyrir Kreator,“ segir Helga Dóra. „En það er líka mikil spenna fyrir Watain, Batuskha og Týr. Ég heyri mikið talað um að fólk vilji koma til að sjá Týr, enda eru þeir vel þekktir og vinsælir hér á landi.“ Ýmis jákvæð áhrif „Það er mikil ánægja með hátíðina í Neskaupstað,“ segir Helga Dóra. „Fólk hefur gaman af henni og hún dregur fleiri ferðamenn til bæjarins en nokkur annar við­ burður. Fyrir vikið fáum við rosa­ lega mikinn stuðning og hjálp frá heimamönnum. Eistnaflug hefur líka haft frábær áhrif á þungarokk á Íslandi, því hátíðin hefur veitt íslenskum sveitum aukin tækifæri í útlönd­ um,“ segir Helga Dóra. „Hún dregur hingað fulltrúa frá erlendum útgáfufyrirtækjum og fjölmiðlum og það hefur hjálpað íslenskum sveitum mjög mikið við að koma sér á framfæri. Sveitir eins og Une Misère, Auðn, Misþyrming, Kontinuum og fleiri hafa til dæmis fengið tækifæri erlendis af því að það var tekið eftir þeim á Eistnaflugi. Við erum rosalega ánægð með að Eistnaflug hafi þessi áhrif,“ segir Helga Dóra. „Íslenskur svartmálmur er orðinn mjög vinsæll erlendis og mörgum finnst magnað hvað litla Ísland getur alið af sér mikið af vönduðu þungarokki.“ Síðhærðir þungarokkarar og Abba „Ég hef verið þungarokkari síðan ég man eftir mér en það var ekki fyrr en árið 2013 sem ég fór á Eistnaflug fyrsta sinn. Mér fannst ótrúlegt að sjá alla vináttuna og jákvæðnina sem var allsráðandi,“ segir Helga Dóra. „Það var ekki mikil ölvun og það voru allir bara „ligeglad“. Það var líka einstök stemning inni í Egilsbúð, þar sem hátíðin var lengi haldin áður en hún stækkaði. Ég sá strax eftir að hafa ekki farið áður og ákvað að ég myndi alltaf fara. Hápunkturinn fyrir mig var svo þegar ég kom inn í Egilsbúð á laugardagskvöldi og ég sá alla síðhærðu þungarokkarana bera að ofan í leðurjökkunum sínum að missa sig í diskógleði, dansandi við Abba.“ Bjartsýn á framtíðina Á næsta ári verður haldin stór þungarokkshátíð í Reykjavík, sem ber heitið Reykjavík Metalfest. Helga hefur engar áhyggjur af því að hátíðin veiti Eistnaflugi sam­ keppni. „Vinir okkar sjá um þessa hátíð, við erum í góðum samskipt­ um og hátíðirnar eru mjög ólíkar,“ segir Helga Dóra. „Það er gjörólík upplifun að fara á þungarokks­ hátíð í miðbæ Reykjavíkur eða fara á svona hátíð sem er úti á landi og fólk ferðast langa leið, tjaldar eða gistir á hóteli og er á hátíðinni allan sólarhringinn í nokkra daga. Það er stór hópur af fólki sem kemur á Eistnaflug á hverju ári bara fyrir þá einstöku stemningu sem fylgir bæði hátíðinni sjálfri og ferðalaginu á hana. Við komum illa út úr síðustu hátíð fjárhagslega og síðasta ár höfum verið að vinna í að borga allar skuldir, sem gekk með hjálp úr ýmsum áttum,“ segir Helga Dóra. „Þannig að reksturinn hefur verið erfiður, en nú erum við farin að horfa með bjartsýni til næsta árs. Miðasalan á Tix.is hefur gengið vel, veðrið verður frábært og við höfum fengið ótrúlega gott viðmót og stuðning frá öllum þetta árið, svo við hlökkum bara rosalega til hátíðarinnar í ár.“ Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368 | Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@ frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vil- helmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 | FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is Allt í ferðAlAgið Veglegt sérblað Fréttablaðsins um allt sem viðkemur ferðalaginu kemur út 19. júlí nk. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Nánari upplýsingar um blaðið veitir Jón Ívar Vilhelmsson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins. Sími 512 5429 / jonivar@frettabladid.is 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . J Ú L Í 2 0 1 8 M Á N U DAG U R 0 9 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :1 3 F B 0 4 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 5 6 -C 3 D C 2 0 5 6 -C 2 A 0 2 0 5 6 -C 1 6 4 2 0 5 6 -C 0 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 0 s _ 8 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.