Fréttablaðið - 09.07.2018, Síða 35

Fréttablaðið - 09.07.2018, Síða 35
Besta Hekluverðið Frá 3.990.000 kr. Eclipse Cross Besta Hekluverðið 4.390.000 kr. ASX Instyle / 4x4 / Dísil / Sjálfskiptur HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum SB Ísafirði · Nethamar Vestmannaeyjum Besta Hekluverðið 5.190.000 kr. L-200 Double Cab / 4x4 / Dísil / Beinskiptur Nú er góður tími til að fá sér nýjan Mitsubishi hjá Heklu því við vitum aldrei hvað svona frábært verð býðst lengi. Tryggðu þér bíl á besta Hekluverðinu og aktu inn í sumarið. Nýr Mitsubishi á Besta Hekluverðinu Besta Hekluverðið Frá 4.990.000 kr. Outlander PHEV Intense 4x4 / RafmagnBensín / Sjálfskiptur H ér e r a ðe in s sý nd ur h lu ti af b ílu m í bo ði . F ul lt ve rð e r v er ð hv er s bí ls m eð a uk ab ún að i. Au ka bú na ðu r á m yn du m g æ ti ve rið a nn ar e n í a ug lý st um v er ðd æ m um . 5 á ra á by rg ð fy lg ir fó lk sb ílu m H EK LU a ð up pf yl ltu m á kv æ ðu m á by rg ða rs ki lm ál a. Þ á er a ð fin na á w w w .h ek la .is /a by rg d Sumarauki að verðm æti 350.000 kr. fylgir! Sumarauki að verðmæti350.000 kr. fylgir! Sumarauki að verðmæti 350.000 kr. fylgir! Sumarauki að verðmæti 350.000 kr. fylgir! www.skornirthinir.is ÚTSALA KOMDU OG GERÐU FRÁBÆR KAUP FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA 30-70% AFSLÁTTUR Útsöluverð 2.998 Verð áður 5.995 Ljós í sóla Stærðir 23-30 BÆKUR Hin órólegu HHHHH Höfundur: Linn Ullmann Þýðandi: Ingibjörg Eyþórsdóttir Blaðsíður: 315 Útgefandi: Bjartur Hin órólegu er frásögn skáld-konunnar Linn Ullmann af foreldrum sínum, leikstjór- anum Ingmar Bergman og leikkon- unni Liv Ullmann. Ingibjörg Eyþórs- dóttir þýðir verkið með miklum ágætum. Linn lýsir uppvexti sínum og einkahögum og skrifar um börn sín af mikilli hlýju en for- eldrarnir eru í forgrunni, sérstaklega faðirinn. Þótt bók Linn sé afhjúpandi og sýni foreldrana ekki alltaf í jákvæðu ljósi, þá forðast höfundur þá biturð sem svo auðvelt væri að fyll- ast þegar skrifað er um barnæsku sem einkennd- ist af fjarveru foreldra og ákveðnu skeytingarleysi. Bókin er skrifuð af miklum næmleika og vissum skiln- ingi á veikleikum foreldranna. Hinir frægu foreldrar lifðu fyrir vinnu sína, höfðu engan áhuga á ábyrgðinni sem fylgir foreldra- hlutverkinu og voru iðulega fjarri. Hann var kvennabósi sem átti níu börn með sex konum og hún var viðkvæm kona með sæg af elsk- hugum en var samt alltaf að bíða eftir hinum eina rétta. Bæði lifðu í sínum eigin heimi og óttuðust að vera yfirgefin. Jafnt og þétt er það faðirinn sem yfirtekur verkið og þeir þættir sem snúa að honum eru á köflum meistaralegir. Á eyjunni Föro ræðir Linn við föður sinn og tekur sam- töl þeirra upp á segulband. Ellin er að eyða hinum skapandi lista- manni sem hefur glatað kraftinum, er fastur við hjólastól, hefur fengið nokkur heilablóðföll og er farinn að gleyma. Úr þessu efni verður frásögn af elli, hnignun og dauða mikils listamanns. Það er sársauki í frásögninni, hlýja og söknuður. Þar er líka fegurð því hinn gamli kvennabósi er fastur í söknuði eftir lát síðustu eiginkonu sinnar, þeirrar fimmtu, og óskar þess heitast af öllu að fá að hitta hana eftir dauðann og segist vera sannfærður um að svo muni verða. Hann ræðir um tilvist Guðs sem hann afneitar ekki og er gagntekinn af kraftinum í fagurri tónlist. Ef hægt er að kvarta undan einhverju er það helst að móðirin, Liv Ull- mann, hverfur úr sögunni þegar lesandinn hefði svo gjarnan viljað frétta af lífi hennar og líðan. Í síðasta sinn sem minnst er á hana er þegar Linn hringir í hana til að segja frá jarðarför föðurins og segir um sam- band þeirra mæðgna: „Við höfðum ekki talað saman nokkuð lengi, kannski aðeins skipst á nokkrum orðum í dagsins önn.“ Ekki er annað hægt en að fá sterkt á tilfinninguna að sam- band mæðgnanna sé afar flókið og einkennist ekki af einlægni. Þarna er ekki sama nánd og innileiki og í sambandinu við föðurinn, heldur er eins og margt sé ósagt. Kannski verður hið ósagða aldrei sagt. En hver veit, kannski verður til önnur bók. Kolbrún Bergþórsdóttir NIÐURSTAÐA: Sönn og tilfinningarík bók, skrifuð af innsæi og næmni. Þar er dregin upp sterk mynd af lista- manni sem hefur orðið ellinni að bráð og bíður dauðans. Uppgjör dóttur Ingmar Bergman stelur senunni í bók dóttur sinnar. NORDICPHOTOS/AFP M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19M Á N U D A G U R 9 . J Ú L Í 2 0 1 8 0 9 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :1 3 F B 0 4 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 5 6 -C D B C 2 0 5 6 -C C 8 0 2 0 5 6 -C B 4 4 2 0 5 6 -C A 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 0 s _ 8 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.