Verslunartíðindi - 01.08.1936, Blaðsíða 5
i
VERSLUNARTIÐINDI|
MÁNAÐARRIT. GEFIÐ ÚT AF VERSLUNARRÁÐI ÍSLANDS |
Verslunartíðindi koma ut einu sinni i mánuði, venjul. 12 blaðsíður.
Árgangurinn kostar kr. 4.50. — Ritstjórn og afgreiðsla:
Skrifstofa Verslunarráðs íslands, Eimskipafjelagshúsinu. =
Talsími 3694. Pósthólf 514. — Prentstaður: ísafoldarprentsmiðja h.f. =
19. ár
Ágúst 1936
8. tbl.
Reykjavík 150 ára.
Eftir Pjetur Halldórsson borgarstjóra.
Eftirfarandi erindi flutti Pjetur Halklórsson borg-
arstjóri í útvarpið 18. ágúst s 1. í tilefni af 150 ára
afmæli Reykjavíkur. 1 erindinu er gerð grein fyrir
aðdragandanum að endalokum einokunarinnar og
stofnun hinna fyrstu kaupstaða á íslandi. Er
það hvortveggjasvomerkilegiratburðirí verslunar-
sögu landsins, að Verslunartíðindunum er sjerstök
ánægja af að birta hið fróðlega erindi borgarstjór-
ans um þessa hluti.
Við erum hjer í Reykjavík í dag að
minnast merkilegs atburðar í sögu lands-
ins og sjerstaklega í sögu Reykjavíkur.
Hinn 18. ágúst 1786, eða í dag fyrir
150 árum, gaf Kristján konungur VII.
Út Tilskipun um afnám hinnar kon-
unglegu einokunarverslunar á islandi.
Einokunin — ráðstöfun stjórn-
arvaldanna á einkaheimild til handa
ákveðnum aðilum til verslunar á ís-
landi — hafði staðið kynslóð eftir kyn-
slóð með þeim afleiðingum fyrir lands-
menn, að því er mönnum kemur saman
um nú á tímum, að þetta verslunarófrelsi
hafði, ásamt ýmiskonar áföllum af völd-
um farsótta og hamfara náttúrunnar,
dregið svo kjark og dug úr landsfólk-
inu, að líklega er það rjett, að hvergi
hefir kynstofn hvítrar menningarþjóð-
ar annars staðar, svo sögur fari af, rat-
að í slíkar raunir sem Islendingar.
Ef athugað er hvernig umhorfsvarhjer
á landi um þetta leyti, ber margt hryggi-
legt fyrir augu. Árið 1783 brunnu Skaft-
áreldar sem allir landsmenn hafa heyrt
getið um. Um afleiðingar þess viðburð-
ar segir í skjali frá þessum tímum, að
veturinn 1783—84 dóu af skorti 700
manns í Þingeyjarsýslum, 355 í Eyja-
fjarðarsýslu, 100 í Skagafirði, og jafn-
margir í Norðurmúlasýslu. — Þenna
sama vetur fjellu 6801 nautgripir hjer á
landi, 19488 hross og 129.947 fjár, og
er þó ekki alt talið þar sem skýrslur
vantaði frá nokkrum sýslumönnum um
þetta.
Sumarið eftir, 1784, urðu hinn 14.
ágúst jarðskjálftar á Suðurlandi, sem
ullu miklu tjóni. Eftir þenna dag, stóðu
í Ytra-Hrepp aðeins 4 bæir af 50. I
Eystri-Hrepp stóðu aðeins fáir bæir til
fjalla. Um Skeið og Biskupstungur stóð
ekki nokkurt hús eða kofi. Hinn 16.
ágúst jókst jarðskjálftinn svo, að í flest-
um hreppum Árnessýslu urðu hinar
mestu skemdir. Öll hús fjellu í Flóa í
átta kirkjusóknum — kirkjur og prest-
setur um alla Árnessýslu fjellu ýmist