Fréttablaðið - 26.07.2018, Qupperneq 12
Tómas
Guðbjartsson
læknir og nátt-
úruunnandi og
Sigtryggur Ari
Jóhannsson ljós-
myndari fjalla
um sérstæðar
perlur í íslenskri
náttúru.
Sveinn Pálsson fæddist árið 1762 í Skagafirði og var ekki einungis merkilegur læknir heldur einn merkasti náttúrufræðingur Íslendinga fyrr og síðar. Hann stundaði framhaldsnám í Kaup-mannahöfn en þar sem læknisfræði þótti á
þeim tíma ótryggt nám til framfærslu og ekki á vísan að
róa með læknisstörf að námi loknu lagði hann stund á
náttúrufræði samhliða. Sóttist honum námið vel og varð
hann fyrsti Íslendingurinn sem útskrifaðist með próf í
náttúrufræði í Danmörku.
Sveinn er talinn hafa gengið fyrstur á Sveinstind við
Langasjó líkt og Sveinstind í Öræfajökli, sem einnig er
nefndur eftir honum og er annar hæsti tindur landsins
(2.044 m) á eftir Hvannadalshnúki (2.110 m). Það er Þor-
valdur Thoroddsen náttúrufræðingur sem á heiðurinn
af nafngiftinni þegar hann rannsakaði svæðið í kringum
Langasjó í lok 19. aldar.
Sveinstindur við Langasjó er mun auðgengnari en
stóri bróðir hans í Öræfajökli og af fjallinu er gríðarlegt
útsýni þótt aðeins sé það 1.090 metra hátt. Auðvelt er að
komast að rótum fjallsins á jepplingum eftir vegarslóða
sem opinn er frá júlí og fram í september. Fyrst er ekið
sem leið liggur eftir Fjallabaksleið nyrðri þar til komið
er að merktum slóða til norðausturs. Slóðinn er merktur
Langasjó og Sveinstindi og liggur sunnan Grænafjallgarðs,
rétt norðan Eldgjár. Stikuð gönguleið liggur á toppinn frá
merktu bílastæði og ná flestir toppnum á skemmri tíma
en klukkustund.
Af toppnum sést á góðum degi yfir fagurbláan Langa-
sjóinn inn að vesturhluta Vatnajökuls, en meðfram
eystri hluta Langasjávar liggja mosagróin fjöll sem heita
því fallega nafni Fögrufjöll. Einnig sést í upptök Skaftár,
Skaftárafrétt, Lakagíga og hrjóstrugt miðhálendið með
ótal tindum, vötnum, ám og söndum.
Gönguleiðin hentar göngufólki á öllum aldri,
jafnt öldruðum sem fjölskyldum með börn.
Útsýnið yfir Langasjó er einkar fallegt á upp-
göngunni og fá fjöll hér á landi trompa það
útsýni sem við blasir af tindinum á góð-
viðrisdegi.
Sveinstindur
við Langasjó
Útsýni frá Sveinstindi til norðurs, yfir Langasjó til Vatnajökuls. Fögrufjöll eru hægra megin á myndinni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Sveinstindur brýst fram úr rigningarskúr.Umhverfi Sveinstinds og Langasjávar er sannkölluð
töfraveröld. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Langisjór á lygnum sumarmorgni. Margir gera sér ferð og ganga hringinn í kring um Langasjó. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Náttúrulega Ísland
Sjá nánar á
Fréttablaðið+
Lengri umfjöllun má
lesa á frettabladid.is.
2 6 . j ú l í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R12 F R é T T I R ∙ F R é T T A B l A ð I ð
2
6
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:3
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
7
6
-1
0
3
0
2
0
7
6
-0
E
F
4
2
0
7
6
-0
D
B
8
2
0
7
6
-0
C
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K