Verslunartíðindi - 01.12.1923, Side 10

Verslunartíðindi - 01.12.1923, Side 10
138 VERSLUNARTÍÐINDI stærð, með um 400 þús. íbúa, og hefur borgin Danzig þar af um 250 þús. Verslun: Inn- og útfluttar vörur 1922 námu um 1 milj. smálestir. Er mikið af því til og frá Póllandi. Af innfluttum vörum 1922 má tilnefna 50.600 smálestir af síld, 1800 af ull, 132 af gærum og 360 af lýsi. Megnið af innfl. síld er frá Bretlandi, þar næst frá Noregi. Gengur hún mest til Póllands, Rússlands, Lithauen og Tjekko- slóvakíu. Eftirtektavert er það, að nokkuð af síld hefur síðastl. ár verið innfiutt frá Alaska og seld þangað komin á 8 amk. dollara og þykir góð. — En annars var frágang- ur á allri síld og umbúðum, er jeg sá þarna mjög góður. Og geymd var hún í góðum húsum og tunnunum aðeins staflað í 3 raðir. Jeg sá þar íslenska síld frá 1922, sem Ameln hafði selt þangað á 12 sænskar krónur tunnuna með 110 kg. — Leit hún mjög vel út. — Mest af bresku síldinni hafði verið selt á 24 shill. tn. cif. á 125 kg. með 8/900 síldum. Meðjslensku síldina var þar sama við- kvæðið sem annarstaðar, að hún þætti of stór og of dýr, miðuð við vigtarinnihald. Annars fann jeg samt að kaupmenn gjarn- an vildu fá íslenska síld, því hún þykir góð þar sem annarstaðar. Stærsti síldarkaupmaðurinn, Pommer & Thomsen sagðist kaupa mikið af sinni síld með þeim skilmálum að greiða V3 fyrir- fram og 2/b 6—8 vikum eftir móttöku. Annars mun þetta nokkuð mismunandi, því umboðsfirmað Fritz Bartsch sagði að hægt væri að selja vörur þangað eða til Póllands gegn hleðsluskjölum þar. Þetta firma, sem fjekk bestu meðmæli þar sem jeg spurðist fyrir um það, tekur 1—2% í umboðslaun, eftir því hve mikið er um að ræða. Sagðist það geta selt bæði síld, ull,S skinn og lýsi og einnig nokkuð af flski (helst smáflski, ýsu og upsa). En þyrfti að hafa sýnishorn til að selja eftir. Um Danzig býst jeg við að selja mætti með góðum árangri töluvert af ísl. afurð- um, sjerstaklega ull, skinn, sild og lýsi, bæði til Póllands og Tjekkoslóvakiu. Myntin i Danzig er þýsk, og var geng- ið um það leyti, sem jeg var þar á ferð- inni/tseint í ágúst 35 milj. Reichsmörk fyrir 1 £ sterling. 6. Pólland. Pólland er rúmlega 386 þús. ferkilo- metrar að stærð, eða svipað og Danmörk, Bretland, Belgía, Holland og Portúgal til samans, meö ágætis landkostum og mikl- um framtíðarskilyrðum. — íbúar landsins eru nú um 30 miljónir. Þessir eru helstu bæirnir: Warzawa með 932 þús. íbúa, Lodz með 452 þús., Lem- berg með 220 þús., Cracow með 182 þús., Posen með 162 þús., Vilna 130 þús. Eftir innlimun Efri-Schlesiu hefur Pól- landi hlotnast mjög svo þýðingarmikið skilyrði til þess að geta komist í fremstu röð Evrópuríkjanna, hvað stóriðnað snert- ir, því hinar miklu kolanámur þar gera pólskan stóriðnað alveg óháðan öðrum löndum. Og þess utan fengu Pólverjar þarna mjög tilkomumiklar og fullkomnar járn-, stál- og zinkverksmiðjur, sem koma sjer vel við hinar miklu málmnámur í landinu. Slæmar samgöngur og samgöngu- tæki, standa nú blómlegri framþróun mest fyrir þrifum, því fjárhagurinn er ekki góð- ur til þess á skömmum tíma að kippa því í lag, sem þarf. Svo eiga Pólverjar í erj- um við nágrannalöndin, sjerstaklega Lit- hauen, og kveður svo mjög að því, að engar samgöngur eru á milli þessara landa. En það aftrar þeim að geta notfært sjer hin skógríku landflæmi í norðausturhluta landsins.

x

Verslunartíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.