Morgunblaðið - 07.06.2018, Page 9

Morgunblaðið - 07.06.2018, Page 9
stjórastöðu hjá Nintendo of America og hafa þar umsjón með tækniþróuninni. Síðar tók ég einnig að mér ábyrgðina á fjármálum fyrirtæk- isins. Hjá Nintendo starfa um 5.000 manns en fyrir- tækið rekur uppruna sinn til Japans. Á vett- vangi þess mættu Ingvari ýmsar áskoranir sem m.a. tengdust þróun á hinu gríðarlega vinsæla Nintendo Switch en einnig fjármálum fyrirtæk- isins í víðara samhengi. Þannig segir Ingvar að hann sé einna stoltastur af viðfangsefni á vett- vangi Nintendo sem fæstir myndu tengja við hinn heimsþekkta töluleikjaframleiðanda. „Nintendo átti meirihlutann í hafnaboltalið- inu Seattle Mariners. Ég hafði yfirumsjón með sölunni á félaginu árið 2016 en opinberlega hef- ur verið greint frá því að söluandvirðið hafi numið 661 milljón dollara.“ Nú stendur Ingvar á ríflega sextugu og örfáir mánuðir síðan hann sagði skilið við teymi lykil- stjórnenda Nintendo. Að þessu sinni liggur leið- in hins vegar ekki á vettvang nýrra tækifæra í tæknigeiranum heldur hefur Ingvar ákveðið að venda kvæði sínu í kross. „Ég hætti hjá Nintendo þegar ég hafði komið öllu því til leiðar sem ég ætlaði mér á þeim vett- vangi. Ég hef aldrei staldrað við til þess að staldra við heldur vil ég takast á við nýjar áskor- anir. Núna verða þær dálítið öðruvísi en áður.“ Þar vísar Ingvar til þess að hann og Claudia, kona hans, hafa ákveðið að flytjast til Íslands í haust og nýta legu landsins til þess að ferðast um Evrópu. „Mér finnst gaman að geta flutt loksins heim eftir 56 ár í Bandaríkjunum. Mamma er líka flutt heim og það er gott að geta verið nær henni. En við höfum áhuga á að ferðast meira um Evrópu en við höfum náð að gera og nú er rétti tíminn til þess að okkar mati.“ En það eru ekki aðeins ferðalögin sem bíða Ingvars. Hann er staðráðinn í að sinna áhuga- málum sínum af meiri natni en tekist hefur í annasömu starfi á vettvangi tæknirisanna í Bandaríkjunum. „Ég hef verið að æfa þríþraut og hef m.a. keppt í járnkarli á Havaí og víðar. Ég ætla að gera meira af því ef heilsan leyfir og ég sé fyrir mér að það gæti verið gaman að hjóla lengri leiðir um Ísland, t.d. til Þingvalla. En svo hef ég mikið dálæti á djasspíanóleik og nú ætla ég að vera duglegri að æfa mig á því sviði en ég hef hingað til verið.“ Morgunblaðið/Stefán Einar Stefánsson um langt árabil hefur verið í hópi ríkustu og áhrifamestu manna veraldar. „Það voru forréttindi að vinna með honum en þetta fyrirtæki setti hann á stofn af einstæðum áhuga á þessu viðfangsefni. Meðal þess sem við unnum að eftir skipunum hans var að byggja upp gríðarstórt neðanjarðarbyrgi sem geymir filmur og upprunaleg eintök af einstæðum ljós- myndum sem eru frá miðri 19. öld og varðveita merkilega sögu.“ Frá Corbis lá leiðin á nýjar slóðir. Þá fjárfesti Ingvar í ráðgjafarfyrirtæki. Fyrirtækið nefnist Slalom Consulting og þar starfa í dag 5.000 manns en höfuðstöðvar þess eru í Seattle. Fyrir- tækið teygir sig um þver og endilöng Bandarík- in ásamt því að starfa í Kanada og London. Ingvar er enn hluthafi í félaginu og situr þar í stjórn en allmörg ár eru síðan hann lét af dag- legum störfum í þágu þess. „Þegar ég keypti hlutinn í Slalom störfuðu þar aðeins um 100 manns og það var afar gaman að koma að uppbyggingu þess fyrirtækis. En af einhverjum ástæðum togaði tæknigeirinn ennþá í mig og mig langaði til þess að koma að því að byggja upp fyrirtæki fremur en að veita ráð- gjöf.“ Hellir sér út í tölvugeirann Eftir þrjú ár á vettvangi Slalom Consulting fór hann til starfa hjá bókunarrisanum Expedia. Það var árið 2008 og gegndi hann þar starfi framkvæmdastjóra upplýsingatæknimála. En síðasta stóra verkefnið sem Ingvar kom að á ferlinum tengist einnig afþreyingu. „Þegar ég var búinn að vera rúm tvö ár hjá Expedia bauðst mér að taka við framkvæmda- ” Undir árslok 1998 bauðst mér að taka við starfi framkvæmdastjóra tækni- mála hjá fyrirtæki sem nefnist Corbis. Bill Gates hafði stofnað fyrirtækið níu árum fyrr en það hafði það að markmiði að koma menningarverðmætum á stafrænt form, m.a. lista- verkum en ekki síst sögu- legum ljósmyndum. aw notaðist fyrirtækið mikið við hug- og eve Jobs stofnaði eftir að hann hrökklaðist um við þá notkun kynntist Ingvar Steve og ig á vettvangi NeXT. únaðurinn. Hann var ótrúlega einfaldur í önnur kerfi upp á. En Steve var harðákveð- og annað slíkt í beinni samkeppni við Apple. un, eins og ég, að fyrirtækið ætti að einbeita ep. Þannig gerðist það einhvern tíma að rir Steve og fá hann til að setja þá stefnu. erð með Steve og við ræddum þessi mál í ur fyrir og ætlaði ekki að hvika frá stefn- nnti hann hins vegar að NeXT myndi ein- r snillingur og að það hafi verið unun að læra yrir fólk til að hagnýta sér tæknina á nýjum Step en það er hugbúnaðurinn sem reynd- ldi Steve til Apple Computer á 395 milljónir uðvelt að umgangast hinn heimsþekkta gi. ala á fundi yfir um 300 tæknisérfræðingum í inni. Þar gerði hann viðstöddum grein fyrir Þeir sem ekki tækju undir það væru einfald- hvort hann hefði virkilega engan áhuga á að rs garð og Ingvari þótti vænt um þegar hon- uppbyggingunni hjá Corbis og ákvað að sushi. Hann elskaði þann mat og ég er hon- .“ ð borða sushi MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018 9VIÐTAL

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.