Verslunartíðindi - 01.08.1936, Blaðsíða 7

Verslunartíðindi - 01.08.1936, Blaðsíða 7
VERSLUNARTÍÐINDI 75 að hinu leytinu, að frjálsari verslun og samkepni mundi hvetja landsmenn til aukinnar framleiðslu. Konungurinn fjelst á þessa niðurstöðu nefndarinnar og gaf út 10 dögum síð- ar Tilskipun um afnám, einokunar á Is- landi, 18. ágúst 1786. Aðalefni tilskipunarinnar er þetta: 1. Verslun konungs hættir að fullu og öllu frá 1. jan. 1788 og skal verslunin þá frjáls öllum þegnum konungs í Ev- rópu nema þeim þeirra, sem sjálfir búa við einokun. Sömuleiðis er öllum þegnum konungs frjálst að reka fiski- veiðar við strendur landsins og að hafa aðsetur í landi til fiskverkunar. 2. Kaupmenn mega hefja verslunþeg- ar vorið 1787 ef þeir tilkynna þá fyrir- ætlun fyrir árslok 1786 og er því heitið, að veita hverjum kaupmanni nauðsyn- legar upplýsingar um þann stað, er hann hygst að hefja verslun á og aðstoð til byrjunar. 3. Taxtar einokunarverslunarinnar eru afnumdir, og er öllum frjálst frá því um vorið 1787 að selja vörur og kaupa við því verði, er þeim kemur saman um. 4. Allar vörur, innfluttar og útflutt- ar, skulu í 20 ár vera tollfrjálsar. 5. Skip í förum til Islands skulu und- anþegin venjulegum gjöldum í öllum höfnum ríkisins. 6. Islenskar vörur skulu vera toll- og gjaldfrjálsar í ríkjum konungs, og enga tolla eða gjöld skal í ríkjum kon- ungs utan Islands leggja á vörur, sem til Islands fara. 7. Aðeins er heimilt að nota skip þegna konungs til flutninga til lands- ins og frá því. 8. Sex verslunarstaðir, Reykjavík, Vestmannaeyjar, Eskifjörður, Eyjafjörð- ur, Isafjörður og Grundarfjörður, fá kaupstaðarrjettindi og leggur konungur kaupstöðunum ókeypis land. Munu gef- in nánari fyrirmæli er hjer að lúta. 9. Hver kaupmaður má koma sjer upp útibúi í verslunarhjeraðinu, þá er hann hefir fengið borgarabrjef og næg- ar vörubirgðir. Hann má senda varn- ingsfarma hvert sem er og kaupa varn- ingsfarma hvaðan sem er úr löndum konungs. 10. Hverjum manni er frjálst að versla hvar sem hann óskar, ekki að eins við kaupmenn í kaupstað eða við útibú, heldur og við aðkomna kaup- menn, spekúlanta svokallaða. 11. Verði næstu ár erfið svo að ótt- ast megi neyð, 'er því heitið að konungur komi á stofn forðabúrum. 12 Enginn má eiga viðskifti við framandi þjóða menn, og er þeirri stranglega bannað að versla á Islandi, eða reka hjeðan útgerð. 13. Allar vörubirgðir verslunarinnar á Islandi skulu taldar í apríllok 1787 og skulu þær metnar til verðs ásamt öllum fasteignum. Skal mat þetta lagt til grundvallar við sölu eignanna og reikningslok einokunarinnar. 14. Gera skal skrá yfir allar útistand- andi skuldir einokunarinnar.. Skulu all- ar skuldir eldri en frá 1764, feldar nið- ur, en helmingur yngri skulda gegn greiðslu hins helmings fyrir júlílok 1787. 15. Einokunarverslunin hættir allri lánsverslun frá þeim degi er tilskipun þessi er birt almenningi, og eru þó und-1 an tekin lán til útgerðar á vertíð 1787, sem endurgreiðast jafnótt og aflað er, sem og lán til fátækra með ábyrgð stjórnarvalda. 16. Kaupmönnum og öðrum efna mönnum er gefinn kostur á kaupum á húsum einokunarverslunarinnar, áhóld- um og vörubirgðum innlendum og er- lendum á hverjum verslunarstað, í einu

x

Verslunartíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.