Verslunartíðindi - 01.12.1923, Page 6

Verslunartíðindi - 01.12.1923, Page 6
134 VERSLUNARTÍÐINDI En þetta er ekki verslun. Þetta er skatt- heimta, sem fordæmd ætti að vera af hverjum hugsandi manni, því að engin skattheimta kostar þjóðina svo gífurlega sem þessi, sem kölluð er landsverslun eða rikisrekstur. Hjer var einkasala ríkisins á tóbaki sett á með því yfirskini að það ætti að reyna hvernig hún gæfist. Hjer gjalda löggjafarnir lítt varhuga við að grípa inn í eitt mikilvægasta verksvið þjóðarinnar, gera tilraunir með það, svifta því úr föst- um farvegi og beina inn á nýja braut eins og hjer sje um nýgræðing að ræða sem engu máli skiftir hversu vegnar. Hugmyndin um ríkisrekstur er komin frá jafnaðarmönnum og árinni hefir hjer verið komið fyrir borð með fylgi sam- vinnumanna, sem hvergi fara dult með fjandskap sinn á kaupsýslumönnum lands- ins og framleiðendum sjávarafurða. Hjer hefir ríkisreksturinn reynst illa eins og hvarvetna annarsstaðar sem honum hefir, illu heilli, verið komið á. Menn sjá betur og betur hversu þessar hugmyndir jafuaðarmanna eru gersamlega andvana og óhæfar i framkvæmdinni. Furðulegt fyrirbrigði er það hjer á landi að jafnað- armenn og samvinnumenn skuli vinna saman að þessum málum, jafn ólíkum hagsmunum og þeir vaka yfir. En hjer ganga þeir sameinaðir til alþingiskosninga og veita hvorir öðrum eftir megni. Jafnaðarmenn vilja að ríkið annist allan kaupskap og þeir vilja að það taki að sjer alla framleiðslu sjávarafurða. Nú eiga þeir aðeins eftir að kveða upp úr með að ríkið taki líka að sjer allan sveitabúskap og leggi jarðirnar undir sig. En það verður þó varla meðan jafnaðarmennirnir þurfa aðstoðar samvinnumanna, því þá yrði væntanlega grunt á vinskapnum. Nú hafa þessar stefnur verið dæmdar við siðustu alþingiskosníngar. Nú hefir þjóðin sjálf sýnt vilja sinn í þessum efn- um, og það svo skýrt að ekki verður um vilst. Nú stynja dvergar vorrar »íslensku« jafnaðarstefnu fyrir steindyrum sinna eig- in óframkvæmanlegu hugmynda sem þjóð- in hefir nú afneitað og vill reka af hönd- um sjer. í sex kaupstöðum landsins voru fram- bjóðendur af hendi þeirra manna sem berjast fyrir þessum stefnum og í öllum þessum sex kaupstöðum var engi kosinn úr þeirra flokki nema einn. önnur kjör- dæmi landsins sýndu einnig ótvírætt hug sinn á þessum stefnum með vali þingmannanna. Hjer hefir þjóðin sjálf sýnt hvað hún vill. Hún vill engan rikisrekstur. Hún vill ekki að framleiðslutækin sjeu starfrækt af rík- inu. Hún vill engar einkasölur eða ríkis- verslun. Hún hefir fordæmt þessar stefn- ur með því að senda ekki þá menn á þing sem fyrir þeim berjast. Þetta er vilji landsmanna og í samræmi við þenna vilja á næsta alþing að nema burtu allan verslunarrekstur ríkisins og setja rammar skorður við að þessum upp- vakning verði afturkvæmt. Þjóðin hefir sjálf skipað svo komandi þing, að þetta ætti að verða framkvæm- anlegt. Hún hefir dæmt þessar stefnur, hún hefir fordæmt þær, og bíður nú þess að þingið gangi svo frá þessum málum að því verði höfuðburður að Björn Olafsson. Viðskiftafáfræði. Þótt ekki sje hægt að segja annað en að vel hafi ræst úr með sölu sjávaraf- urðanna siðara hluta þessa árs, og útlit sje fyrir að eftirspurn á fiski verði nokk- ur fyrri hluta næsta árs, má það ómögu- lega gleymast, að eitt af höfuðskilyrðun-

x

Verslunartíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.