Fréttablaðið - 04.10.2018, Síða 52
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Fimmtudagur
hvar@frettabladid.is
4. október 2018
Tónlist
Hvað? Helgi – útgáfutónleikar
Hvenær? 20.30
Hvar? Bæjarbíó, Hafnarfirði
Helgi gaf út sína fyrstu breiðskífu,
Skýjabönd, í lok ágúst. Í tilefni
útgáfunnar ætlar Helgi ásamt
öflugri hljómsveit sinni að flytja
plötuna í heild sinni í fyrsta skipti
í Bæjarbíói fimmtudagskvöldið
4. október. Húsið er opnað kl.
20.00 og tónleikar hefjast kl. 20.30.
Hvað? Af fingrum fram með Jóni
Ólafs – Selma Björns
Hvenær? 20.30
Hvar? Salnum, Kópavogi
Nú göngum við inn í 10. árið. Af
fingrum fram er tónleikaröð með
Jóni Ólafs og gestum í Salnum.
Selma Björnsdóttir er margvís-
legum hæfileikum gædd og kom-
inn tími til að spyrja hana – þó
tæplega spjörunum úr enda óvið-
eigandi. Hún á að baki glæsilegan
feril sem söng- og leikkona auk
þess að vera frábær danshöfundur
og leikstjóri. Selma fer í gegnum
fjölbreyttan ferilinn, allt frá Euro-
visionlögum til kántrítónlistar
með dassi af Grease í bland.
Hvað? Hekla
Hvenær? 21.00
Hvar? Mengi, Óðinsgötu
Hekla tilheyrir ekki neinum til-
teknum flokki tónlistar og fylgir
engum ákveðnum reglum. Skrítið,
einstakt og sjaldheyrt þeramínið
getur verið tjáningarríkt og afar
aðlögunarhæft. Í höndum Heklu
dekkar hljóðfærið gífurlega vítt
svið, allt frá dreifðum fuglasöng
með hátíðnitísti og kvaki, að gníst-
andi tektónískum undirbassa.
Hvað? Tónlist í garðinum
Hvenær? 18.00
Hvar? CenterHotel Miðgarður, Lauga-
vegi
Centertainment kynnir „Tónlist
í garðinum“, tónlistar- og Happy
Hour viðburði sem haldnir verða
á fimmtudögum á CenterHotel
Miðgarði.
Hvað? Prins Póló á trúnó
Hvenær? 20.00
Hvar? Hljómahöll, Reykjanesbæ
Í dag ætlar Prins Póló að hoppa
upp í flugvél, koma sér alla leið
frá Berufirði til Reykjanesbæjar og
fara á trúnó í Hljómahöll. Prins
Póló gaf nýverið út þriðju breið-
skífu sína en platan ber heitið
Þriðja kryddið. Á plötunni er að
finna meðal annars slagarana Er of
seint að fá sér kaffi núna?, Líf ertu
að grínast? og Læda slæda. Áður
hafði Prinsinn gefið út lög sem
allir þekkja eins og Niðrá strönd,
París Norðursins, Tipp Topp og
fleiri.
Hvað? Hausar October Drum & Bass
at Paloma
Hvenær? 21.00
Hvar? Paloma, Naustunum
Hausar rúlla áfram fyrsta fimmtu-
dagskvöld í hverjum mánuði á
Paloma. Allt það nýjasta í drum
& bass í bland við gamla klassík í
Funktion-One kerfi!
Hvað? Kokteilar & Tónlist hjá Geira
Smart
Hvenær? 17.00
Hvar? Geiri Smart, Hverfisgötu
Vigdís Vala Valgeirsdóttir, Borgþór
Jónsson og Magnús Oddsson leiða
saman hesta sína á Happy Hour á
annarri hæð Geira Smart, (Canopy
Reykjavík). Þríeykið mun flytja
efni úr smiðju Vigdísar Völu sem
mætti lýsa sem djass- eða blús-
skotinni dægurtónlist með dassi af
pönki á köflum.
Viðburðir
Hvað? Sigvaldi Kaldalóns – frum-
sýning
Hvenær? 20.00
Hvar? Hannesarholti, Grundarstíg
Tónskáldið og doktorinn Sigvaldi
Kaldalóns átti litríka ævi. Hann
tók við læknisembætti í einu
afskekktasta læknishéraði landsins
fyrir vestan. Víst var lífið þar ekki
eins og í einföldum söngleik. Þrátt
fyrir það samdi Sigvaldi margar
af sínum helstu sönglagaperlum á
Kaldalónsárunum. Rakin verður
þessi litríka saga tónskáldsins
fyrir vestan og fluttar helstu perlur
hans. Leikurinn var frumsýndur
árið 2013 og naut mikilla vinsælda
og snýr nú aftur á senuna. Búast
má við að margir fagni endurfund-
um og nýjum fundum við okkar
ástkæra tónskáld Sigvalda Kalda-
lóns í þessari umtöluðu sýningu.
Hvað? Fjórða iðnbyltingin: Aftur til
fortíðar?
Hvenær? 09.00
Hvar? Hlíðarendi
Fjórða iðnbyltingin mun þurrka
út sum störf og skapa önnur ný. En
hvaða áhrif mun hún hafa á stöðu
kynjanna á vinnumarkaðnum?
Spár sýna að ef konum fjölgar
ekki nú þegar í iðn- og tækninámi
gæti þeim fækkað mikið í orku-,
veitu- og upplýsingatæknigeir-
anum. Færir fjórða iðnbyltingin
okkur tugi ára aftur í tímann hvað
varðar jafnrétti á vinnustöðum?
Verður öll sú vinna sem lögð hefur
verið í að jafna stöðu kynjanna í
þessum atvinnugeirum fyrir gýg?
Eða er fjórða iðnbyltingin einmitt
tækifæri til að jafna kynjahlutföll
með breyttu verklagi? Samorka og
Origo, í samvinnu við Vertonet og
KíO, bjóða til morgunverðarfund-
ar til að ræða fjórðu iðnbyltinguna
út frá þessu sjónarhorni og mikil-
vægi fjölbreytni í starfsliði fyrir öll
fyrirtæki.
Hvað? RIFF Masterclass – Sergei
Loznitsa
Hvenær? 13.00
Hvar? Norræna húsið
Venju samkvæmt stendur RIFF
– Alþjóðleg kvikmyndahátíð í
Reykjavík fyrir spennandi meist-
araspjalli með þeim frábæru kvik-
myndagerðarmönnum sem heiðra
hátíðina með nærveru sinni.
Ókeypis inn og allir velkomnir.
Í meistaraspjalli sínu einblínir
Sergei Loznitsa á hvernig mörkin
á milli skáldskapar og veruleika
eru óðum að þurrkast út á tímum
falsfrétta og síðsannleika. Til hlið-
sjónar hefur hann nýjustu mynd
sína, Donbass, en fyrir hana hlaut
Sergei verðlaun fyrir bestu leik-
stjórnina á kvikmyndahátíðinni
í Cannes í flokknum Un Certain
Regard.
Hvað? RIFF – Á veiðum í vatni tímans
Hvenær? 14.45
Hvar? Norræna húsið
Verk Lailu Pakalninu geta virst í
fyrstu sundurlaus en stíll hennar
er í senn alvarlegur og glettinn og
hefur verið líkt við myndir Aki
Kaurismäki. Við skyggnumst inn
í veröld Pakalninu, rýnum í höf-
undareinkenni hennar og kynn-
umst betur þessari einstöku kvik-
myndagerðarkonu.
Í dag ætlar Prins Póló að hoppa upp í flugvél, koma sér alla leið frá Berufirði
til Reykjanesbæjar og fara á trúnó í Hljómahöll. fRéttaBlaðið/stefán
4 . o k T ó b e r 2 0 1 8 F I M M T U D A G U r36 M e n n I n G ∙ F r É T T A b L A ð I ð
0
4
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
F
C
-F
B
3
C
2
0
F
C
-F
A
0
0
2
0
F
C
-F
8
C
4
2
0
F
C
-F
7
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
3
_
1
0
_
2
0
1
8
C
M
Y
K