Morgunblaðið - 07.06.2018, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018 11FRÉTTIR
Af síðum
Það er ekki í mörg-
um íþróttagreinum
sem peningar leika
stærra hlutverk en
í knattspyrnu. En
ábatasamt sam-
band ensku úrvals-
deildarinnar við
viðskiptalífið fór þó
ekki vel af stað.
Árið 1976 var
dæmd rangstaða á
það þegar lið í
Mið-Englandi gerði
„fjögurra tölustafa“
samning um að
setja nafn dekkjaverkstæðis á treyjur sínar.
Frá því að bannið var afnumið hafa auglýsingar fyrir marga
milljarða punda verið stimplaðar á brjóstkassa leikmannanna í
efstu deild. Sex lið fengu í sinn hlut um 75% af þeim 282 milljónum
punda sem úrvalsdeildarlið tryggðu sér á leiktíðinni 2017-18. Aug-
lýsingasamningar og annars konar viðskiptatengdar tekjur mynda
meira en þriðjung tekna stærstu knattspyrnufélaganna.
Efst í úrvalsdeildinni trónir samningur Manchester United við
bandaríska bílaframleiðandann Chevrolet sem hljóðar upp á 47
milljónir punda á ári. Aðeins 85 milljóna bandaríkjadala samningur
Real Madrid við flugfélagið Emirates er stærri.
Núna er búið að útvíkka möguleikana enn frekar með úrskurði
sem leyfir nafn auglýsanda á skyrtuermum leikmanna. Ekki hafa
þessar nýju auglýsingar allar fallið jafn vel í kramið. Áform Arsen-
al um að vera með merki sem á stendur „Heimsækið Rúanda“ á
erminni olli uppþoti í síðustu viku. Gagnrýnendum þótti undarlegt
að bláfátækt land skyldi gerast bakhjarl eins fjársterkasta knatt-
spyrnufélags heims. En Rúanda-búar hafa ástæðu til að trúa því að
vinsældir Arsenal gætu hleypt lífi í ferðaþjónustuna í landinu.
Áætlað er að treyjur Arsenal beri fyrir augu 35 milljóna manna
daglega.
Búseta áhorfendanna skiptir nánast jafn miklu máli og hve marg-
ir þeir eru. Merki veðmálafyrirtækja á borð við Betway sjást núna
á fatnaði nærri helmings liðanna í úrvalsdeildinni. Samkvæmt
Brand Finance er þessum auglýsingum einkum beint að kínversk-
um áhorfendum. Eftir því sem tekjur þarlendra fjölmiðla fara vax-
andi ætti eftirspurn eftir merkingum því að hækka að sama
skapi.
LEX
AFP
Fjármál í fótbolta:
Auknar treyjutekjur
Á mánudag svipti Satya Nadella,
forstjóri Microsoft, hulunni af
stærsta útspili fyrirtækisins til
þessa til að laga sig að opnum hug-
búnaði, þegar hann greindi frá
kaupum á kóðadeilivefnum GitHub
fyrir 7,5 milljarða bandaríkjadala.
Með kaupunum mun Microsoft fá
aðgang að víðtæku samfélagi 28
milljón hugbúnaðarsmiða. Margir
þeirra nýta hin ýmsu tól og tæki
GitHub til að búa til forrit sem
tengjast skýjaþjónustu Amazon og
Google, stærstu keppinauta Micro-
soft.
Kaupin á GitHub eru næststærsta
yfirtakan sem Microsoft hefur ráðist
í frá því Nadella tók við stjórninni,
en áður hafði tæknirisinn keypt Lin-
kedIn, tengslamyndunarvef fag-
fólksins, á 26 milljarða dala. Rétt
eins og þá er Microsoft, sem í gegn-
um tíðina hefur verið þekkt fyrir að
svífast einskis til að viðhalda ráð-
andi stöðu í tækniheiminum, að
veðja á að framtíð fyrirtækisins sé
best borgið með því að leggja aukna
áherslu á opinn hugbúnað og opna
vettvanga fyrir hugbúnaðarþróun.
Hlutabréf hækkað um 38%
Microsoft, sem áður var einrátt á
markaði fyrir einkatölvur, mun
greiða kaupverðið alfarið með eigin
hlutabréfum, sem hafa hækkað í
verði um meira en 38% á síðastliðnu
ári. Fóru þau um skeið svo hátt í síð-
ustu viku að markaðsvirði Microsoft
fór fram úr Alphabet, móðurfélagi
Google. GitHub hefur verið rekið
með tapi og er 7,5 milljarða dala
verðmiðinn töluvert hærri en í síð-
ustu fjármögnunarlotu félagsins ár-
ið 2015, þegar félagið var metið á 2
milljarða dala.
GitHub var stofnað fyrir áratug í
San Francisco og þjónar því hlut-
verki að vera vettvangur fyrir forrit-
ara að geyma verkefni sín, deila
þeim, og starfa saman. Þjónustan
byggir á rekjanleikaforritinu Git
sem vaktar hvernig hver og einn
forritari breytir kóðabút sem marg-
ir vinna í í sameiningu.
Breytt stefna með Nadella
Frá því að hann settist í forstjóra-
stólinn fyrir fjórum árum hefur Na-
della haft það að leiðarljósi að ná til
forritasmiða sem gera opinn hug-
búnað. Frægt er þegar forveri hans
í starfi, Steve Ballmer, líkti opnum
hugbúnaði, sem forritarar geta deilt
og breytt hver eftir sínu höfði, við
krabbamein sem væri að éta sér leið
inn í seldan hugbúnað eins og þann
sem Microsoft framleiðir. En með
vaxandi vægi snjallsíma tóku forrit-
arar að snúa baki við Windows svo
að nýi forstjórinn var tilneyddur til
að marka nýja stefnu.
Á mánudag reyndi Nadella að róa
þá sem efast um að Micosoft muni
standa við það loforð að skapa opn-
ara hugbúnaðarsamfélag, í stað þess
lokaða hugbúnaðarumhverfis sem
fyrirtækið drottnaði eitt sinni yfir.
„Hugbúnaðarsmiðir hafa alltaf verið
okkur mjög kærir, og líka þeir sem
þróa opinn hugbúnað. Í dag drögum
við hvergi af okkur í opnum hugbún-
aði,“ sagði hann.
Veitir aðgang að nýjum hópi
„Þeir hafa sýnt það í verki að þeir
geta verið góðir forsjármenn þegar
kemur að opnum hugbúnaði,“ segir
Thomas Murphy markaðsgreinandi
hjá Gartner.
Með kaupunum á GitHub getur
Microsoft náð til nýs hóps hugbún-
aðarsmiða sem gætu viljað nota tól
þeirra og lausnir. Um leið er verið
að greiða leiðina fyrir þau forrit sem
þessi hópur smíðar inn í skýjaþjón-
ustu Microsoft, Azure. En Microsoft
þarf að fara varlega til að fæla ekki
forritarana frá sér. Nadella lofaði að
Microsoft muni reka GitHub sem
sjálfstæða einingu sem verður opin
fyrir tækni úr öllum áttum.
Helmingurinn af fyrirtækjunum á
Fortune 50-listanum notar GitHub,
að sögn Adam Holt markaðs-
greinanda hjá MoffettNathanson.
Samtals eru notendur GitHub 1,8
milljón talsins á heimsvísu, og
spanna allt frá stórfyrirtækjum eins
og Microsoft og Facebook yfir í
sprotafyrirtæki.
Breytingar í yfirstjórn
Kaupsamningurinn kveður á um
að Chris Wanstrath forstjóri Git-
Hub gangi til liðs við Microsoft sem
„tækniráðgjafi“, þar sem hann að-
stoðar við hugbúnaðarnýsköpun.
Nat Friedman, mun færa sig úr
stjórnendahópi Microsoft yfir í for-
stjórastól GitHub þegar gengið hef-
ur verið frá kaupunum.
Peter Levine, meðeigandi hjá
Andreessen Horowitz segir að fyrir-
tækið hafi fjárfest í GitHub árið
2012 vegna þeirrar bjargföstu trúar
að hugbúnaður eigi eftir að „éta all-
an heiminn“. Hann segir GitHub
vera „hvatann“ til að gera það að
veruleika. Hjá Sequoia Capital segir
meðeigandinn Jim Goetz að GitHub
væri núna „hin viðtekna leið sem
fólk velur til að gera hugbúnað.“
Fyrirtækið fékk á sínum tíma
áhættufjármagn frá félögum á borð
við Sequoia Capital og And-
reessen Horowitz.
Microsoft eignast kóð-
unarvefinn GitHub
Eftir Richard Waters og
Hönnu Kuchler í San
Francisco, og Arash Mas-
soudi í London
GitHub er vettvangur fyr-
ir forritara að deila verk-
efnum og starfa saman.
Með kaupum á félaginu
hyggst Microsoft nálgast
betur opinn hugbúnað.
AFP
Frá því að hann settist í forstjórastólinnn fyrir fjórum árum hefur Satya Na-
della haft það að leiðarljósi að ná til forritasmiða sem gera opinn hugbúnað.
LAGERSALA 30-70%afsláttur
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is • tengi@tengi.is
Verð með fylgihlutum.Sturtubotn,
90x90 cm
22.822 kr.
Verð áður: 32.603 kr.
Kaldewei
30%
afsláttu
r
Handlaugartæki
með lyftitappa
14.900 kr.
Verð áður: 22.564 kr.
Mora MIXX