Fréttablaðið - 26.07.2018, Blaðsíða 44
gæði... ending… ánægja.
skoðaðu úrvalið á Weber.is
Flísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Finndu okkur
á facebook
Gæði og g
læsileiki e
ndalaust ú
rval af há
gæða flísu
m
30
ára
2018
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Fimmtudagur
hvar@frettabladid.is
26. júlí 2018
Tónlist
Hvað? Slagverkstónleikar
Hvenær? 19.00
Hvar? Tónlistarskóli Garðabæjar
Helgi Þorleiksson slagverksleikari
heldur tónleika í sal Tónlistarskóla
Garðabæjar. Flutt verður tónlist
eftir Áskel Másson, Geir Rafnsson
og Lárus Grímsson. Helgi hefur í
sumar tekið þátt í Skapandi sumar-
störfum í Garðabæ eftir að hafa
lokið slagverksnámi í Svíþjóð og
Noregi. Verkefni sumarsins hefur
verið að æfa og flytja íslenska slag-
verkstónlist og eru tónleikarnir
lokaliðurinn í því starfi. Aðgangur
er ókeypis
Hvað? Alþjóðlegt orgelsumar
Hvenær? 12.00
Hvar? Hallgrímskirkja
Í dag leikur einn fremsti organisti
okkar af ungu kynslóðinni, Lára
Bryndís Eggertsdóttir, verk eftir
G. Pierné og Bedrich Smetana
(Moldau). Miðaverð kr. 2.000.
Hvað? Þjóðhátíðarupphitun
Hvenær? 20.00
Hvar? Stúdentakjallarinn
Ingó og veðurguðirnir munu halda
uppi sannkallaðri Þjóðhátíðar-
stemmingu. Tuborg Green verður á
hátíðarprís og önnur geggjuð tilboð
á barnum. Hægt verður að vinna
miða á Þjóðhátíð í Eyjum.
Hvað? Una Stef – Freyjujazz
Hvenær? 17.15
Hvar? Listasafn Íslands
Söngkonan og lagasmiðurinn Una
Stef hefur verið áberandi í íslensku
tónlistarlífi undanfarin ár en hún
hefur heillað landann með sálar-og
djassskotnum lögum sínum líkt og
Mama Funk og útvarpssmellinum
The One, sem fékk jafnframt til-
nefningu sem lag ársins á Íslensku
tónlistarverðlaununum í ár auk
þess sem Una sjálf var tilnefnd
sem söngkona ársins. Í grunninn
er Una djassari í húð og hár en
hún hefur t.d. komið fram með
Stórsveit Reykjavíkur og á ýmsum
djasskonsertum. Una ætlar að flytja
uppáhalds djassstandardana sína
með Sunnu Gunnlaugs á píanó
og Róberti Þórhallssyni á bassa.
Aðgangseyrir á safnið er 1.800
krónur. Tónleikarnir verða á efstu
hæð og verður barinn opinn.
Hvað? Beethoven, Nordal og
Rachmaninoff – Hjörtur Páll & Filip
Štrauch
Hvenær? 17.00
Hvar? Hannesarholt, Grundarstíg
Hjörtur Páll Eggertsson var fimm
ára gamall þegar hann hóf að leika
á selló. Fyrsti kennari hans var Örn-
ólfur Kristjánsson, en hann stund-
aði síðar frekara nám hjá Sigurgeiri
Agnarssyni og Gunnari Kvaran. Filip
Štrauch er meðal hæfileikaríkustu
píanista sinnar kynslóðar frá Slóv-
akíu. Hann hóf ungur að aldri að
leika á píanó í heimabæ sínum
Zilina undir handleiðslu föður síns,
sem var píanóleikari. Síðar flutti
hann til Bratislava til að læra við
tónlistarháskólann þar.
Hvað? Tónleikar á Dillon: Teitur
Magnússon Band
Hvenær? 21.30
Hvar? Dillon, Laugavegi
Teitur Magnússon & Æðisgengið
troða upp á Dillon á þessu indæla
þórsdagskveldi. Ný plata er að lenda
og mannskapurinn í fíling! Frítt inn,
frjáls framlög vel þegin, auk þess
sem nýja platan, Orna, verður til
sölu á CD og vínyl.
Hvað? Uppskeruhátíð – Tónleikar í
Gerðarsafni
Hvenær? 17.00
Hvar? Menningarhúsin í Kópavogi
Tónlistarmennirnir sem fram koma
eru fiðluleikararnir Ingibjörg Ásta
Guðmundsdóttir og Sólrún Ylfa
Ingimarsdóttir sem mynda dúóið
Bachelsi, klassíski gítarleikarinn
Brynjar Friðriksson sem blandar
saman klassískri tónlist og popp-
tónlist og Ingibjörg Steingríms-
dóttir sem frumflytur eigin verk,
útsett fyrir píanó og söng auk þess
að leika ábreiður á lög fyrirmynda
sinna. Þorsteinn Eyfjörð og Rögn-
valdur Konráðs sýna samstarfsverk-
efnið sitt sem nefnist „Tilvera hvers-
dagsins“ sem snýr að því að skoða
hversdagslíf Kópavogs með það að
leiðarljósi að draga fram nýja sýn á
hið kunnuglega. Þeir blanda saman
hljóðrænum og sjónrænum miðlum
og afrakstur verkefnisins verður
sýndur í formi innsetningar.
Viðburðir
Hvað? Stefán Pálsson leiðir göngu um
áfengislausan höfuðstað
Hvenær? 20.00
Hvar? Borgarbókasafnið, Grófinni
Áfengisbann tók gildi á Íslandi árið
1915 og sambandslögin því sam-
þykkt af bláedrú borgurum þremur
árum síðar. Stefán Pálsson sagn-
fræðingur leiðir göngu um þurra
Reykjavík ársins 1918 og þar um bil.
Gangan er hluti af Kvöldgöngum
sem eru í umsjón Borgarbóka-
safnsins, Listasafns Reykjavíkur
og Borgarsögusafns Reykjavíkur.
Kvöldgöngurnar eru fríar og öllum
opnar.
Hvað? Eldvarnir – meðferð slökkvi-
tækja
Hvenær? 20.00
Hvar? Kvartmílubrautin, Hafnarfirði
Kvartmíluklúbburinn boðar til
æfingar á meðferð handslökkvi-
tækja fimmtudaginn 26. júlí kl.
20.00 í félagsheimilinu á Kvartmílu-
brautinni, Hafnarfirði. Farið verður
yfir eiginleika og beitingu slökkvi-
tækja ásamt atriðum sem hafa þarf
í huga við eld í ökutækjum. Æfingin
er tvíþætt. Annars vegar bókleg
yfirferð og hins vegar verkleg. Þátt-
takendur þurfa að vera klæddir til
að vera úti og í fatnaði sem hentar í
kringum lifandi eld!
Hvað? Lokahátíð Skapandi sumar-
starfa Kópavogi
Hvenær? 17.00
Hvar? Hábraut 2, Kópavogi
Í sumar hefur fjölbreyttur hópur
af ungu listafólki unnið hörðum
höndum að metnaðarfullum og
skapandi verkefnum. Afraksturinn
verður til sýnis gestum og gangandi,
forvitnum og áhugasömum, í Mol-
anum og Gerðarsafni næstkomandi
fimmtudag. Verkefnin sem komust
að í ár eru fjölbreytt og teygja anga
sína um víðan völl á sviði sköpunar.
Með tónlist sinni, myndlist, ljóð-
list, vegglist, umhverfislist, kvik-
myndalist og listalist eignar þetta
unga listafólk sér tilverurétt í nýjum
heimi, þau kveðja sér hljóðs og við
hlustum, dáumst, njótum og leyfum
okkur að efast um hugmyndir þeirra
en eitt er víst, þau eru mætt! Lista-
menn framtíðarinnar.
Hvað? Uppskeruhátíð Skapandi
sumarstarfa í Garðabæ 2018
Hvenær? 16.00
Hvar? Garðatorg 1, Garðabæ
Í sumar hafa 14 einstaklingar tekið
þátt í skapandi sumarstörfum. Á
uppskeruhátíðinni má sjá verk eftir
þau öll: teikningar, myndbönd,
ljósmyndir, málverk, ritlistarverk
og fleira. Lifandi tónlist verður á
svæðinu og léttar veitingar.
Una Stef spilar á Freyjujazzi í Listasafni Íslands í kvöld. FréttabLaðið/Ernir
Stefán Pálsson sagnfræðingur leiðir göngu um áfengislausan höfuðstað ársins 1918 í kvöld. FréttabLaðið/ViLHELm
2 6 . j ú l í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R36 M e n n I n G ∙ F R É T T A B l A ð I ð
2
6
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:3
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
7
6
-0
1
6
0
2
0
7
6
-0
0
2
4
2
0
7
5
-F
E
E
8
2
0
7
5
-F
D
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K