Fréttablaðið - 09.07.2018, Side 30

Fréttablaðið - 09.07.2018, Side 30
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5407. Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, amma og langamma, Kristín Sighvatsdóttir áður til heimilis að Árskógum 6, Reykjavík, lést mánudaginn 25. júní á Hrafnistu, Reykjavík. Útför hennar verður gerð frá Langholtskirkju þriðjudaginn 10. júlí kl. 13.00. Karl Örn Karlsson Kristín Blöndal María Karlsdóttir Sigurbjörn Skarphéðinsson Sighvatur Karlsson Auður Björk Ásmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Íslensk hitabylgja“ var slegið upp í forsíðufyrirsögn Vísis, 10. júlí árið 1976 vegna hitans í Reykja-vík daginn áður.Hinn 9. júlí fór í sögubækurnar fyrir að vera með eindæmum veðursæll á landinu. Hitamet var slegið þennan dag í höfuðborginni en þar mældist hitinn 24,3 gráður. Tíminn birti forsíðumynd daginn eftir af buguðum manni á Austurvelli vegna hitans. „Það er augljóst að við hér í Reykjavík vorum að slá met á þessari öld hvað hita snertir og ég held að það megi fullyrða það, að þetta sé mesti hiti sem mælzt hefur í Reykjavík síðan hitamælingar hófust,“ sagði Markús Einarsson, veður- fræðingur, í viðtali við Tímann daginn eftir að hitametið féll. „Loksins, sögðu íbúar höfuðborgar- innar, loksins kom blessuð sólin… Sumum þótti þó nóg um þegar hitinn fór upp í 24,3 stig sem reyndist vera met á þessari öld,“ birtist svo í Tím- anum þann 14. júlí þegar blaðið birti ýmsar myndir úr Reykjavík sem sýndu fáklædda höfuðborgarbúa sóla sig í blíðunni. Veðrið var síðan með eindæmum gott á höfuðborgarsvæðinu næstu daga og var mál manna að lundin hefði lést hjá höfuðborgarbúum. „En því miður virðist þessi góðviðris- kafli liðinn, að minnsta kosti eftir því sem Markús Einarsson veðurfræðingur fræddi Tímann á, en hann sagði, að almennt yfir landið myndi nú verða minni sól en undanfarna daga,“ sagði í Tímanum, sama dag og blíðviðrismynd- irnar birtust, þann 14. júlí. Á þessum tíma höfðu gríðarlegir hitar geisað í Evrópu og valdið íbúum álf- unnar erfiðleikum. Austanstæðir vindar báru hluta þess lofts með sér til Íslands sem gerði það að verkum að nánast allt landið var baðað hita þennan daginn. Hitinn þennan dag, 9. júlí, fór mest í 27 gráður á landinu. Það var hins vegar ekki nægjanlegt til að slá hitamet í Eyja- firðinum enda þekktur fyrir veðurblíðu að sumrin þar sem hitastig hefur náð nærri þrjátíu gráðum. sveinn@frettabla- Loksins sól og hitamet slegið í Reykjavík Ég held að það megi fullyrða það, að þetta sé mesti hiti sem mælzt hefur í Reykjavík síðan hitamælingar hófust. Markús Einarsson veðurfræðingur í Tímanum 10. júlí 1976 Föstudagurinn 9. júlí árið 1976 fór í sögubækurnar fyrir einmuna veðurblíðu. Hitamet var slegið í Reykja- vík sem létti lund borgar- búa um stundarsakir. Dagblöðin Tíminn og Vísir fjölluðu ítarlega í máli og myndum um hitabylgjuna sem gladdi íbúa höfuðborgar Íslands fyrir 42 árum. 1357 Hornsteinn er lagður að Karlsbrúnni í Prag. 1816 Argentína lýsir yfir sjálfstæði. 1916 Vopnaður enskur togari tekur farþegaskipið Flóru á leið frá Reykjavík til Siglufjarðar með 100 farþega innan- borðs og er því siglt til Bretlands. Farþegarnir voru sendir heim með öðru skipi síðar í sama mánuði. 1932 Donald Rumsfeld, fyrrverandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna fæðist í Illinois. Fagnar hann því 85 ára af- mæli sínu í dag. 1940 Mikið haglél í Hrunamannahreppi og stíflast lækir af aurburði. 1946 Skemmtigarðurinn Tívolí í Reykjavík er opnaður. Þar eru meðal annars bílabraut, hringekja, Parísarhjól og dans- pallur. 1956 Stórleikarinn Tom Hanks fæðist í Concord í Kaliforníu og fagnar því 61 árs afmæli í dag. Hanks hefur unnið Óskars- verðlaun fyrir besta leik í aðalhlutverki í tvígang en verið tilnefndur fimm sinnum. 1976 Hitamet í Reykjavík, 24,3°C. 2011 Suður-Súdan fær sjálfstæði frá Súdan. Merkisatburðir Tom Hanks sæmdur Frelsisorðunni 2016. NORDICPHOTOS/GETTY Mikill spenna var fyrir úrslitaleik Ítalíu og Frakklands á Heimsmeist- aramótinu í knattspyrnu í Þýskalandi árið 2006. Úrslitaleikurinn fór fram á Ólympíuleikvanginum í Berlín. Þetta var einnig seinasti leikur Zinedine Zidane með franska landsliðinu en hann er að öðrum ólöstuðum líklega þeirra besti leikmaður frá upphafi. Úrslitaleiks HM 2006 verður aldrei minnst án þess að nefna í sömu andrá að þetta var leikurinn þar sem Zidane var rekinn af velli fyrir að skalla ítalska varnarmanninn Marco Materazzi í bringuna. Enn er margt á huldu um hvað Materazzi sagði við Zidane sem varð til að hann brást ókvæða við en þrálát hefur verið sú saga að það hafi varðað móður franska snillingsins. Zidane, sem valinn var besti leikmaður mótsins, endaði landsliðsferil sinn með skömm og rauðu spjaldi. Hann mátti síðan horfa á landa sína fara alla leið í vítaspyrnukeppni gegn sterku liði Ítala og bíða þar lægri hlut. Goðsögnin kvaddi með goðsagnarkenndum hætti, augnablikssturlun á örlagastundu, sem mun um ókomna tíð skyggja á sigurstund Ítala. Nema kannski hjá Ítölum sjálfum. Þ ETTA G E R Ð I ST 9 . J Ú L Í 2 0 0 6 Skallinn sem skyggði á sigurstund Ítala Zinedin Zidane stangar Marco Materazzi. NORDICPHOTOS/AFP Hornsteinn var lagður að Karlsbrúnni 1357. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA 9 . J Ú L Í 2 0 1 8 M Á N U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 0 9 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :1 3 F B 0 4 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 5 6 -A B 2 C 2 0 5 6 -A 9 F 0 2 0 5 6 -A 8 B 4 2 0 5 6 -A 7 7 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 0 s _ 8 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.