Fréttablaðið - 26.07.2018, Side 34

Fréttablaðið - 26.07.2018, Side 34
Golf Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, keppir um helgina á Evrópumótaröðinni, næst sterkustu atvinnumanna- mótaröð kylfinga, í Þýskalandi. Meðal þátttakenda í mótinu er Pat- rick Reed, sigurvegarinn á Masters- mótinu fyrr í vor, Carl Schwartzel sem vann Masters-mótið árið 2011 og Paul Casey. Er þetta sjötta mótið á þessu tímabili á Evr- ópumótaröðinni sem Birgir Leifur tekur þátt í. Fyrir vikið ve r ð u r h a n n e k k i m e ð á Íslandsmótinu í höggleik sem h e f st í Ve st- mannaeyjum í dag. – kpt Birgir keppir á firnasterku móti Golf Íslandsmótið í golfi hefst í Vestmannaeyjum klukkan 07.30 í dag þegar Bjarni Þór Lúðvíksson úr GR slær fyrsta höggið af fyrsta teig. Bjarni er yngsti keppandi mótsins í karlaflokki og fagnar fjórtán ára afmæli sínu á öðrum degi móts. Er þetta í fjórða sinn sem mótið fer fram í Vestmannaeyjum, viku áður en Þjóðhátíð hefst en tíu ár eru liðin síðan mótið fór síðast fram á vell- inum. Alls eru 130 kylfingar skráðir til leiks, þar af 31 í kvennaflokki en aðeins einu sinni áður í 51 árs sögu Íslandsmóts kvenna í höggleik hafa fleiri konur tekið þátt. Vallarmetið í Vestmannaeyjum hefur staðið í sextán ár en það setti Helgi Dan Steinsson úr Golf- klúbbnum Leyni árið 2002 er hann kom í hús á 63 höggum, sjö höggum undir pari vallarins. Hjá konunum á Sunna Víðisdóttir, GR, vallarmetið en það setti hún árið 2012 þegar hún kom í hús á 67 höggum, þremur undir pari. Gríðarleg samkeppni karlamegin Fyrir utan sjöfalda meistarann Birgi Leif Hafþórsson verða allir bestu karlkylfingar landsins mættir til leiks. Verða þar á meðal atvinnu- kylfingarnir Axel Bóasson, sem er ríkjandi meistari, og Haraldur Franklín Magnús sem keppti á Opna breska meistaramótinu fyrir viku, fyrstur íslenskra karlkylfinga. Háðu þeir Axel og Haraldur eftir- minnilega baráttu um titilinn á síðasta ári á heimavelli Axels í Golf- klúbbi Keilis. Vann þá Haraldur upp fimm högga forskot Axels á tveimur síðustu holunum en Axel hafði betur í þriggja holu bráðabana. Var það annar Íslandsmeistaratitill Axels en Haraldur hefur unnið einn Íslandsmeistaratitil árið 2012 á Hellu. Alls eru sex fyrrverandi Íslandsmeistarar skráðir til leiks í karlaflokki, þar á meðal Ólafur Björn Lofts- son úr GKG sem vann mótið árið 2009 og Krist- ján Þór Einarsson, GM, sem vann fyrir tíu árum þegar mótið fór síðast fram í Vestmannaeyj- um. Þá eru Sigurður Pétursson, GR sem varð Íslandsmeistari þrisvar og sexfaldi meistarinn Björgvin Þorsteinsson úr GA meðal keppenda. Mun meiri spenna í karlaflokki Íslandsmótið í golfi hefst í dag í Vestmannaeyjum. Í karlaflokki er Birgir Leifur fjarverandi en allir aðrir bestu kylfingar landsins eru mættir. Í kvennaflokki eru aðeins tveir fyrrum meistarar skráðir til leiks. Axel Bóasson úr Golfklúbbnum Keili vann sinn annan Íslandsmeistaratitil á heimavelli í fyrra. GSÍMyndir/SiGurður elvAr Er þetta 55. Íslandsmót Björg- vins í röð en fyrsta mótið hans var einmitt Íslandsmót unglinga í Vest- mannaeyjum 1964 þegar leikið var á níu holu velli. Var Björgvin lengi vel sigursælasti karlkylfingurinn ásamt Úlfari Jónssyni áður en Birgir Leifur hreppti sjöunda titil sinn árið 2016. Tvær stærstu stjörnurnar fjarverandi Í kvennaflokki er reynslan heldur minni, aðeins tvær konur eru skráðar til leiks sem hafa orðið Íslandsmeistarar. Ragnhildur Sig- urðardóttir, GR, sem vann fjórða Íslandsmeistaratitil sinn árið 2005 og Þórdís Geirsdóttir sem varð meistari árið 1987. Síðustu ár hafa atvinnu- kylfingarnir tveir, Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, og Ólafía Þór- unn Kristinsdóttir, GR, verið afar sigursælar en þær hafa báðar unnið þrisvar. Valdís vann sinn þriðja titil í fyrra eftir baráttu við Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur en Valdís og Ólafía eru báðar að keppa á Opna skoska meistaramótinu í Evrópumótaröðinni um helgina og gátu því ekki gefið kost á sér. Ætti það að gefa Guðrúnu Brá, eina atvinnukylfingnum sem tekur þátt í kvennaflokki, gott tækifæri til að gera atlögu að sínum fyrsta titli og feta með því í fótspor föður síns, Björgvins Sigurbergssonar, sem vann á sínum tíma fjóra Íslands- meistaratitla. Guðrún ætti að kannast vel við völlinn, rúmt ár er síðan hún varð Íslandsmeistari í holukeppni í Vest- mannaeyjum. Þá verður fróðlegt að fylgjast með spilamennsku Perlu Sólar Sigur- brandsdóttur og Lóu Distu Jóhanns- son en þær eru báðar fæddar árið 2006. Perla Sól er yngsti keppandi mótsins, aðeins ellefu ára gömul, en hún varð nýlega Íslandsmeistari í flokki 14 ára og yngri. kristinnpall@frettabladid.is Yngsti keppandinn í Vestmannaeyjum er Perla Sól Sigurbrandsdóttir en hún verður tólf ára í september. Guðrún Brá Björgvins- dóttir atvinnukylfingur. Handbolti Íslenska handbolta- landsliðið skipað drengjum undir tuttugu ára aldri féll úr leik á Evr- ópumótinu í Slóveníu í gær eftir fjögurra marka tap fyrir gestgjöf- unum. Var þetta hreinn úrslita- leikur um hvort liðið myndi fylgja Þýskalandi upp úr milliriðlinum og í undanúrslitin. Íslenska liðinu dugði jafntefli í gær eftir að hafa náð í stig gegn Þýskalandi og Serbíu í fyrstu leikj- um milliriðilsins. Slóvenarnir náðu strax tökum á leiknum og leiddu með fjórum mörkum í hálfleik 14-10. Var íslenska liðið alltaf að eltast við forskot Slóvena í seinni hálfleik og lauk leiknum með nokkuð sann- færandi sigri Slóvena. Birgir Birgis- son var atkvæðamestur í íslenska liðinu með sex mörk. – kpt Slóvenar sendu strákana heim Körfubolti Dagur Kár Jónsson samdi í gær við við austurríska félag- ið Raiffeisen Flyers um að leika með liðinu næsta vetur. Mun hann því ekki leika með uppeldisfélagi sínu, Stjörnunni, í Domino’s-deild karla í körfubolta á komandi keppnistíma- bili eins og til stóð. Dagur Kár, sem gekk til liðs við Stjörnuna frá Grindavík fyrr í sumar, var búinn að leika síðustu tvö tíma- bil með Grindavík. Hann segir að viðræðurnar hafi tekið stuttan tíma. „Þetta kom fyrst upp fyrir tveimur vikum og það er fínt að vera búinn að ganga frá þessu. Ég gerði ráð fyrir að vera hjá Stjörnunni í vetur en þetta kom óvænt upp á borðið og við ákváðum að stökkva á tækifærið. Þetta er eitthvað sem maður hefur stefnt að lengi og þetta býðst ekki á hverjum degi,“ sagði Dagur þegar Fréttablaðið heyrði í honum í gær. „Aðstæðurnar eru flottar og þjálf- ararnir virkuðu flottir, þeir lofuðu mér stóru hlutverki þannig að ég er afar spenntur. Ég er ekki alveg viss um styrkleika deildarinnar en umboðsmaðurinn minn talaði um að þetta væri aðeins betri deild en skandinavísku deildirnar og aðsókn- in góð.“ Hann hrósaði uppeldisfélagi sínu, Stjörnunni, fyrir stuðninginn þegar hann greindi félaginu frá ákvörðun sinni. „Ég var með ákvæði um að geta skoðað möguleika á atvinnu- mennsku í samningnum. Ég er virkilega þakklátur fyrir viðbrögð Stjörnumanna. Þeir sam- glöddust strax og voru ekki með neitt vesen,“ sagði Dagur og bætti við: „Ég er búinn að þekkja flesta þarna lengi og þeir eru held ég bara ánægð- ir að það sé uppalinn Stjörnumaður kominn í atvinnumennsku.“ Dagur tók þetta skref meðal ann- ars með það að sjónarmiði að gera atlögu að landsliðssæti. „Ég hugsaði mikið út í það, hvað ég gæti gert til að komast í þetta landslið og ég get von- andi sýnt hvað í mér býr þarna úti.“ Sífellt fleiri ungir leikmenn eru að komast út í atvinnumennsku en Dagur sló á þráðinn til Martins Her- mannssonar í aðdraganda félaga- skiptanna. „Ég heyrði aðeins í Martin, hann hjálpaði mér mikið í þessu ferli og veitti mér góð ráð. Hann veit alveg hvað hann hefur verið að gera í þessu.“ – kpt Tækifæri sem ég varð að stökkva á dagur Kár lék með Grindavík undanfarin tvö tímabil. FréTTABlAðið/ernir fótbolti Hannes Þór Halldórsson, markvörður íslenska landsliðsins, var ekki í leikmannahóp Qarabag í markalausu jafntefli gegn Kukesi í undankeppni Meistaradeildar Evr- ópu í gær. Hannes gekk nýlega til liðs við asersku meistarana í Qarabag sem komust alla leiðina í riðlakeppni Meistaradeildarinnar á síðasta tímabili. Gæti fyrsti leikur Hannesar komið á heimavelli í höfuðborginni Bakú þegar liðin mætast að nýju að viku liðinni. Matthías Vilhjálmsson, leik- maður Rosenborg, þurfti að fylgjast með af bekknum þegar liðsfélagar hans töpuðu 1-3 fyrir skoska félag- inu Celtic á útivelli. Norsku meist- ararnir, sem slógu út Val í fyrstu umferð, komust yfir en Skotarnir svöruðu með þremur mörkum. – kpt Hannes ekki í hóp hjá Qarabag fótbolti ÍA fékk góðan liðsstyrk fyrir komandi átök í Inkasso-deild- inni þegar Jeppe Hansen kom að láni frá Keflavík. Var Jeppe í lykilhlutverki þegar Keflavík komst upp úr Inkasso- deildinni í fyrra. Skoraði hann fimmtán mörk í 21 leik en hann er án marks eftir ellefu leiki í sumar hjá liði Keflavíkur sem stefnir hraðbyri aftur niður í Inkasso-deildina. – kpt ÍA fékk liðsstyrk Matthías sleit krossband fyrir ári en hann sneri aftur á völlinn gegn Val eftir meiðsl- in á dögunum. 2 6 . j ú l í 2 0 1 8 f i M M t u d a G u r26 S p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð 2 6 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :3 4 F B 0 5 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 7 6 -3 2 C 0 2 0 7 6 -3 1 8 4 2 0 7 6 -3 0 4 8 2 0 7 6 -2 F 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.