Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.10.2018, Síða 1

Víkurfréttir - 04.10.2018, Síða 1
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M S U Ð U R N E S J A MAGASÍN AÐAL S ÍMANÚMER 421 0000 ■ AUGLÝS INGAS ÍM INN 421 0001 ■ FRÉTTAS ÍM INN 421 0002 Krossmóa 4 | Reykjanesbæ Opnunartími mán.–fös. frá 9–20 lau.–sun. frá 11–18 Háhraða internet og hágæða sjónvarp EKKERT LÍNUGJALD, FRÍR ROUTER ENGIR AUKAREIKNINGAR Kapalvæðing • Hafnargata 21 • 421 4688 • kv@kv.is www.kv.is • www.facebook.com/kapalvaeding frá 6.560 Kr/mán. Úkraínskir risar á Keflavíkurflugvelli Tveir úkraínskir risar, Antonov 124, voru á Keflavíkur- flugvelli í síðustu viku. Það eru svo sem engar fréttir að þessar vélar séu á flugvellinum en sjaldgæfara er að sjá þær tvær eða fleiri á sama tíma. Alls hafa 55 flutningavélar af þessari tegund verið smíðaðar og eru margar þeirra í þjónustu Antonov Airlines og Volga-Dnepr Airlines sem eru í þungaflutningum um allan heim. Flugtaksþyngd er rúm 400 tonn en Antonov 124 getur flutt allt að 150 tonna farm. Með 120 tonn í lestinni getur vélin flogið 5000 kílómetra vegalengd Vélarnar sem millilenda á Keflavíkurflugvelli eru oftar en ekki í flutningum með búnað fyrir olíu- og gasvinnslusvæði í Kanada og eru að flytja búnaðinn frá framleiðendum í austur Evrópu og í Asíu. Ástæða millilendingar á Keflavíkur- flugvelli er til að hvíla áhafnir en Keflavíkur- flugvöllur er miðja vegu á flutningaleiðinni. Meðfylgjandi mynd var tekin af vélunum þar sem þær stóðu saman á austurhlaði Keflavíkurflugvallar á miðvikudag í síðustu viku. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson Starfsmaður á Keflavíkurflugvelli sem var að loka millihurð í far- þegarana varð fyrir því óhappi að klemma fingur milli hurðar og hurðarstafs með þeim afleið- ingum að framhluti fingursins datt af. Samstarfsfólk mannsins kom honum strax til hjálpar, fingurstúfurinn var settur í glas með ísmolum, búið um hönd mannsins og hann fluttur á Heil- brigðisstofnun Suðurnesja. Slysið varð á mánudag. Þá varð slys við Flugstöð Leifs Ei- ríkssonar þegar rútubílstjóri fékk farangurshurð rútunnar í höfuðið. Hafði bílstjórinn verið að setja far- angur í rýmið þegar hurðin fauk niður og lenti á höfði hans. Við- komandi var einnig fluttur á HSS og í báðum tilvikum gerði lögreglan á Suðurnesjum Vinnueftirlitinu viðvart. Fingurstúfur- inn settur í glas með ísmolum Reykjanesbær hefur gert að tillögu að þrjú svæði í sveitarfélag- inu verði verndarsvæði í byggð. Þau svæði eru Patterson-flug- völlur sem mikilvægar herminjar og kennileiti í sveitarfélaginu. Hins vegar svæði í Innri-Njarðvík, Hákotstangar, Njarðvíkur- kirkja, túnin beggja vegna Tjarnargötu og Narfakotstún. Túnin í Innri-Njarðvík eru mörkuð fornum byggðaháttum. Þriðja svæðið er Hafnir en svæðið nýtur hverfisverndar og náttúru- verndar að hluta en myndar merka menningarlega heild. Samkvæmt lögum um verndar- svæði í byggð skal sveitarstjórn að loknum kosningum meta hvort innan staðarmarka sveitarfélagsins sé byggð sem hafi slíkt gildi hvað varðveislu svipmóts og menningarsögu varðar, ásamt listrænu gildi, að ástæða sé til að útbúa tillögu til ráðherra um að hún verði gerð að verndarsvæði í byggð. Patterson, Hafnir og svæði í Innri Njarðvík verði verndarsvæði Eignir þrotabús United Silicon hafa að mestu farið í að greiða veðkröfur Arion banka en lítið sem ekkert mun fást upp í launakröfur á sjötta tug starfsmanna. Tjón þeirra gæti numið tugum milljóna króna. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 á mánudagskvöld. Þar sagði Geir Gestsson, skiptastjóri þrota- búsins, ólíklegt að nokkuð fáist upp í launakröfur starfsmanna upp á 110 milljónir króna. Telur lítið fást upp í launakröfur Tilboðin gilda 4.-7. október 2018 LJÚFFENGUR HELGARMATUR -50% BAYONNE SKINKA 998 KRKG ÁÐUR: 1.995 KR/KG NAUTALUNDIR 2. flokkur 2.999 KRKG ÁÐUR: 3.998 KR/KG -25% LAMBALÆR1 ÚRBEINAÐ MEÐ PIPAROSTI 1.999 KRKG ÁÐUR: 2.855 KR/KG -30% -50% GUL ME LÓN A fimmtudagur 4. október 2018 // 38. tbl. // 39. árg.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.