Verslunartíðindi - 01.08.1936, Side 10

Verslunartíðindi - 01.08.1936, Side 10
78 VERSLUNARTÍÐINDI illþjóðasýning í París 1937. Frakkar eru nu sem óðast að undir- búa alþjóðasýningu þá, sem þeir hafa ákveðið að halda sumarið 1937. Verður hún opnuð í maí og stendur í 6 mán- uði. „Sýningu listar og tækni nútímans“ nefna þeir hana. Öllum þjóðum hefir verið boðin þátttaka í sýningunni, og fjöldamargar þeirra hafa nú þegar þeg- ið boðið eða yfir 40 alls. Af Evrópuþjóð- sveinar setjast þar að sem meistarar skulu útlærðir lærisveinar þeirra njóta fullra rjettinda. 13. Aldrei má „stipta nokkurt hand- verksfjelag á Islandi". 14. Hverjum borgara sem þess óskar, má leyft vera fyrst um sinn í 20 ár að stofna minni kaupverslun sem útbúða menn, hafi þeir borgararjett til kaup- skapar og sjeu vel birgir af nauðsynja- varningi. 15. Hlutaðeigandi sýslumenn skulu fyrst um sinn halda lagastjórn yfir þess- um stöðum, sem þó mega vona að fá sín eigin staðaryfirvöld þegar stiptamt- maður og amtmaður ávísar að þeir magnist svo að þörf gerist. Hjer má nú líta upphafið að hvoru- tveggja — að landsmenn hafa tekið verslunina meira og meira í sínar hend- ur, smátt og smátt alt fram á þennan dag, og að nú eru upp komnir fjölmenn- ir kaupstaðir í landinu víðsvegar auk höfuðborgarinnar. Þeir staðir eru allir sameiginlega aðsetur þessa atriðis í framleiðslu landsmanna: verslunarinn- ar. Það hefir tekið heila öld eða rúm- lega það að gera verslun íslands að at- vinnuvegi og viðfangsefni landsmanna um eru ekki nema örfáar, sem ekki hafa sint boðinu. Öll Norðurlönd, nema ísland eru þátttakendur. Tilgangur sýningar sem þessarar er að blása nýjum anda í athafnalíf þeirra þjóða, sem þátt taka í henni og þá fyrst og fremst þeirrar þjóðar, sein heldur sýninguna. Er það staðreynd, sem ekki verður gengið fram hjá, að nýr skriður sjálfra og þetta er ekki furðanlegt. Verslun er vandasamt viðfangsefni ef vel á að takast —- hún þarf að grund- vallast á öruggri reynsluþekkingu, fenginni að arfi frá kynslóð til kyn- slóðar, fullkomnum heiðarleik og ráð- vendní, yfirburðum að glöggskygni á fjárhagsmál og höfðingslund sem fyr- irlítur auðfenginn arð, en lítur á starf- semina sem þjónustu að æðra takmarki. Á þenna hátt fara saman hagsmunir einstaklings og heildar — verslunar- manns, viðskiftamanns, kaupstaðar og þjóðfjelagsins alls. Það er almenn skoðun hjer á landi, síðan á dögum einokunarinnar, að versl- unarfrelsi sje eitt af skilyrðum þess að þjóðfjelagi geti vegnað vel — til þess, að starfsemi landsfólksins að því að vinna verðmæti úr skauti náttúrunnar geti borið sem bestan árangur. — Hið nána samband sem er í milli verslun- arfrelsis og rjettinda kaupstaða í til- skipunum Kristjáns konungs VII. frá 8. ágúst og 17. nóvember 1786 er enn í fullu gildi, staðfest af reynslunni. Reykvíkingar óska, að landsmenn megi um aldur halda fengnu frelsi í verslun, og að kaupstaðir blómgist og blessist til farsældar landi og lýð.

x

Verslunartíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.