Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.10.2018, Qupperneq 12

Víkurfréttir - 04.10.2018, Qupperneq 12
12 BLEIKUR OKTÓBER Á SUÐURNESJUM f immtudagur 4. október 2018 // 38. tbl. // 39. árg. Útgarðar Sameiningarheiti á sameiginlegt sveitarfélag Garðs og Sandgerðis Ég er einn af þeim sem hefur haft nokkuð sterkar skoðanir á sameiningu þessara tveggja sveitarfélaga. Af hverju ætla ég ekki að tíunda hér í þessum pistli, þar sem það hefur ekkert að segja hvort sem er. Það er búið og gert. En mér þykir samt sem áður vænt um Sandgerði og það er ekki út af neinum deilum við þá. Ég var mikið í Sandgerði sem krakki og saga þessa sjávarþorps er mjög merkileg, eins og Garðs. Ég vona þó að ég hafi rangt fyrir mér varðandi sameiningu og að þetta verði til góðs fyrir okkur og aðra íbúa í komandi framtíð. En ég er Garðmaður og verð það alltaf, því verður ekki breytt. Í vor var haldin kosning um heiti á nýja sameiginlega sveitarfélagið. Ég kaus ekki (eins og margir aðrir) vegna þess að nöfnin sem voru í boði voru lítt spennandi og þetta viðskeyti byggð og bær fór ekki vel í mig, eins og hjá mörgum öðrum. Sameiningarheitið Heiðarbyggð fékk flest atkvæði, en vegna dræmrar þátttöku í kosningum (þar sem margir skiluðu auðu eða helmingur atkvæða) var ákveðið að endurskoða nafnagiftina. Íbúar Garðs og Sandgerðis geta kosið á ný þann 3. nóvember 2018, eins og kom fram í fundargerð bæjarráðs. Mér finnst mjög mikilvægt að í heitinu felist skírskotun í sögu sveitarfélaganna og eitthvað sem tengir þessi tvö sveitarfélög saman. Það sem er hvað mest áberandi og einkennandi fyrir bæði þessi sveitar- félög eru grjótgarðarnir. Þeir voru frá upphafi byggðar afgerandi hluti ásyndar umhverfis og eina tiltæka efnið til að verja tún og garða. Sagt er í heimildum að í Garðinum hafi grjótgarðar náð samanlagt um 60 kíló- metra lengd! Svo auðvitað Skaga- garðurinn mikli sem lá frá Útskálum í Garði að Kirkjubóli í Sand- gerði, sem er rúmlega tveggja kílómetra leið. Skagagarðurinn er með merkustu fornminjum á Íslandi, sem við þurfum að halda betur á lofti. Tilgangurinn með mannvirkinu er talinn hafa verið til að verja akurlöndin fyrir búfé, sér í lagi kindum, en akuryrkja var tíð á Garðskaga. Skagagarðurinn hefur líklega verið reistur á 10. öld og það mótar fyrir honum enn í dag. Þetta eigum við Garðmenn og Sand- gerðingar sameiginlega sem tengir bæjarfélögin saman. Núna í vor urðum við þess heiðurs aðnjótandi að einn virtasti og af- kastamesti rithöfundur þjóðarinnar, Gyrðir Elíasson, flutti í Garðinn. Gyrðir hefur hlotið margar viður- kenningar fyrir verk sín, þar á meðal bókmenntaverðlaun Norður- landaráðs 2011 fyrir bók sína Milli trjánna. Þess má þá til gamans geta að hann kláraði nýjustu skáldsögu sína, Sorgarmarsinn, í Garðinum, sem að mínu mati er ein af hans bestu bókum. Hún hefur einstakan sjarma og er mjög vönduð eins og öll hans verk. Gyrðir sendi mér nýlega hugmynd að heiti á nýja sveitarfélagið, sem mér finnst koma fyllilega til greina og er sennilega besta tillaga sem ég hef heyrt hingað til. Ég held að Gyrðir hafi hitt naglann beint á höfuðið. Vona að sem flestir séu sammála. Útgarðar Virðingarfyllst, Guðmundur Magnússon UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM SMÁAUGLÝSINGAR TIL LEIGU: Íbúð til leigu í Keflavik fyrir reyk- lausan, reglusaman, vinnandi ein- staklings eða par. Ekkert dýrahald. Sími 8630733. Milli 12–19. Verið velkomin á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Hvítasunnu- kirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84   Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is Liðónýtir þingmenn Suðurnesja Enn eitt kjörtímabilið hafa kjósendur á Suðurnesjum látið frambjóðendur til Alþingis ljúga upp í opið geðið á sér. Eitt helsta baráttumál Suðurnesjamanna, tvölföldun Reykjanesbrautarinnar, mun verða að veruleika árið 2033. Þremur árum eftir að innflutningsbann á bif- reiðum sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti tekur gildi. Hver kaus það? Þau orð sem afi minn heitinn, blessuð sé minning hans, hafði um Fram- sóknarmenn voru ekki fögur og reyndi maður þótt ungur væri frekar að draga úr en hitt. Í dag er ég ekki frá því að sá gamli hafi bara verið með sitt upp á punkt og prik. Fram- sóknarfagurgali formannsins nær ekki lengra en að hann fái tryggt sæti í höllinni við Austurvöll. Hvað hann sagði til að komast þangað skiptir engu máli. Tilgangurinn helgar meðalið. Hvernig fór hann með Sig- mund Davíð? Hvernig fer hann með Reykjanesbrautina? Sí ofan í æ virðast Suðurnesin vera skilin eftir þegar hið háa Alþingi fer að dreifa fjármunum um landið. Ekki einu sinni er hægt að nota hér milljarðana sem ríkis- sjóður hefur fengið út úr sölu eigna á varnarsvæðinu sáluga. Þar er helst að þakka þingmönnum sem hafa verið svo uppteknir við að skrifa aksturs- dagbækur að ekki hefur gefist tími til að sinna þeim verkefnum sem kjósendur ætlast til af þeim. Það er tímafrekt að skara eld að eigin köku. Laun og rekstrarkostnaður fyrir um tvær milljónir á mann sem gerir ekki neitt yrði aldrei liðið hjá einkareknu fyrirtæki en þrjúhundruð- þúsund manna þjóð finnst sjálfsagt að hafa 63 slík eintök á Austurvelli. Ekki veit ég hvað veldur þrælsótta kjósenda á Suðurnesjum, svo ekki sé til tals aumingjaskapurinn í sveitar- stjórnunum sem bara kyngja því sem að þeim er rétt. Hvar er stoltið? Er svona gott að sitja á opinberu jötunni að óþarfi er að láta í sér heyra til að rugga ekki bátnum? Er samtryggingin slík að það eru bara allir glaðir með sínar milljónir og þaðan af meira á mánuði. Væla bara á Fésbókinni og gera ekkert þangað til næst verður kosið? Þá getur fagurgalinn hafist að nýju. Á þessu kjörtímabili þó skammt sé á veg sé komið er búið að sanna að troða má snuði uppí unga efnilega stjórnmálamenn með pólitískum bit- lingum í formi stjórnarformannssetu í ríkisfélögum. Formaðurinn deilir út brauðmolunum og fótgönguliðarnir grjóthalda kjafti. Skiptir þá engu máli þótt fótgönguliðarnir hafi skipað sér í forystusveit verkefna sem kjósendur telja forgangsverkefni Suðurnesjum. Í eina tíð hefðu þetta verið kölluð svik. Hvað er hið rétta í stöðunni fyrir kjörna fulltrúa sem láta eigin hagsmuni ganga fyrir hagsmunum kjósenda? Ég tel vist að menn mér kærir og tengdir sem hafa horfið yfir móðuna miklu snúi sér í gröfinni. Því- líkur aumingjaskapur sem hér er við lýði. Hvað varð um stolt Suðurnesja- manna? Stopp - hingað og ekki lengra. Góðar stundir, Margeir Vilhjálmsson AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001 Mojfríður einkaspæjari í Penninn Eymundsson Föstudaginn 5. október mun Marta Eiríksdóttir árita og lesa upp úr nýjustu bókinni sinni í Eymunds- son Keflavík frá klukkan 14:00 til 15:00. Bókin, sem heitir Moj- fríður einkaspæjari, er þriðja bók höfundar og hefur hlotið mikið lof lesenda, þykir vel skrifuð og skemmtileg. Bókin verður seld á sérstöku kynningarverði þennan dag. Upplagt að stinga þessari bók í jólapakkann í ár til þeirra sem þér þykir vænt um og vilt gleðja! FRÉTTATILKYNNING Varasalvi Bláa lónsins til styrktar Bleiku slaufunni Í tilefni af Bleiku slaufunni, átaks- verkefni Krabbameinsfélagsins, sem hefst núna í október mun 20% af söluandvirði varasalva Bláa lóns- ins renna til Krabbameinsfélagsins. Varasalvinn er ein vinsælasta vara Bláa lónsins og í tilefni af Bleiku slaufunni verður hann seldur í bleikum pakkningum. Bláa lónið hefur klætt sérvaldar vörur sínar í bleikan búning síðan 2015 til styrktar verkefninu. Líkt og síðustu ellefu ár tileinkar Krabbameinsfélag Íslands október- mánuð baráttu gegn krabbameini hjá konum. Söfnunarfé Bleiku slaufunnar í ár verður varið til þeirrar fjölbreyttu starfsemi sem Krabbameinsfélagið stendur fyrir, með sérstakri áherslu á krabbamein hjá konum og hvatningu um að mæta í skimun fyrir brjósta- og legháls- krabbameinum. Í Bleiku slaufunni í ár leggur Krabbameinsfélagið upp með að taka höndum saman við vinnustaði, saumaklúbba og aðra vinahópa sem hafa sýnt sig að vera dýrmætur stuðningur við þá félaga sem veikjast af krabbameini og fá þá til að taka í sameiningu ábyrgð á því að „kon- urnar þeirra“ nýti tækifæri til reglu- bundinnar skimunar. Konur er hvattar til að fara í skoðun í Leitarstöð Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Skimað er fyrir leghálskrabbameini hjá konum á aldrinum 23–65 ára á þriggja ára fresti og fyrir krabbameini í brjóstum hjá konum á aldrinum 40–69 ára, á tveggja ára fresti. Með leghálsskimun er hægt að draga verulega úr fjölda krabbameina í leghálsi og það eykur batalíkur verulega að greina brjósta- krabbamein á byrjunarstigi. Heim- sóknin tekur að jafnaði ekki lengri tíma en 10–15 mínútur í heildina. Varasalvi Bláa lónsins er seldur í verslunum fyrirtækisins í Svartsengi, við Laugaveg 15, Hreyfingu Glæsibæ, Flugstöð Leifs Eiríkssonar og í vef- verslun www.bluelagoon.is. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma EYGLÓ GÍSLADÓTTIR Njarðarvöllum 6, Reykjanesbæ lést föstudaginn 21. september. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, þriðjudaginn 9. október kl.13. Anna Gústafsdóttir Tryggvi Ingvason Sigurður Hjálmar Gústafsson Inga Hildur Gústafsdóttir Vilhjálmur Pétur Björgvinsson Gísli Jón Gústafsson Bahja Zaami barnabörn og barnabarnabörn Ástkær unnusti minn, bróðir okkar, mágur og frændi REIDAR ÓSKARSSON Rafnkelstaðavegi 8, Garði lést á Hvammstanga, þriðjudaginn 18. september sl. Útförin fer fram frá Útskálakirkju í Garði fimmtudaginn 4. október klukkan 14:00. Laufey Sigurðardóttir Þórdís Husby Örlygur Þorkelsson Ragnar M Husby Edda Baldvinsdóttir og frændsystkini

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.