Víkurfréttir - 04.10.2018, Side 2
2 BLEIKUR OKTÓBER Á SUÐURNESJUM f immtudagur 4. október 2018 // 38. tbl. // 39. árg.
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a,
4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími
421 0004, pket@vf.is // Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
// Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, sími 421 0002, eythor@vf.is // Marta Eiríksdóttir,
sími 421 0002, marta@vf.is // Auglýsingastjóri: Andrea Sif Þorvaldsdóttir, sími 421
0001, andrea@vf.is // Útlit & umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is //
Afgreiðsla: Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is, Dóróthea Jónsdóttir, dora@
vf.is // Prentun: Landsprent // Upplag: 9000 eintök // Dreifing: Íslandspóstur //
Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið andrea@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17:00
á mánudegi fyrir útgáfudag, sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga
er á vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15:00 á mánudögum. Sé fimmtudagur frídagur
þá kemur blaðið út á miðvikudögum. Dreifing blaðsins tekur að jafnaði tvo daga og er
dreift inn á öll heimili á Suðurnesjum.
Efni til Víkurfrétta skal berast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkur
frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða greinar birtast í prentaðri útgáfu Víkurfrétta.
Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á
vefsíðum Víkurfrétta.
FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
MANNLÍF Á SUÐURNESJUM
VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM
ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM
UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM
Capacent — leiðir til árangurs
Landhelgisgæsla Íslands
er löggæslustofnun sem
hefur það hlutverk að sinna
löggæslu og eftirliti sem og
leit og björgun á hafsvæðinu
umhverfis Ísland. Þá fer
Landhelgisgæslan einnig með
daglega framkvæmd öryggis-
og varnarmála samanber
varnarmálalög nr. 34/2008
þ.m.t. er rekstur öryggissvæða,
mannvirkja, kerfa-, ratsjár- og
fjarskiptastöðva.
Hjá Landhelgisgæslunni starfar
tæplega 200 manna samhentur
hópur sem hefur að leiðarljósi
slagorðið: Við erum til taks!
Gildin okkar eru: Öryggi -
Þjónusta - Fagmennska
Upplýsingar og umsókn
capacent.com/s/10157
Menntunar- og hæfniskröfur
Vélfræðingur eða vélstjóri
Ökuréttindi og vinnuvélapróf
Staðgóð þekking á varaaflsbúnaði, kælikerfum,
eldvarnarkerfum og rafmagnsbúnaði
Góð íslensku- og enskukunnátta
Snyrtimennska í umgengni við vélar og tæki
�
�
�
�
�
�
�
�
�
Umsóknarfrestur
15. október
Starfssvið
Daglegt viðhald, eftirlit með tækjum og búnaði mannvirkja
Skýrslugerð og rekstrartengd verkefni
Umsjón og eftirlit með verktökum
Landhelgisgæsla Íslands leitar að áhugasömum einstaklingi til að slást í samhent teymi Gæslunnar.
Viðkomandi einstaklingur þarf að vera traustur, með ríka þjónustulund og geta tekist á við krefjandi verkefni.
Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli.
Landhelgisgæsla Íslands
Vélfræðingur/Vélstjóri
Hallfríður Hólmgrímsdóttir, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Grindavík, hefur
lagt fram fyrirspurn til meirihlutans í Grindavík vegna fundargerða bæjar-
ráðs Grindavíkur frá fundum nr. 1490 og 1491.
„Ofangreindar fundargerðir innihalda
hvor um sig eitt mál, viðtöl við mögu-
lega sviðstjóra sem sóttu um starf hjá
okkur og ákvörðun um ráðningu í
framhaldi af því. Þarna erum við að
tala um aukafund nr. 1490 á fimmtu-
degi, svo annar aukafundur nr. 1491
mánudaginn eftir og í kjölfarið er
haldinn fundur nr. 1492 þar sem
ráðningarmál er 6. mál á dagskrá og
samþykktir ráðningarsamningar við
sviðsstjóra.
Einnig vekur athygli að þessar fundar-
gerðir nr. 1490 og 1491 eru ekki birtar
á vef Grindavíkur einhverra hluta
vegna. Við viljum vita af hverju það
voru auka bæjarráðsfundir um þessi
mál í stað þess að bæjarfulltrúar eða
bæjarráð hefðu verið boðaðir í viðtöl
við umsækjendur svipað og var gert í
ráðningu bæjarstjórans?,“ bókar Hall-
fríður á síðasta fundi bæjarstjórnar
Grindavíkur.
Og í bókun Hallfríðar segir einnig:
„Bæjarfulltrúar eru á mánaðarlaunum
og þurfa ekki í hvert skipti að fá greitt
fyrir hvert viðvik sem er gert. Þarna
voru tveir aukafundir sem við teljum
að ekki hafi þurft að boða til sem er
aukakostnaður upp á rúmlega 400
þúsund krónur. Ef þið ætlið að vísa í
lög eða reglugerðir þá vinsamlegast
nefnið hvaða lög eða reglugerð á við.“
Undir þetta ritar Hallfríður Hólm-
grímsdóttir, Miðflokknum.
Bókun Hallfríðar er svarað með
bókun á síðasta bæjarstjórnarfundi
í Grindavík þar sem segir: „Bæjarráð
mun svara bókuninni á næsta bæjar-
ráðsfundi.“
Nýir hluthafar hafa lagt geoSilica til 40 milljónir króna fyrir um 6% hlut í
sprotafyrirtækinu. Samkvæmt því er heildarverðmæti fyrirtækisins því um
700 milljónir króna. Miklir landvinningar eru fyrirhugaðir hjá fyrirtækinu.
„Nú höfum við öll þau tól sem við
þurfum til að sækja á erlenda markaði
- gott starfsfólk, fjármagn og reynslu-
mikla hluthafa,“ segir Fida Abu Lib-
deh, annar stofnanda geoSilica.
Fida stofnaði geoSilica ásamt Burkna
Pálssyni árið 2012 þegar þau voru í
námi í orku- og umhverfistæknifræði
hjá Keili og Háskóla Íslands. Þau fengu
þá hugmynd að vinna kísilsteinefni
úr affallsvatni frá Hellisheiðavirkjun.
Þremur árum síðar kynntu þau fyrstu
vörurnar og í dag eru þær seldar á
Íslandi og í þýskumælandi löndum.
„Salan á erlendum mörkuðum hefur
gengið framar vonum og mánaðar-
salan í gegnum netverslun þar
er nú orðin meiri en á Íslandi. Nú
stefnum við
einnig á að fara
með vörurnar
í verslanir í
þýskumælandi
löndum,“ segir
Fida sem segir
f y r i r t æ k i ð
hyggja á frekari
landvinninga.
„Einn af hluthöfunum mun aðstoða
okkur við að komast á Skandinavíu-
markað og svo eru samningaviðræður
um Kínamarkað komnar mjög langt
á veg.“
Kísilsteinefni geoSilica er hágæða
100% náttúrulegt steinefni, þróað og
framleitt á Íslandi úr jarðhitavatni frá
Hellisheiðarvirkjun. Kísilsteinefnið
er í vökvaformi, ætlað til inntöku og
inniheldur engin viðbætt efni.
Kísill er steinefni sem finnst í nátt-
úrunni og ýmsum fæðutegundum.
Kísill er nauðsynlegt næringarefni
fyrir líkamann en hann gegnir lykil-
hlutverki í myndun og viðhaldi
beina. Kísill getur einnig auðveldað
líkamanum upptöku á öðrum stein-
efnum, eins og kalki og magnesíum
sem dæmi. Mikill skortur er á kísli í
fæðu Vesturlandabúa sem hefur þau
áhrif að leita þarf annarra leiða til að
fullnægja líkamanum um það magn
af kísli sem hann þarfnast.
geoSilica framleiðir nú fjórar vöru-
tegundir og er með starfsemi að
Ásbrú í Reykjanesbæ og við Hellis-
heiðavirkjun. Hjá fyrirtækinu starfa
fimm manns.
Kaupa 6% hlut í geoSilica fyrir 40 milljónir króna
Nýir hluthafar hafa bæst í eigendahóp geoSilica. Fyrirtækið hyggur á mikla landvinninga. Heildarverðmæti fyrirtækisins 700 milljónir króna.
Aukafundir bæjarráðs vegna ráðningar-
mála kostuðu rúmar 400 þús. kr.
SUÐURNESJAMAGASÍN
fimmtudagskvöld kl. 20:30 á Hringbraut og vf.is