Verslunartíðindi - 01.12.1923, Qupperneq 13
VERSLUNAHTÍÐINDI
141
37 milj. dollara. Er þetta afleiðing þess
hve mikið hefur verið keypt af sterlings-
pundum og dollurum meðan gengið var á
reiki, og hefur því myndast drjúgur vara-
sjóður erlendis, sem jafnframt hinum nýja
gengisjöfnunarsjóði getur haft mikil áhrif
á gengið. Þessar 37 milj. króna eru álitn-
ar góður bakhjarl gengisjöfnunarsjóðsins,
sem ekki þarf því að grída til fyrsta kast-
ið. Annars eru litlar breytingar á mánað-
aryfirlitinu. Veltan hefur stigið um 641,7
upp í 660 milj. Vikuvfirlitið síðast sýnir
mikla aukningu seðla í umferð, eins og
venjulegt er í mánaðarlok. Seðlaveltan
var 486,1 milj. kr., en viku á undan var
hún 431,7 milj. Gullforðinn var 2,69 milj.
og gulltryggingarhlutfallið 43,8, en var
49,3 fyrir viku.
Norska stórþingið hefur samþykt, að
núgildandi tollur af vörum, sem reiknað-
ur er eftir þyngd, skuli framvegis vera
greiddur í gullkrónum. Tollmálastjórnin
hefur ákveðið að fyrsta kastið verði toll-
urinn reiknaður þannig, að lagður sje sam-
an upphaflegi tollurinn og aukatolla og
margfaldað með 1,79. Þessi ákvæði öðl-
ast strax gildi.
Verslunarsamningur sá, er Danmörk og
Finnland hafa gjört hefur- nú verið sam-
þyktur af ríkisþingi Dana.
VíBÍtalan í Danmörku fyrir nóvember-
mánuð hefur hækkað úr 207 upp í 210,
og er það 15% hærra en á sama tima í
fyrra. Er þetta aðallega sökum hækk-
unar á kjöti, smjörlíki, jarðeplum, ull og
bómullargarni. Aðrar vörur ýmsar, svo
sem málmar og áburðarefni hafa lækkað.
Vöruinnflutningur til Danmerkur í októ-
ber nam 177 milj. kr., en útflutningurinn
145 miljónum. En þar af voru vörur end-
ursendar fyrir 8 milj. kr. Bæði inn- og
útflutningur hafa aldrei numið svo miklu
undanfarandi ár.
Verslunarfloti Dana var 1. janúar 1923
■«
♦
♦
♦
♦
♦
4
♦
♦
Bernh. Petersen
Reykjavík.
Simar: 598 og 900. Símnefni: Bernhardo.
Kaupir allar tegundir af lýsi hæsta
verði. Móttekið á hvaða höfn sem
er. — — Greitt við útskipun.
1905 skip, og eru þar með talin skip yflr
20 tonn brutto. Tonnatalan var netto
656,200, en brutto 1054,600. Um 74,7%
af þessu eru gufuskip, en þau eru aðeins
einn þriðji hluti að tölu. Um % hlutar
gufuskipanna, samtals 615,80 tonn brutto
eru í langferðasiglingum, og þar að auki
67 vjelskip 129,224 tonn brutto.
Á sameiginlegum fundi er meðlimir
»Industriraadet« danska og fulltrúar »In-
dustriforeningen* hjeldu nýlega í Khöfn
var ákveðið að taka frumkvæði til samn-
inga við iðnaðar og atvinnufyrirtæki og
við yfirvöldin um það, hvort tiltækilegt
sje að halda stóra alþjóðasýningu í Khöfn
árið 1928í Dönsku blöðin eru þessu með-
mælt og birtu bráðabirgðaráætlun eftir
húsam. próf. Rosen.
Er sýningunni ætlað að vera eftir þess-
ari áætlun á gömlu járnbrautarstaðalóð-
inni við St. Jörgens Sö. Alls er sýning-
arsvæðið áætlað 300 þús. fermetrar, og
útgjöldin áætluð 25 milj. kr. auk bygg-
íngarkostnaðar á sýningahúsum annara
þjóða.
Kolaframleiöslan 1922.
Eftir því, sem segir í skýrslu frá »Wirts-
chaft und Statistik« hefur kolafraraleiðslan
1922 verið nálægt 1032 milj. tonn Árið