Fréttablaðið - 03.09.2018, Síða 12
Fjölnir - Stjarnan 1-3
0-1 Guðmundur Steinn Hafsteinsson (17.),
1-1 Þórir Guðjónsson (25.), 1-2 Guðjón Bald-
vinsson (64.), 1-3 Ævar Ingi Jóhannesson
(88.).
KA - Valur 3-3
0-1 Kristinn Freyr Sigurðsson (15.), 1-1 Hall-
grímur Mar Steingrímsson (27.), 2-1 Steinþór
Freyr Þorsteinsson (39.), 2-2 Kristinn Freyr
(53.), 3-2 Callum Williams (64.), 3-3 Birkir
Már Sævarsson (90+2.).
ÍBV - Víkingur R. 1-1
0-1 Geoffrey Castillion (7.), 1-1 Sindri Snær
Magnússon (26.).
Breiðablik - Grindavík 1-1
1-0 Thomas Mikkelsen (33.), 1-1 Will Daniels
(75.).
FH - KR 4-0
1-0 Robbie Crawford (11.), 2-0 Jákup
Thomsen (45.), 3-0 Crawford (55.), 4-0 Þórir
Jóhann Helgason (86.).
Efri
Valur 40
Stjarnan 39
Breiðablik 35
KR 30
FH 30
Grindavík 25
Neðri
KA 24
ÍBV 23
Fylkir 22
Víkingur R. 21
Fjölnir 16
Keflavík 4
Nýjast
Pepsi-deild karla
Magni - ÍA 2-3
0-1 Stefán Teitur Þórðarson (8.), 1-1 Lars
Óli Jessen (14.), 1-2 Jeppe Hansen (15.), 1-3
Stefán Teitur (46.), 2-3 Kristinn Þór Rós-
bergsson (48.).
Víkingur Ó. - Þór 2-0
1-0 Gonzalo Zamorano Leon, víti (22.), 2-0
Zamorano (73.).
Inkasso-deild karla
Selfoss - Dragunas 34-28
Mörk Selfoss: Einar Sverrisson 8, Árni
Steinn Steinþórsson 7, Hergeir Grímsson 6,
Atli Ævar Ingólfsson 5, Haukur Þrastarson 5,
Guðni Ingvarsson 2, Elvar Örn Jónsson 1.
Varin skot: Pawel Kiepulski 14.
Liðin mætast öðru sinni í Litháen laugar-
daginn 8. september.
Dubrava - FH 29-33
Mörk FH: Birgir Már Birgisson 7, Einar Rafn
Eiðsson 7, Ágúst Birgisson 5, Bjarni Ófeigur
Valdimarsson 5, Ásbjörn Friðriksson 3,
Jóhann Birgir Ingvarsson 3, Jóhann Karl
Reynisson 2, Arnar Freyr Ársælsson 1.
Varin skot: Birkir Fannar Bragason 11.
Liðin mætast öðru sinni í Kaplakrika laugar-
daginn 8. september.
EHF-bikar karla
Handbolti FH og Selfoss eru í afar
vænlegri stöðu fyrir seinni leikina í
1. umferð EHF-bikars karla í hand-
bolta eftir góð úrslit í fyrri leikj-
unum á laugardaginn.
FH gerði góða ferð til Króatíu
og vann fjögurra marka sigur á
Dubrava, 29-33. Örvhentir leik-
menn FH-inga voru í aðalhlutverki
því bæði Einar Rafn Eiðsson og
Birgir Már Birgisson skoruðu sjö
mörk. Sá síðarnefndi lék sinn fyrsta
keppnisleik fyrir FH á laugardaginn
og hélt upp á það með sjö mörkum í
jafn mörgum skottilraunum. Bjarni
Ófeigur Valdimarsson lék einn-
ig sinn fyrsta keppnisleik fyrir FH
á laugardaginn og skoraði fimm
mörk, líkt og Ágúst Birgisson.
Liðin mætast aftur í Kaplakrika á
laugardaginn. Sigurvegarinn úr ein-
víginu mætir Benfica frá Portúgal í
næstu umferð. FH komst í 3. umferð
EHF-bikarsins á síðasta tímabili og
var hársbreidd frá því að komast í
riðlakeppnina.
Selfoss vann sex marka sigur á
Klaipeda Dragunas frá Litháen,
34-28, á laugardaginn. Þetta var
fyrsti Evrópuleikur Selfoss síðan
1994. Þetta var jafnframt fyrsti
keppnisleikur Selfyssinga í Hleðslu-
höllinni sem tekur við af Vallaskóla
sem heimavöllur liðsins. Hleðslu-
höllin, eða Iða, var áður heima-
völlur körfuboltaliðsins FSu.
Einar Sverrisson hélt uppteknum
hætti frá því í úrslitakeppninni síð-
asta vor og skoraði átta mörk fyrir
Selfoss gegn Dragunas. Árni Steinn
Steinþórsson skoraði sjö mörk, Her-
geir Grímsson sex og þeir Atli Ævar
Ingólfsson og Haukur Þrastarson
fimm mörk hvor. Pawel Kiepulski,
nýr markvörður í herbúðum Selfyss-
inga, varði 14 skot.
Selfoss og Dragunas mætast öðru
sinni í Litháen á laugardaginn. Liðið
sem fer áfram mætir Ribnica frá
Slóv eníu í 2. umferð.
ÍBV, þriðja íslenska liðið í EHF-
bikarnum, hefur leik í 2. umferð.
Þar mæta Eyjamenn Pays d’Aix frá
Frakklandi. – iþs
Komin með annan fótinn í 2. umferðina
Einar Sverrisson skoraði átta mörk og var markahæstur Selfyssinga í sigrinum
örugga á Klaipeda Dragunas frá Litháen á laugardaginn. FRéttABLAðIð/EyÞÓR
Sindri - ÍA 0-6
0-1 Sigrún Eva Sigurðardóttir (4.), 0-2 Unnur
Ýr Haraldsdóttir (13.), 0-3 Maren Leósdóttir
(26.), 0-4 Heiðrún Sara Guðmundsdóttir
(44.), 0-5 Snædís Logadóttir (57.), 0-6 Eva
María Jónsdóttir (85.).
Hamrarnir - Þróttur R. 0-4
0-1 Gabriela Maria Mencotti (32.), 0-2 Men-
cotti (68.), 0-3 Andrea Rut Bjarnadóttir (79.),
0-4 Álfhildur Rósa Kjartansdóttir (88.).
Inkasso-deild kvenna
Sara Däbritz sækir að Fanndísi Friðriksdóttur í leik Íslands og Þýskalands. Þjóðverjar unnu leikinn 0-2 og eru svo gott sem komnir á HM. FRéttABLAðIð/SIGtRyGGuR ARI
Fótbolti „Ég er svekktur því okkur
langaði svo rosalega að vinna þær
aftur. Á sama tíma er ég stoltur af
liðinu og þjóðinni. Þetta var sér-
stakur dagur. Ég er ánægður með
frammistöðu liðsins. Varnarleik-
urinn var góður en sóknarleikur-
inn gekk erfiðlega,“ sagði Freyr
Alexandersson, þjálfari íslenska
kvennalandsliðsins, í samtali við
Fréttablaðið eftir 0-2 tapið fyrir
Þýskalandi í undankeppni HM í
fyrradag. Nýtt áhorfendamet var
sett á laugardaginn en 9.636 manns
lögðu leið sína í Laugardalinn.
Freyr viðurkenndi að Þjóðverjar
hefðu verið betri en Íslendingar í
leiknum og sigur þeirra hafi verið
sanngjarn.
„Við töpuðum fyrir betra liði. Þær
eru betri en við og eru góðar. Kant-
spilið þeirra var framúrskarandi.
Við stóðum það vel af okkur en
samt náðu þær frábærum köflum
inn á milli. Þetta er heimsklassa lið
sem hitti á góðan dag. Það var engin
tilviljun. Þær voru vel undirbúnar
og báru virðingu fyrir okkur,“ sagði
Freyr.
Þjálfarinn hefði viljað sjá sitt lið
þjarma aðeins meira að því þýska
og láta gestina gera mistök eins og
í fyrri leiknum sem Ísland vann, 2-3.
„Ég er mest svekktur yfir því að
hafa ekki ýtt þeim í að gera mistök,
því það er hægt,“ sagði Freyr. „Við
náðum því 3-4 sinnum á fyrsta hálf-
tímanum.“
Eftir tapið á laugardaginn er ljóst
að Ísland þarf að fara lengri leið-
ina inn á heimsmeistaramótið. Á
morgun mæta Íslendingar Tékkum
og mega ekki tapa, og verða helst
að vinna, til að tryggja sér sæti í
fjögurra liða umspili um sæti á HM.
„Upphaflega var markmiðið að
komast í umspil. Við áttum mögu-
leika á að fara bónusleiðina og
komast beint á HM, reyndum það
en betra liðið, það þýska, fer þá leið.
En það er eins gott að við klárum
Tékkana og náum í umspilssætið.
Þar eru þjóðir sem við getum slegið
út en það verður alltaf erfitt,“ sagði
Freyr. Hann segir mikilvægt að leik-
menn Íslands taki ekki tapið gegn
Þýskalandi of mikið inn á sig.
„Eins og ég sagði fyrir leikinn eru
eðlileg úrslit að við töpum fyrir
Þýskalandi. En við trúum svo mikið
á okkur og það fær alltaf á mann að
tapa. Við þurfum að losa það út.“
ingvithor@frettabladid.is
Þær báru virðingu fyrir okkur
Freyr Alexandersson hefði viljað sjá Ísland setja Þýskaland í meiri vandræði í leik þeirra í undankeppni HM
á laugardaginn. Hann kvaðst samt stoltur af íslenska liðinu sem þarf núna að fara lengri leiðina á HM 2019.
Þetta er heimsklassa
lið sem hitti á góðan
dag. Það var engin tilviljun.
Þær voru vel undirbúnar og
báru virðingu
fyrir okkur.
Freyr Alexand-
ersson
Noregur - Ísland 69-71
Stig Íslands: Ólafur Ólafsson 19, Haukur
Óskarsson 13, Collin Pryor 10/11 fráköst,
Danero Thomas 8, Kristinn Pálsson 8/5
stoðsendingar, Kristján Leifur Sverrisson 5,
Gunnar Ólafsson 4, Ragnar Nathanaelsson
2, Emil Barja 2/9 fráköst/6 stoðsendingar.
Liðin mætast aftur klukkan 16:00 í dag.
Vináttulandsleikur
3 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 m Á n U d a G U r12 s p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð
sport
0
3
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
B
8
-1
F
2
0
2
0
B
8
-1
D
E
4
2
0
B
8
-1
C
A
8
2
0
B
8
-1
B
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
2
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K