Fréttablaðið - 03.09.2018, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 03.09.2018, Blaðsíða 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti kl. 5.00 á morgnana. Skráðu þig á póstlista Frétta- blaðsins á www.frettabladid.is/ nyskraning. Það kostar ekkert. Vertu fyrst/ur að lesa blaðið ENGIN BINDING ný námskeið og hóptímatafla hefjast 3. september 7 stöðvar 3 sundlaugar reebokfitness.is SJÁ NÁNAR Á REEBOKFITNESS.IS umhverfismál „Staðsetningin er dálítið skrítin en ég vænti þess að þetta sé bara byrjunin,“ segir Stefán Pálsson, formaður Húsfélagsins í Eskihlíð 10 og 10a. Á fimmtudag í síðustu viku setti heilbrigðiseftir­ litið upp hljóðmæli við göngustíg ofan við blokkina. Íbúar í Eskihlíðarblokkinni hafa í sumar mótmælt rekstri samgöngu­ miðstöðvar rútufyrirtækja handan við götuna í Skógarhlíð 10. Kvarta þeir sérstaklega undan hávaða á nóttu sem degi frá rútuumferðinni. Stefán segir íbúana hafa leitað til „allra og ömmu“ þeirra innan borg­ arkerfisins en lítið orðið ágengt. Málið hafi verið í vinnslu hjá heil­ brigðiseftirlitinu. „Í nýlegri reglugerð er meðal ann­ ars gerð krafa um að samgöngumið­ stöðvar trufli ekki næsta nágrenni – sem þetta gerir óneitanlega,“ segir Stefán. Nú er hljóðmælir kominn upp. „Til að mæla hljóðið þætti  mér eðlilegra að mælt yrði í íbúðunum – sérstaklega þar sem eru svefnher­ bergi á efri hæðum sem vísa beint út að þessu,“ segir húsfélagsformaður­ inn. Málinu sé alls ekki lokið. „Þrátt fyrir loforð í blábyrjun um að rútur yrðu ekki látnar lulla í lausagangi meira en þyrfti og að þetta yrði hannað þannig að lítið þyrfti að bakka með tilheyrandi bílhljóðum þá hefur slaknað á þessu öllu. Og hvernig verður þetta þá í vetur þegar kólnar í veðri? Það þarf enginn að segja mér annað en að rúturnar verði þá samfleytt í gangi.“ – gar Heilbrigðiseftirlitið mælir hávaða frá rútumiðstöð í Skógarhlíð Búnaðurinn sem mæla á hávaða í Skógarhlíð. FréttaBlaðið/aðSend Til að mæla hljóðið þætti mér eðlilegra að mælt yrði í íbúðunum. Stefán Pálsson, formaður Hús- félagsins í Eski- hlíð 10 og 10a Manni finnst oft að allar glufur séu nýttar til þess að setja upp hindranir. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Við- reisnar lANDBÚNAÐur  Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisn­ ar, segir málshöfðun innflutnings­ fyrirtækja innan Félags atvinnurek­ enda á hendur ríkinu vegna tolla á landbúnaðarvörur endurspegla að það sé kominn tími til að stokka kerfið upp. „Það er knýjandi þörf á að endur­ skoða landbúnaðarkerfið og það á enginn að vera hræddur við það. Það er hægt að styrkja bændur með öðrum hætti en að vernda þá með tollmúrum. Verndartollar eru gamal dags nálgun að því hvernig hægt er að byggja þetta kerfi upp. Við trúum því að opinn og frjáls markaður sé af hinu góða,“ segir Þorgerður Katrín. Hún segir nauðsynlegt að kerfið verði meira í þágu bænda sjálfra og neytenda en ekki einhverra milli­ liða. Þorgerður segist telja að land­ búnaðarmálin verði fyrirferðar­ mikil á þinginu í vetur. „Það þarf að fara í markvissari stuðning við bændur. Það verður fróðlegt að sjá hvernig ríkisstjórnin tekur á þessum málum.“ Ólafur Stephensen framkvæmda­ stjóri Félags atvinnurekenda segir það bæði ólögmætt og óskynsam­ legt að framselja til ráðherra vald til ákvörðunar á gjaldtöku vegna innflutnings landbúnaðarvara. „Langtímamarkmiðið á hins vegar að vera að hætta að vernda eina atvinnugrein með tollum, enda hafa allir aðrir tollar en á búvörur verið afnumdir,“ segir Ólafur. Að sögn Ólafs valda tollar á Hægt að styrkja bændur með öðrum hætti en tollmúrum Formaður Viðreisnar segir knýjandi þörf á því að endurskoða landbúnaðarkerfið. Verndartollar séu gamal- dags nálgun að því hvernig hægt sé að byggja kerfið upp. Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir tolla á landbúnaðarvörur valda neytendum tvíþættu tjóni og langtímamarkmið að leggja þá alveg af. Gera má ráð fyrir því að landbúnaðarmálin verði fyrirferðarmikil á alþingi í vetur. FréttaBlaðið/eYÞÓr búvörur neytendum tvíþættu tjóni. Annars vegar með hærra verði á inn­ fluttum vörum og hins vegar geri þeir innlendum framleiðendum kleift að selja vörur sínar á hærra verði en ella. „Sé það yfirhöfuð réttlætanlegt að vernda innlenda framleiðslu með tollum þá verður sú framleiðsla að standa undir eftirspurn. Hér eru lagðir tollar á fjölmargar tegundir matvæla sem eru ekki einu sinni framleidd á Íslandi. Það verður að spyrja hvaða hagsmuni verið sé að vernda með því.“ Þorgerður Katrín tekur undir það sjónarmið að það sé einkennilegt að tollar séu lagðir á landbúnaðar­ afurðir sem ekki séu framleiddar hérlendis. „Manni finnst oft að allar glufur séu nýttar til þess að setja upp hindranir.“ sighvatur@frettabladid.is sAmGÖNGur Sala á nýjum bílum í nýliðnum ágústmánuði dróst saman um 3,7 prósent miðað við sama mánuð á síðasta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bílgreina­ sambandinu. Alls voru skráðir 1.465 nýir fólksbílar í mánuðinum. Fyrstu átta mánuði ársins voru nýskráðir fólksbílar 15.033 talsins sem er 11,8 prósenta samdráttur miðað við sama tímabil í fyrra. Af þeim rúmlega fimmtán þús­ und nýju fólksbílum sem seldust fyrstu átta mánuði ársins voru 42 prósent með bensínvél, 39 prósent með dísilvél og 12 prósent voru raf­ magnsbílar. Aðrar tegundir voru um sjö prósent nýrra bíla. – sar Rafmagnsbílar 12 prósent nýrra bíla á árinu rúmlega 15.000 nýir bílar hafa selst það sem af er ári. FréttaBlaðið/GVa 11,8% samdráttur varð í sölu nýrra bíla fyrstu átta mánuði ársins. 3 . s e p t e m B e r 2 0 1 8 m á N u D A G u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t A B l A Ð i Ð 0 3 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :4 3 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 B 8 -3 7 D 0 2 0 B 8 -3 6 9 4 2 0 B 8 -3 5 5 8 2 0 B 8 -3 4 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 2 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.