Morgunblaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018SJÓNARHÓLL Meira til skiptanna KRISTINN MAGNÚSSON Í ofureinfaldaðri mynd má segja að framleiðni séeinfaldlega hlutfallið á milli þess sem kemur út úreinhverju ferli og þess sem fór inn í þetta sama ferli. Með öðrum orðum þá gefur framleiðni til kynna hversu skilvirkt ferlið er í að breyta inntaki í úttak. Að mæla framleiðni getur verið bæði einfalt og flókið, en hvorum megin hryggjar það fellur fer fyrst og fremst eftir því hversu auðvelt er að skilgreina og mæla inntakið og úttakið. Framleiðni er eðlilega bæði mikilvæg fyrir fyrirtæki og launþega. Framleiðni í rekstri fyrirtækis hefur augljóslega bein áhrif á afkomu þess, því ef hægt er að auka framleiðsluna án þess að auka notkun aðfanga eða draga úr notkun aðfanga án þess að minnka framleiðsluna þá minnkar kostnaður á hverja framleidda einingu og framlegð vex. Framleiðni vinnuafls, það er hlutfallið á milli úttaks og þeirra unnu stunda sem til þurfti, hefur jafnframt úrslita- þýðingu fyrir launþega þar sem hún setur efri mörk á launin sem hægt er að greiða þar sem launakostnaður tak- markast almennt við ákveðið hlutfall af verðmæti framleiðslunnar. Þegar kemur að þjónustugreinum flækjast gjarnan málin þar sem ekki er alltaf augljóst hvernig best er að skilgreina og mæla úttakið, það er það sem fram- leitt er. Stundum eru reyndar augljósir möguleikar í boði, en til dæmis mætti mæla framleiðslu í símsvörun með fjölda afgreiddra símtala og framleiðslu bifreiða- verkstæðis með fjölda viðgerða. Málin eru hins vegar fljót að flækjast þegar kemur að afþreyingu í ferða- þjónustu, en það sem gerir afþreyingu í ferðaþjónustu ólíka ýmissi annarri þjónustu er að um er að ræða fé- lagslegan atburð miklu frekar en efnahagslegan. Á meðan bifvélavirkinn þarf ekki að tala við eiganda bílsins á meðan hann gerir við hann, þá byggist af- þreying í ferðaþjónustu yfirleitt á stöðugum persónu- legum samskiptum starfsmanns og ferðamanns þar sem starfsmaðurinn framleiðir þjónustuna á staðnum og ferðamaðurinn neytir hennar jafn harðan. Mælikvarðar sem kunna að virðast augljósir við fyrstu sýn, eins og til dæmis fjöldi ferðamanna sem fá afgreiðslu, ganga ekki upp þegar betur er að gáð. Ef leiðsögumaður sem ræður vel við tíu manns á sama tíma þyrfti til dæmis að sinna hundrað manns yrði örugglega enginn ánægður og ekki yrði mikið um við- skipti eftir það. Þetta styðja rannsóknir, sem sýna að til þess að afþreying í ferðaþjón- ustu nái árangri til lengri tíma þarf þjónustan að höfða til ferðamannsins, vera nýstárleg fyrir hann, bjóða upp á óvænta atburði, fela í sér fræðslu og allt þarf þetta að gerast þannig að ferðamanninum finnist hann vera virkur þátttakandi í upplif- uninni. Árangursrík afþreying þarf þar með að byggjast á reyndum og fróðum starfs- mönnum sem hafa tíma til að sinna hverjum og einum, sem takmarkar verulega möguleikana til að auka fram- leiðni. Þegar harðnar á dalnum eru eðlileg og algeng við- brögð fyrirtækja að leita leiða til að auka framleiðni, en að ofansögðu eru möguleikarnir til þess takmark- aðir í afþreyingu. Einhverja framleiðniaukningu má sækja með hagnýtingu upplýsingatækni og stækkun eininga í gegnum samruna eða skipulegt samstarf, þar sem til dæmis stjórnunar- og markaðskostnaður myndi þá lækka hlutfallslega auk þess sem auðveldara yrði að dreifa álagi, en það er ólíklegt að slíkt dugi eitt og sér. Líklegra er að þau fyrirtæki sem munu lifa af til lengri tíma séu fyrirtækin sem ná að auka gæði þjónustunnar og sækja þannig hærra verð, en lykillinn að því er hæft starfsfólk og áhersla á upp- lifun einstaklingsins. MARKAÐIR Hjörtur H. Jónsson, forstöðumaður áhætturáðgjafar hjá ALM verðbréfum Framleiðni í afþreyingu ferðamanna ” Þegar harðnar á dalnum eru eðlileg og algeng viðbrögð fyrirtækja að leita leiða til að auka framleiðni, en að ofan- sögðu eru möguleik- arnir til þess takmark- aðir í afþreyingu. VEFSÍÐAN Það er afskaplega gagnlegt að vera með notendareikning hjá LinkedIn til að safna þar saman upplýsingum um menntun, störf og tengiliði. En gallin við LinkedIn er að það er ekki að ein- falt að nota upplýsingarnar þar til að gera hefðbundna starfsferilsskrá. Að vísu er hægt að finna hnapp hjá Lin- kedIn sem útbýr prentvæna starfs- ferilsskrá, en það er ekki hægt að eiga mikið við umbrotið eða laga upp- lýsingarnar að því starfi sem stendur til að sækja um. Það mætti svo sem alltaf gera starfsferilsskrána með gamla laginu, en það tekur tíma og fólki ferst það vandaverk misvel úr hendi að ganga frá plagginu þannig að það sé skýrt, fallegt og veki athygli. Vefsíðan Ceev (www.ceev.io) ætti að geta hjálpað, en um er að ræða vefforrit sem hefur verið hannað gagngert til að búa til framúrskarandi starfsferilsskrár. Ceev leiðir notandann á tiltölulega þægilegan hátt í gegnum ferilskrár- gerðina og býður upp á þann mögu- leika að sækja upplýsingar beint frá LinkedIn svo ekki þurfi að slá þær inn handvirkt. Ceev setur starfsferilsskrána upp með sjálfvirkum hætti og getur not- andinn síðan breytt hér um bil flestu; valið mismunandi útlit, breytt litum og letri. Grunnútgáfa Ceev er ókeypis en gegn 10 dala gjaldi má opna fyrir alla notkunarmöguleika forritsins. ai@mbl.is Starfsferilsskráin verður leikur einn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.