Fréttablaðið - 26.07.2018, Page 6
Fæst í Olís um allt land.
GLANSANDI
HREINN BÍLL! Þegar þú vilt þvo bílinn að utan, bóna, pússa rúður, þrífa mælaborðið eða innréttinguna, jafnvel fríska upp á litinn á hjólbörðunum.
Rekstrarland er hluti af OlísRekstrarland | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | Söluver 515 1100 | rekstrarland.is
Viðskipti Hollenska fyrirtækið Five
Degrees, sem er að hluta til í eigu
tveggja fyrrverandi starfsmanna
Landsbankans í Lúxemborg og
Hollandi, hefur keypt allt hlutaféð
í íslenska fjártæknifyrirtækinu
Libra. Kaupverðið hleypur á nokkur
hundruð milljónum króna, að sögn
kaupandans
„Í meginatriðum höfum við verið
að búa til hugbúnað fyrir verðbréfa
umsýslu annars vegar og lánaum
sýslu hins vegar,“ segir Þórður
Gíslason, framkvæmdastjóri og einn
eigenda Libra, í samtali við Frétta
blaðið.
Sögu félagsins má rekja aftur til
ársins 1996 þegar hafin var vinna
við þróun hugbúnaðar fyrir fjár
málamarkaðinn innan fyrirtækis
ins Tölvumynda sem síðar varð TM
Software. Stofnað var dótturfélag
utan um hugbúnaðarþróunina árið
2001 sem fékk heitið Libra. Í janúar
2006 var Libra selt út úr TM Soft
ware til Nasdaq OMX sem aftur
seldi félagið árið 2009 til Þórðar,
fjárfesta og starfsfólks.
„Libra hefur ekki verið áberandi
fyrirtæki í gegnum árin, og hefur
okkur liðið ágætlega með það. Við
störfum á afmörkuðum markaði á
Íslandi og erum vel þekkt á meðal
fjármálafyrirtækja,“ segir Þórður.
Libra velti 497 milljónum á árun
um 2017 sem var átta prósentum
meiri velta en árið á undan. Hagn
aður félagsins nam 15 milljónum
króna samanborið við 51 milljón
árið 2016.
Þórður segir að kaupverðið hafi
verið greitt í reiðufé. Eigendur og
starfsfólk Libra eignist þannig engan
hlut í sameinuðu fyrirtæki Libra og
Five Degrees. Þórður átti 67 pró
senta hlut í Libra fyrir samrunann á
móti 15 öðrum hluthöfum sem áttu
allir minna en 10 prósenta hlut.
„Við höfum undanfarin misseri
leitað vaxtarleiða til að styðja enn
betur við viðskiptavini okkar og
íslenskan fjármálamarkað,“ segir
Þórður.
Ætluðu að stofna banka
Five Degrees sérhæfir sig í hugbún
aðarlausnum fyrir banka og fjár
málafyrirtæki. Björn Hólmþórsson
er einn af stofnendum Five Degrees
en hann var áður yfirmaður tölvu
deildar hjá Landsbankanum í Lúx
emborg. Hann stofnaði Five Degrees
árið 2009 ásamt tveimur öðrum
meðstofnendum, þar á meðal Mar
tijn Hohmann sem hafði umsjón
með rekstri IceSave í Hollandi.
„Eftir fjármálahrunið ætluðum
við upphaflega að stofna banka en
það gekk ekki eftir enda var ekki
verið að gefa út bankaleyfi í Evr
ópu á þessum tíma,“ segir Björn. Þá
sneru stofnendurnir sér að því að
þróa hugbúnað fyrir fjármálafyrir
tæki og lönduðu fljótlega samningi
við nýjan banka sem hollenska
tryggingafyrirtækið Aegon hafði
komið á laggirnar.
Réðu hönnuði IceSave
Ráðnir voru fimm fyrrverandi
starfsmenn Landsbankans í Lúxem
borg sem höfðu komið að því að
hanna og þróa netbankalausnir
á borð við IceSave. Five Degrees
keypti síðan tölvukerfi af þrotabúi
Landsbankans í Lúxemborg og
hefur vaxið hratt á síðustu árum.
Velta fyrirtækisins nam meira en
12 milljónum evra, jafngildi 1,7
milljarða króna, á síðasta ári.
Björn segist ánægður með kaupin
á Libra enda ætli Five Degrees að ná
leiðandi stöðu á markaði stafrænnar
bankaþjónustu á alþjóðlegum vett
vangi. Hann segir kaupverðið trún
aðarmál en staðfestir að það hlaupi
á nokkrum milljónum evra, eða sem
nemur nokkur hundruð milljónum
króna. thorsteinn@frettabladid.is
Kaupa íslenskan fjártæknirisa
á mörg hundruð milljónir
Hollenskt fyrirtæki í eigu tveggja fyrrverandi starfsmanna Landsbankans hefur keypt fjártæknifyrirtækið
Libra sem er leiðandi á sínu sviði á Íslandi. Stofnuðu Five Degrees eftir fjármálahrunið og keyptu tölvukerfi
Landsbankans í Lúxemborg af þrotabúinu. Kauphöllin seldi Libra árið 2009 til starfsfólks og fjárfesta.
Libra selur hugbúnað sinn til fjármálafyrirtækja á Íslandi og hefur náð mjög stórri markaðshlutdeild. NoRdIcPhotoS/Getty
Viðskipti Framtakssjóðurinn Auður
I, sem er í rekstri Kviku, hagnaðist um
166 milljónir króna árið 2017 saman
borið við 103 milljóna króna tap
árið áður. Í fyrra var gengið frá sölu á
óbeinum eignarhluta sem nam um
29 prósentum í Ölgerðinni. Sjóður
inn átti útistandandi kröfu fyrir hluta
kaupverðs upp á 726 milljónir króna
við árslok. Þá var hlutur í 365 seldur
og sjóðurinn fékk árangurstengda
greiðslu vegna sölu á Ygg drasil árið
2016.
Auður I keypti í Ölgerðinni 2010
en árið 2016 seldu hluthafar, sem fóru
fyrir 69 prósentum, hlut sinn. Kaup
endur voru Akur í stýringu Íslands
sjóða og Horn III í stýringu Landsbréfa
og einkafjárfestar. Sjóðurinn á meðal
annars 81 prósents hlut í Já og helm
ings hlut í Íslenska gámafélaginu. – hvj
Viðsnúningur í
rekstri Auðar I
kjaramál Sjö ljósmæður höfðu
dregið uppsagnir sína til baka á
Landspítalanum í kjölfar þess að
miðlunartillaga ríkissáttasemjara í
deilu ljósmæðra og ríkisins var sam
þykkt í kosningu Ljósmæðrafélagsins
í gær. Sömu sögu var ekki að segja af
heilbrigðisstofnunum á landsbyggð
inni þar sem engin ljósmóðir hefur
dregið uppsögn sína til baka eftir því
sem Fréttablaðið kemst næst.
Páll Matthíasson, forstjóri spítal
ans, segir að hann vonist til þess að
þær ljósmæður sem þegar eru hættar
snúi aftur. „Það er þó fagnaðarefni að
ákveðinn hópur hefur þegar ákveðið
að slíðra sverðin,“ segir Páll, sem telur
að margir samverkandi þættir hafi
orðið til þess að samningar náðust.
„Þegar deila er komin í óefni þá leggja
allir sitt af mörkum til að finna lausn.“
Þó að samningar hafi náðst er
spítalinn enn á viðbragðsáætlun. „Við
þurfum enn að reiða okkur á aðstoð
annarra stofnana, en það gengur
betur að manna vaktir.“
Miðlunartillagan var samþykkt í
atkvæðagreiðslu með 95,1 prósenti
atkvæða. Á kjörskrá voru 247 og
greiddu 224 atkvæði, eða 91 prósent.
Miðlunartillagan felur í sér sambæri
legar hækkanir og samningur sem
gerður var 29. maí en sérstökum
gerðardómi verður falið að kveða
upp úr um það hvort og að hvaða
leyti álag, menntun og inntak starfs
ljósmæðra eigi að hafa frekari áhrif á
launasetningu.
Gerðardómur mun ljúka störfum
fyrir 1. september 2018. – ósk
Sjö ljósmæður á Landspítalanum dregið uppsagnir sínar til baka
Það er þó fagnaðar-
efni að ákveðinn
hópur hefur þegar ákveðið
að slíðra sverðin.
Páll Matthíasson,
forstjóri
Landspítalans
Mest lesið
1 Hátt í 200 lítrar af eldsneyti láku á
vatnsverndarsvæði
2 Slash er ekkert að slóra: Mættur í
Leifsstöð
3 Ríkissáttasemjari segir um leiðan
misskilning að ræða
4 Segir „upphlaup“ stjórnar koma sér á
óvart
2 6 . j ú l í 2 0 1 8 F i m m t U D a G U r6 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
2
6
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:3
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
7
6
-1
5
2
0
2
0
7
6
-1
3
E
4
2
0
7
6
-1
2
A
8
2
0
7
6
-1
1
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K